Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Side 66
66 FÓLK 8. júní 2018
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.
Unnur söng sig upp
metorðastigann
Leikur Jayne Mansfield í Las Vegas „Við vorum á
æfingum frá
morgni til kvölds. Síðan
kom ein vika af forsýn-
ingum en þá vorum við
að æfa frá 10–18 og síð-
an beint í sýningu klukk-
an 19.
U
m síðustu helgi var
söngleikurinn Marilyn
frumsýndur með pomp
og prakt. Að öllum líkind-
um var enginn Íslendingur í saln-
um því söngleikurinn er sýndur í
Paris-spilavítinu í borg syndanna,
Las Vegas í Bandaríkjunum. Það
sama gildir ekki um sjálft sviðið því
þar á Ísland sinn fulltrúa. Söng-
og leikkonan Unnur Eggerts dóttir
fer með hlutverk Jayne Mansfield,
kynbombunnar frægu, í sýn-
ingunni en á milli hennar og Mari-
lyn Monroe var rígur sem var þó
aðallega búinn til af bandarískum
fjölmiðlum. Unnur, sem ytra notar
sviðsnafnið Una Eggerts, ræddi við
blaðamann DV um sýninguna og
lífið vestanhafs sem er ekki alltaf
dans á rósum.
Bara 20 hvítir miðaldra karlar í
salnum
Unnur útskrifaðist sem leikkona
frá The American Academy of
Dramatic Arts fyrir tveimur árum.
Skólinn er í New York-borg en strax
eftir útskrift fékk Unnur tækifæri í
söngleiknum Marilyn sem þá var
sýndur í Los Angeles. „Ég byrjaði
sem dansari í sýningunni og stökk
á það verkefni enda er mikilvægt
að koma fætinum inn fyrir dyrnar í
þessum bransa,“ segir Unnur.
Um var að ræða eins mánað-
ar verkefni og var Unni flogið yfir
endilöng Bandaríkin. Við tóku
erfiðar æfingar og sýningar inni á
milli. „Söngleikurinn var minni í
sniðum og í raun allt öðruvísi en
hann er í dag. Sýningarnar gengu
samt vel og þá fór að kvikna áhugi
fjársterkra aðila á að fjárfesta í
verkefninu og búa til mun stærri
sýningu úr þessum efnivið,“ segir
Unnur.
Við tók tímabil þar sem leik-
hópurinn setti upp sýningar fyrir
áhugasama fjárfesta í Los Angeles
og Las Vegas. „Stærsta sýningin
var fyrir 1.400 manns en einu sinni
stigum við á svið fyrir framan 20
miðaldra hvíta karlmenn. Það
var mjög fyndin upplifun og ekki
hægt að segja að við höfum fengið
mikla hvatningarorku frá salnum.
Þessir menn voru alls ekki þarna
til að skemmta sér og við gátum
ekki búist við að það yrði klappað
fyrir okkur. Þeir flugu þessum 20
manna leikhóp til Las Vegas og
markmið þeirra var fyrst og fremst
að meta sýninguna út frá kostn-
aði við uppsetninguna og hvort
þetta væri vænlegt verkefni,“ segir
Unnur kímin.
Brjáluð keyrsla í
forsýningarviku
Prufusýningin gekk vonum fram-
ar og ákváðu fjárfestarnir að veðja
á þennan hest. Það lá þó ekki fyrir
Unni að dansa eingöngu í sýn-
ingunni því segja má að hún hafi
fljótlega sungið sig upp metorða-
stigann. Þegar áðurnefnt hlut-
verk Jayne Mansfield á sýningunni
losnaði þá var Unnur kölluð til og
hún greip tækifærið. Segja má að
hápunktur sýningarinnar sé sam-
söngur Unnar og Ruby Lewis, sem
fer með hlutverk Marilyn Monroe,
í laginu „Battle of the blondes“.
„Þetta er rosalega skemmtilegt en
krefjandi atriði. Við fáum að fífl-
ast eins og vitleysingar á sviðinu
og syngja ofboðslega háar nótur,“
segir Unnur.
Sýningin var frumsýnd þann
1. júní síðastliðinn en þá var að
baki langt og strangt æfingaferli.
„Við vorum á æfingum frá morgni
til kvölds. Síðan kom ein vika af
forsýningum en þá vorum við að
æfa frá 10–18 og síðan beint í sýn-
ingu klukkan 19,“ segir Unnur. Á
þessari viku tók sýningin miklum
breytingum því leikstjóri og fram-
leiðendur voru að klippa út at-
riði sem þeim fannst ekki virka og
jafnvel bæta öðrum við. „Það var
rosalega mikil keyrsla og mjög
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is