Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Page 2
2 22. júní 2018FRÉTTIR
Á þessum degi,
22. júní
1633 – Kaþólska kirkjan neyðir Galileo
Galilei til þess að draga tilbaka yfirlýs-
ingu sína um að sólin væri miðpunktur
alheimsins en ekki jörðin.
1783 – Eitruð aska frá eldgosi í Laka-
gígum berst til Le Havre í Frakklandi.
1911 – Georg V. er útnefndur konungur
Bretlands.
1941 – Þjóðverjar hefja innrás sína inn
í Sovétríkin.
1986 – Diego Maradona skorar umdeilt
mark gegn Englandi á HM sem kallað er
„hönd guðs“.
sem gætu tekið við af Gylfa
Gylfi Arnbjörnsson gefur ekki kost
á sér til áframhaldandi setu sem
forseti Alþýðusambands Íslands.
Nú er tækifæri fyrir fólk úr röðum
VR, Eflingar og Sósíalistaflokks
Íslands, sem og fyrrverandi stjórn-
málamenn, til að láta
ljós sitt skína. Af því
tilefni tók DV saman
lista yfir fimm
einstaklinga sem
gætu tekið við
af Gylfa sem
forseti ASÍ.
Ögmundur
Jónasson
Fyrrverandi ráðherra
og formaður BSRB.
Telur sig vera mann
fólksins.
Drífa Snædal
Framkvæmdastjóri
Starfsgreinasam-
bandsins, sagði sig úr
Vinstri grænum vegna
stjórnarsamstarfsins.
Gunnar Smári
Egilsson
Heilinn að baki Sósía-
listaflokki Íslands. Yrði
versta martröð Sam-
taka atvinnulífsins.
Össur
Skarphéðinsson
Annar fyrrverandi
ráðherra sem vill ekki
hverfa úr sviðsljósinu.
Magdalena
Kwiatkowska
Frambjóðandi til
borgarstjórnar fyrir
Sósíalista og gjaldkeri
Eflingar. Einmitt, eins
og venjuleg afgreiðslu-
kona fengi að verða
forseti ASÍ!
E
inn af hápunktum Listahá-
tíðar Reykjavíkur var sýn-
ingin New Worlds með
stórstjörnuna Bill Murray
í aðalhlutverki. Alls voru tvær
sýningar á verkinu sýndar í Eld-
borgarsal Hörpu um síðustu
helgi. Í verkinu tók Murray hönd-
um saman við þrjá heimsþekkta
hljóðfæraleikara og því var um að
ræða skemmtilega blöndu af sí-
gildri tónlist, úrvals bókmennta-
textum og sönglögum í flutningi
fjórmenninganna.
Sýningin féll vel í kramið hjá
áhorfendum og að sjálfsögðu
vann Murray hug og hjörtu þeirra.
En það var ekki síður utan tón-
listarhallarinnar sem Murray sló
í gegn. Hann setti mikinn svip á
borgarlífið þessa daga sem hann
dvaldi í Reykjavík og hafa blaða-
menn DV heyrt allnokkrar sögur
af kappanum.
Þannig átti Murray að mæta í
hóf á Bessastöðum hjá Guðna Th.
Jóhannessyni, forseta Íslands, á
þjóðhátíðardaginn. Hófið var til
heiðurs þeim listamönnum sem
tóku þátt í Listahátíðinni en óum-
deilanlega var Hollywood-stjarn-
an aðalgesturinn. Það fór þó ekki
svo að Murray nyti gestrisni forset-
ans því stjarnan missti af boðinu.
Kona ein rakst á leikarann va-
frandi um Arnarhól. Murray heils-
aði konunni kumpánlega og spurði
hvar forseti Íslands byggi eiginlega
því hann ætti að heimsækja hann
kl. 18.00. Konan benti stórleikar-
anum þá á að forsetinn ætti heima
á Álftanesi, þangað væri talsvert
ferðalag og það væri slæmt í ljósi
þess að aðeins væru fimm mínútur
til stefnu. Murray leit þá á klukk-
una, yppti öxlum og sagði: „Þá næ
ég því ekki. Get ég gert eitthvað
annað skemmtilegt hérna?“
Þá vakti hressileg innkoma
Murray einnig athygli á skemmti-
staðnum Pablo Discobar á föstu-
dagskvöldið. Stórleikarinn var í
góðum gír þegar hann gekk í gegn-
um troðfullt dansgólfið og að bar-
borði skemmtistaðarins þar sem
hann keypti drykk handa sér og
meðreiðarsveinum sínum. Þá
gekk upp að honum ungur mað-
ur og gerði sig líklegan til þess að
heilsa upp á kempuna. Murray
horfði vinalega á hann og mælti:
„Mig langar ekki til þess að eiga
samtal.“ Hrökkaðlist þá ungi mað-
urinn í burtu og fékk Murray að
vera algjörlega í friði við barinn
þar til að hann gekk út í nóttina.
Murray var öllu hressari eft-
ir sýninguna á laugardeginum í
Hörpunni. Þá kom hann inn í bún-
ingsherbergi sitt og hitti þar Ragn-
heiði J. Sverrisdóttur, starfsmann
tónlistarhússins, sem var að gæta
þess að stjarnan hefði allt til alls.
Að sögn Ragnheiðar, sem ætíð er
kölluð Jonna, heilsaði stjarnan
kumpánlega upp á hana. „Hæ, ég
heiti Bill, hvað heitir þú?“ sagði
leikarinn brosandi. Ragnheiður
kynnti sig sem Jonnu og svaraði
Murray því með orðunum „Aha,
það er millinafnið mitt.“ Þau grín-
uðust síðan enn meira með nafn
Ragnheiðar sem Murray þótti
frekar óþjált. Að endingu þakk-
aði hann henni kærlega fyrir að
hugsa um herbergið og lét serví-
ettu sem var krumpuð í eins konar
bolta detta í hönd Jonnu. Hún hélt
að þetta væri rusl og var við það
að henda pappírnum þegar hún
áttaði sig á því að um 5.000 króna
peningaseðil var að ræða. „Þetta
var skrýtin en skemmtileg uppá-
koma,“ segir Jonna. n
Bill Murray missti af
veislu á Bessastöðum
n Villuráfandi um Arnarhól n Lék á alls oddi í Hörpu
„Murray heilsaði konunni kumpánlega og spurði
hvar forseti Íslands byggi eiginlega því hann
ætti að heimsækja hann kl. 18.00. Konan benti stór-
leikaranum þá á að forsetinn ætti heima á Álftanesi,
þangað væri talsvert ferðalag og það væri slæmt í
ljósi þess að aðeins væru fimm mínútur til stefnu.
Hollywood-
leikarinn Bill
Murray heillaði
Ragnheiði
Sverrisdóttur
upp úr skónum
með kímnigáfu
og vinalegri
framkomu.
Íþróttafrétta-
maðurinn og
rithöfundurinn
Mikið mæðir á íþróttafrétta-
mönnum landsins á með-
an Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu stendur yfir.
Reyndar vorkenna fáir Ís-
lendingar
þessum
ágætu
einstakling-
um vegna
vinnuálags-
ins enda
líklega í
besta starfi
landsins
þessi dægrin. Einn af þeim sem
stendur í eldlínunni er Haukur
Harðarson, íþróttafréttamaður
Ríkisútvarpsins. Færri vita að
föðuramma Hauks er rithöf-
undurinn og fyrrverandi þing-
maðurinn, Guðrún Helgadótt-
ir, sem eflaust fylgist vel með
barnabarninu í Rússlandi.
Lítt þekkt ættartengsl: