Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Qupperneq 20
20 SPORT 22. júní 2018
Heimir Hallgrímsson – Þjálfari
Þennan þarf varla að kynna til leiks, höfuðið á hernum og hefur kom-
ið sér í heimsfréttirnar fyrir þennan magnaða árangur sem hann hefur
náð með liðinu.
Helgi Kolviðsson – Aðstoðarþjálfari
Komst í kynni við landsliðið á EM í Frakklandi þegar hann kom með
afar gott ísbað, var svo ráðinn sem aðstoðarþjálfari Heimis og hefur
vaxið og dafnað í starfi.
Guðmundur Hreiðarsson – Markmannsþjálfari
Guðmundur hefur lengi verið í kringum liðið og unnið gott starf, liggur
yfir andstæðingum Íslands og hefur stórt hluverk í teymi Heimis.
Fólkið á bak við velgengni strákanna
Þ
að er ekki lítið umstangið
sem fylgir því að fara með 23
manna leikmannahóp á HM
í Rússlandi sem nú stend-
ur yfir. Ótrúlegur fjöldi fólks hefur
komið að verkefninu og með liðinu
er um þrjátíu manna teymi sem sér
til þess að strákarnir hafi það eins
og best verður á kosið meðan á
mótinu í Rússlandi stendur.
Strákarnir og þjálfarateymi
landsliðsins hefur hrósað starfs-
liðinu í hástert enda ljóst að all-
ir eru að gera sitt allra besta til
að aðstoða liðið. DV varpar hér
ljósi á fólkið á bak við tjöldin hjá
landsliðinu, fólkið sem er alla
jafna ekki mjög áberandi eða í
sviðsljósinu en er samt svo mik-
ilvægur og órjúfanlegur hluti af
þeim góða árangri sem náðst
hefur á undanförnum misser-
um. n
Einar Þór Sigurðsson og
Hörður Snævar Jónsson
Skrifa frá Rússlandi
Sebastian Boxleitner – Styrktarþjálfari
Þýska stálið hóf störf eftir EM í Frakklandi, einn
þáttur í því að bæta umgjörðina í kringum liðið var
að fá inn öflugan styrktarþjálfara.
Freyr Alexandersson – Yfirnjósnari
Hefur aðstoðað Heimi síðustu ár, hefur mikla þekk-
ingu á leiknum og er góður í að lesa andstæðinga Ís-
lands. Nú síðast Argentínu.
Arnar Bill Gunnarsson – Njósnari
Sérsvið Arnars í þessari ferð í Rússlandi er að lesa
Króatíu, við þekkjum þá vel en það gætu verið ein-
hverjar áherslubreytingar sem Arnar mun þá lesa í.
Roland Andersson – Njósnari
Sá sænski spilar stóra rullu, sér um að fara yfir lið
Nígeríu en þar starfaði hann með Lars Lagerbäck.
Leggur einnig sitt af mörkum á æfingasvæði Íslands.
Davið Snorri Jónasson – Njósnari
Davíð Snorri er í Rússlandi og er að elta bæði Sviss
og Belgíu, það eru andstæðingar Íslands í Þjóðar-
deildinni næsta haust og undirbúningur fyrir það
verkefni er farið af stað.
Friðrik Ellert Jónsson – Sjúkraþjálfari
Friðrik Ellert er reynslumikill sjúkraþjálfari sem hef-
ur haft í nógu að snúast í aðdraganda mótsins og á
meðan á því hefur staðið. Hann var sjúkraþjálfari Vals
á sínum tíma en starfar nú fyrir Stjörnuna. Frá árinu
2005 hefur hann verið viðriðinn íslenska landsliðið. Á
æfingu landsliðsins í Gelendzhik á þriðjudag var hann
með Gylfa Þór Sigurðsson á séræfingu.
Haukur Björnsson – Læknir
Haukur er bæklunarlæknir og hefur hann víðtæka
starfsreynslu, meðal annars við Sahlgrenska-sjúkra-
húsið í Svíþjóð.
Pétur Örn Gunnarsson – Sjúkraþjálfari
Pétur er einn fjögurra sjúkraþjálfara í íslenska teym-
inu en hans áhugamál í sjúkraþjálfun snúa einkum
að bakmeiðslum með áherslu á mjóbak. Pétur hefur
yfir 20 ára reynslu.