Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 24
24 FÓLK 22. júní 2018
Er þitt fyrirtæki
tilbúið fyrir
GDPR?
Skoðaðu málið á
Dattacalabs.com
Stjórnarandstaða
Jákvæðasti þingmaðurinn
Oddný G. Harðardóttir,
formaður þingflokks
Samfylkingarinnar, er
jákvæðasti þingmaður
stjórnarandstöðunnar.
Í 708 atkvæðagreiðsl-
um hefur hún 607
sinnum samþykkt
tillöguna eða í 86%
tilvika.
Aðrir mjög jákvæðir
þingmenn stjórnarandstöð-
unnar eru Ólafur Ísleifsson og Karl
Gauti Hjaltason, þingmenn Flokks fólksins,
sem hafa 592 og 587 sinnum veitt samþykki
sitt sem og Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, sem hefur 591 sinni sagt „já“.
Sá sem hefur sjaldnas sagt „já“, af þeim
sem hafa átt að mæta í allar atkvæða-
greiðslur, er Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata, sem hefur
kosið jákvætt í 409 skipti eða í
58% tilvika.
Neikvæðasti
þingmaðurinn
Sá þingmaður sem er oftast á móti tillögum
kollega sinna, að minnsta kosti hlutfalls-
lega, er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins. Sigmundur Davíð
hefur í 39 skipti þrýst á „nei“-hnappinn í
þeim 548 atkvæðagreiðslum sem hann
hefur tekið þátt í. Það þýðir að hann hefur
svarað neitandi í 7,1% tilvika. Næstur í röð-
inni er vopnabróðir hans, Bergþór Ólason,
sem hefur 39 sinnum kosið á móti málum í
alls 626 atkvæðagreiðslum. Það er hlutfall
uppá 6,2%.
Greiddu ekki atkvæði
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, sat
oftast hjá í atkvæðagreiðslum eða í 15,3%
tilvika. Alls sat Jón Þór hjá í 108 atkvæða-
greiðslum í þeim 708 sem hann átti rétt á
að kjósa í. Þessi afstaða virðist hafa verið
rík meðal þingmanna Pírata því Þórhildur
Sunna (13,7%) og Björn Leví (12,6%) voru
skammt á eftir Jóni Þóri.
Skróparinn
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar, var sá þingmaður stjórnar-
andstöðunnar sem missti af flestum
atkvæðagreiðslunum, alls 394 af 708. Það
þýðir að þingmaðurinn mætti aðeins í 44%
af atkvæðagreiðslum Alþingis. Þorgerður
Katrín tilkynnti fjarvistir fyrirfram í 174 skipti
en í 220 skipti lét hún starfsmenn Alþingis
ekki vita.
Fyrirmyndar þingmaðurinn sem
mætti alltaf
Björn Leví Gunnars-
son, þingmaður
Pírata, var eini
þingmaðurinn
sem aldrei
boðaði forföll
eða skrópaði
í atkvæða-
greiðslum á
Alþingi.
Ríkisstjórnin
Jákvæðasti þingmaðurinn
Willum Þór Þórsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, var jákvæðasti þingmaður
ríkisstjórnarinnar. Alls samþykkti Willum,
væntanlega með bros á vör, 627 tillögur
af 708 mögulegum. Skammt undan voru
gleðigjafarnir Bjarkey Olsen og Steingrím-
ur J. Sigfússon með 626 og 623 jákvæð
atkvæði.
Neikvæðasti þingmaðurinn
Eðli málsins samkvæmt
stóð ríkisstjórnin þétt
saman í mikilvæg-
ustu atkvæða-
greiðslunum. Þess
vegna var heill
hópur þingmanna
sem greiddi 77
sinnum „nei“-at-
kvæði. Það sem sker
úr um sigurvegarann var
sú staðreynd að Páll Magnússon samþykkti
fæst málin, aðeins 551, og því er hann
útnefndur neikvæðasti þingmaðurinn.
Missti af flestum at-
kvæðagreiðslunum
Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra
var sá meðlimur rík-
isstjórnarinnar sem
missti af flestum
atkvæðagreiðslum.
Alls mætti Sigríður
ekki í 275 atkvæða-
greiðslur af 708. Þar með
mætti ráðherrann aðeins í
61% af atkvæðagreiðslum Alþingis.
A
lþingismenn eru komn-
ir í sumarfrí og það eina
sem huggar þjóðina er
eitthvað knattspyrnumót
í Rússlandi. Á heimasíðu Alþing-
is má nálgast atkvæðaskrá þing-
manna frá því að þingið tók til
starfa undir lok síðasta árs og
þangað til sumarfríið skall á. Þar
má sjá hvernig atkvæði þing-
manna féllu, hvort þeir sátu hjá
eða hreinlega skrópuðu í at-
kvæðagreiðsluna. Alls voru at-
kvæði greidd í 708 málum og
gekk yfirgnæfandi meirihluti
þeirra í gegn. Hafa ber í hug að
margar tillögurnar eru í raun ein-
föld smáatriði sem renna í gegn
en síðan er það í stóru málun-
um sem ríkisstjórnin fylkir iðu-
lega saman liði og knýr vilja sinn
í gegn. Þá er dýrt að vera fjarver-
andi við afgreiðslu fjárlaga því
ógrynni atkvæðagreiðslna er í
kringum þá vinnu og því hlaðast
inn fjarvistir í atkvæðaskrá þing-
manna. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Atkvæðaskrá
þingmanna
Willum jákvæðastur og
Þorgerður skrópaði mest