Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Qupperneq 28
28 FÓLK - VIÐTAL 22. júní 2018
nálgun á menntun. Varðandi fram-
haldsskólana, þá held ég að það
sé ekki einu sinni til námskrá fyrir
verknámið. Allt miðar að bóknámi
en það er engin stefna varðandi
annað.“
Femínisti og jafnréttissinni í
víðum skilningi
Anna Kolbrún er mikill jafn-
réttissinni og hefur gegnt trún-
aðarstörfum á því sviði. Í Fram-
sóknarflokknum var hún bæði
jafnréttisfulltrúi og formaður
Landssambands Framsóknar-
kvenna. Hún hefur verið formað-
ur Jafnréttissjóðs síðan 2016 og
á árunum 2013 til 2016 var hún
skipaður formaður aðgerðahóps
stjórnvalda og aðila vinnumark-
aðsins um launajafnrétti á milli
kynjanna.
„Við vorum að úthluta úr Jafn-
réttissjóði í gær og við höfum ver-
ið að reyna að láta hann ganga yfir
landið allt svo hann endi ekki eins
og fálkaorðan, alltaf í 101 Reykja-
vík,“ segir Anna Kolbrún og brosir.
Ertu femínisti?
„Ef femínisti er jafnréttissinni og
ég held að hann sé það, þannig að
já ég er femínisti. En ég er líka jafn-
réttissinni í þessu víða samhengi,
ekki aðeins kynjajafnrétti því það
er aðeins hluti af þessu öllu saman.
Þarna undir er jafnrétti milli aldurs-
hópa, jafnrétti fatlaðra og fleira. Ég
held að við séum öll fylgjandi jafn-
rétti og enginn sé í raun og veru á
móti því. En við þurfum að læra að
hugsa um þessa hluti, það er svo-
lítil æfing eða þjálfun.“
Í sjö manna þingflokki Mið-
flokksins er Anna Kolbrún eina
konan en hún segir samstöðuna í
þingflokknum hafa verið ákaflega
gefandi á liðnum vetri.
„Við erum mjög ólík og ég finn
að strákarnir kunna svolítið að
setja sig saman en þeir eru samt
ekki allir á móti mér. En af því að
ég er eina konan í flokknum verð
ég að vera varamaður í öllum
nefndum og ráðum sem ég er ekki
í af því að það þarf alltaf að tilnefna
bæði karl og konu.“
Anna Kolbrún telur samfélagið
allt stefna í rétta átt þegar kemur
að jafnréttismálum en þó sé margt
sem ennþá er óunnið. Þegar hún
er spurð hvar vanti mest upp á
nefnir hún þann hóp sem mikið
hefur verið í umræðunni undan-
farin ár.
„Það eru fordómar gegn geð-
sjúkum í samfélaginu og aðstæð-
ur þeirra til að taka þátt í atvinnu-
lífinu eru erfiðar. Þó að við séum
með vinnumarkað sem hefur hlut-
fallslega mikið af hlutastörfum þá
er það ekki nóg því að við þurfum
að mæta fólki þar sem það er. Til
dæmis þunglyndir sem geta dottið
út í ákveðinn tíma. Einnig er ég
ekki hrifin af því að það séu til sér-
stakir verndaðir vinnustaðir. Hið
opinbera á að vinna betur með
fyrirtækjum til að koma því fólki
víðar að.“
Nú hefur lengi verið talað um
málefni geðsjúkra og allir virðast
sammála um að aðgerða sé þörf.
Af hverju lagast þessi mál ekkert?
„Það er svo sorglegt að upp-
lifa það að sjá þingsályktun eftir
þingsályktun um aukna sálfræði-
þjónustu í framhaldsskólum, há-
skólum og á fleiri stöðum en
einfalda lausnin er að breyta
reglugerðum og setja þetta undir
hatt Sjúkratrygginga Íslands,“ segir
hún ákveðin.
„Ég hef verið að beita mér fyr-
ir þessu og ekki aðeins eftir að ég
kom inn á þing. Áður átti ég til
dæmis samtal við Kristján Þór Júl-
íusson, þáverandi heilbrigðisráð-
herra, um þetta. Það vita allir að
það er auðvelt að auka aðgengi
fólks að sálfræðingum. En sum-
um finnst þetta kosta of mikið og
geðsjúkir eru því alltaf látnir mæta
afgangi, meira að segja í þessum
blessaða nýja spítala við Hring-
braut. Þeir eiga að vera áfram í
gömlu húsunum sem eru hugsan-
lega ónýt.“
Missti vini úr Framsóknarflokknum
Sigurður Ingi Jóhannsson sigraði
Sigmund Davíð í formannsslag
Framsóknarflokksins á flokks-
þingi 2. október árið 2016 og í
næstum því ár ríkti ógnarjafnvægi
innan flokksins. Þegar boðað var
til kosninga í október síðastliðn-
um og bæði Sigmundur Davíð og
helsti bandamaður hans, Gunn-
ar Bragi Sveinsson, fengu mót-
framboð í forvali, var ákveðið að
kljúfa flokkinn og stofna nýjan,
sem varð Miðflokkurinn. Anna
Kolbrún var einn af stofnmeðlim-
um hans.
Hvernig var stemmningin í
Framsóknarflokknum fyrir skiln-
aðinn?
„Hún var ekki góð og það var
mikil tortryggni. Ef ég var í hópa-
starfi einhvers staðar kom oft ein-
hver frá skrifstofunni og passaði
upp á hvað væri sagt og gert, og
hvernig. Flokkurinn var ekki í lagi
og það var eins og það væri ver-
ið að passa upp á einhverja gull-
kálfa.“
Undanfari Miðflokksins var
Framfarafélagið sem Sigmundur
stofnaði í maí árið 2017 og Anna
Kolbrún var með í því. Samkvæmt
henni var ekki ljóst þá að stofn-
aður yrði stjórnmálaflokkur út frá
því.
Var erfitt að skilja við Fram-
sóknarflokkinn?
„Já og það kom mér á óvart
hversu erfitt það var og mér finnst
ennþá leitt hvernig fór. Þetta var
eins og erfiður skilnaður og við-
brögðin eftir því. Þeir sem sátu
eftir vildu helst ekki tala við okkur
sem fórum yfir í Miðflokkinn og
gjáin dýpkaði.“
Misstir þú vini?
„Já, ég missti vini. En það er
ekki endilega þeirra sök, ég valdi
að fara. Í stað þess að fara í rifr-
ildi, rökræður og leiðindi þá skildi
ég þetta bara eftir og hélt áfram
minn veg.“
Það berast fregnir af hita milli
Framsóknarmanna og Miðflokks-
manna í þinginu. Hvernig upplifir
þú þetta?
„Það eru hörð orðaskipti milli
manna í þingsalnum, til dæm-
is varðandi spítalamálið og hús-
næðisliðinn í verðtryggingunni.
Utan þingsals halda stjórn-
arliðarnir mikið saman og eru
ekki mikið að tala við okkur.“
Ekkert endilega slæmt
að vera í minnihluta
Miðflokkurinn hefur nú unnið tvo
góða sigra á stuttum tíma og er
kominn með öflugan þingflokk og
marga sveitarstjórnarfulltrúa út
um allt land. Engu að síðu komst
flokkurinn aðeins í meirihluta á
einum stað, í Árborg.
Er fólk hrætt við að vinna með
ykkur?
„Það getur verið. Kannski af
því að við hvikum ekki frá pr-
insippunum en við vorum líka
með glænýja oddvita á mörgum
stöðum og þeir eru ekki endi-
lega búnir að læra á hvernig allt
virkar. En það er ekkert endilega
slæmt að vera í minnihluta því að
röddin er komin inn. Miðflokk-
urinn er að ná því að verða sett-
legur flokkur. Við erum að koma
deildum á víðs vegar um landið
og uppbyggingin mun halda
áfram í haust þegar við komum
saman. Mér finnst mikilvægt að
þetta fái að taka þann tíma sem
þarf, okkur liggur ekki neitt á. Við
höfum náð mjög miklum árangri
nú þegar.“
Hvaða málum munt þú helst
berjast fyrir?
„Nú er ég helst að berjast fyr-
ir aðgengi að heilbrigðisþjón-
ustu, númer 1, 2 og 3. Jafnréttis-
málin og menntamálin skipta
mig einnig miklu máli en þau eru
snúnari vegna samspils milli ríkis
og sveitarfélaga,“ segir Anna Kol-
brún sem fer keik inn í sumarið. nUmboðsaðilar: l Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Mikið úrval af
stillanlegum
rúmum
„ Í stað þess að fara
í rifrildi, rökræð-
ur og leiðindi þá skildi ég
þetta bara eftir og hélt
áfram minn veg.
M
Y
N
D
H
A
N
N
A