Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Page 55
TÍMAVÉLIN 5522. júní 2018
geirsgötu 8 / s. 553 1500
Hamingja í
hverri skeið
Hádegistilboð breytilegt
eftir dögum
Hálfnakin
kynfæri
konu í
auglýsingu
Að hneykslast á bikinímyndum
er ekki nýtt af nálinni á Íslandi.
Hausið 1983 vakti auglýsing
um sólarferðir til Kanaríeyja
hörð viðbrögð og kvörtun-
um rigndi inn til Jafnréttisráðs
vegna hennar. Í auglýsingunni,
sem var frá Samvinnuferðum-
-Landsýn, Úrval Útsýn og Flug-
leiðum, mátti sjá neðri helming
konu í bikiníi.
Jafnréttisráð ályktaði að
auglýsingin varðaði við jafn-
réttislög þar sem aðalatriðið í
henni væru „hálfnakin kynfæri
konu“. Auglýsingin væri því
konum til minnkunar og lítils-
virðingar.
Ráðið gerði ekki
athugasemdir við það að birta
ljósmyndir af léttklæddu fólki í
sólarlandaauglýsingum. „Hins
vegar er það ekki sama á hvern
hátt það er gert. Fróðlegt væri
að gera sér í hugarlund hver
viðbrögð fólks yrðu ef sams
konar mynd yrði birt af hálf-
nöktum kynfærum karls í aug-
lýsingu.“
Í
júlí árið 1991 komu hing-
að til lands harðsvíraðir
grjótsmyglarar frá Austurríki,
undir fararstjórn jarðfræðidokt-
orsins Josefs Mörtl. Ferðuðust þeir
hér um í rútu og hjuggu sjaldgæf-
an stein sem lögum samkvæmt átti
að skila til Náttúrufræðistofnunar.
Með þeim í för var þýskur vís-
indamaður sem áður hafði smyglað
geislasteinum og öðru grjóti úr landi.
Það uppgötvaðist þegar greinar eftir
hann birtust í erlendum tímaritum.
Eftirlitsmaður frá Náttúru-
verndarráði fór þegar á eftir
hópnum þegar upp komst hvað
væri í gangi og fann þá á Patreks-
firði með nokkra kassa af grjóti.
Krafðist hann þess að grjótinu
yrði skilað til Náttúrufræðistofn-
unar við litlar vinsældir Austur-
ríkismannanna. Ekki hlýddu þeir
fyrirmælunum að fullu því að
á Ísafirði sáust þeir koma völd-
um sýnum úr landi með póst-
sendingum.
finnsmálin því að þeir sem tengd-
ust því máli tengdust einnig
Klúbbnum og hafði Geirfinnur
sést á tali við einn þeirra á staðn-
um.
Klúbburinn var stofnaður sem
veitingastaður árið 1960 í þriggja
hæða skrifstofuhúsi með kjallara.
Staðurinn var sérlega íburðarmik-
ill og þar var til dæmis vínstúka í
austurlenskum stíl og setustofa
sem minnti á veiðikofa. Seinna
meir þróaðist staðurinn í að vera
skemmtistaður með lifandi tón-
list, oft á öllum hæðum hússins.
Þegar Glaumbær brann árið 1971
tók Klúbburinn við sem vinsælasti
skemmtistaður unga fólksins en
sami veitingamaður, Sigurbjörn
Eiríksson, rak báða staðina.
Klúbburinn var líflegur stað-
ur en ýmis orðrómur fylgdi hon-
um. Talað var um að sprúttsala,
eiturlyfjasala og vændi færi þar
fram. Oft komu þar upp skraut-
legar uppákomur og slagsmál og
lögreglan hafði fasta viðveru fyrir
utan staðinn.
Eftir að staðurinn var tengd-
ur við Geirfinnsmálið árið 1976
breyttist ásýnd Klúbbsins. Þetta
var ekki lengur heitasti staður
unga fólksins heldur varð hann
smátt og smátt að skítugri rokk-
búllu. Hægt og bítandi dró úr að-
sókninni og á níunda áratugnum
var stórum hluta staðarins lokað,
nafninu var breytt og hét þá Sport-
klúbburinn.
Laust eftir miðnætti aðfara-
nótt mánudagsins 3. febrúar árið
1992 fékk slökkviliðið tilkynningu
um að eldur væri laus í Borgartúni
32. Allt tiltækt lið var kallað á stað-
inn og var mikill eldur í stigagangi
hússins. Fimmtán reykkafarar
voru sendir inn, fleiri en nokkru
sinni fyrr, og reyndist slökkvi-
starf erfitt því að búið var að negla
fyrir alla glugga að innanverðu.
Um tvöleytið var búið að slökkva
eldinn en miklar skemmdir urðu
á öllum þremur hæðum hússins.
Lögregla taldi að um íkveikju
hefði verið að ræða þar sem eldur
hafði blossað upp á þremur stöð-
um. Einn maður, sem nýlega hafði
farið af staðnum, var ákærður en
dómarar töldu sök hans ósann-
aða.
Tunglið
Fimmtudagsmorguninn 30. júlí
árið 1998 varð einn af stærstu
brunum í sögu miðborgarinnar
þegar eldur kom upp á skemmti-
staðnum Tunglinu við Lækjargötu
2. Öryggisvörður frá Securitas varð
eldsins var og var strax farið í að
rýma nærliggjandi hús, þar á með-
al íbúðarhús. Einn slökkviliðs-
maður fékk ofan á sig brennandi
bita úr lofti og var þá ákveðið að
athafna sig einungis utan frá.
Strax lék grunur á að um
íkveikju væri að ræða, bæði
vegna þess hversu hratt eldurinn
breiddist út og vegna þess að tóm-
ir bensínbrúsar fundust á staðn-
um. Bæði var eldur í kjallaranum
og á efstu hæðinni. Enginn var
hins vegar ákærður fyrir verknað-
inn.
Lækjargata 2 hýsti kvikmynda-
húsið Nýja Bió frá 1920 til 1987 en
þá var skemmtistaðurinn Lækjar-
tunglið stofnaður. Síðar var nafn-
inu breytt í Tunglið og varð einn
heitasti staður borgarinnar. Þar var
stundum spilað dúndrandi teknó
og kom breska ofursveitin The
Prodigy meðal annars þar fram
árið 1994. Einnig voru þar haldn-
ir rokktónleikar svo sem hinir goð-
sagnakenndu (og alls ekki síðustu)
lokatónleikar HAM sama ár.
Húsið gjöreyðilagðist og var
rifið í kjölfarið. Nýtt hús var reist
á reitnum sem hýsir nú meðal
annars Hard Rock Café og Grill-
markaðinn.
Pravda
Um tvöleytið miðvikudaginn 18.
apríl árið 2007 kom upp eldur í
húsum við Lækjargötu og Austur-
stræti og breiddist hratt út. Eldur-
inn er talinn hafa blossað upp út
frá loftljósi í upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn en síðan læst
klónum í nærliggjandi hús.
Tveir veitingastaðir og
skemmtistaðurinn Café Rosen-
berg skemmdust mikið í brunan-
um en mestu skemmdirna urðu á
Austurstræti 22 þar sem skemmti-
staðurinn Pravda var til húsa. Það
hús gjöreyðilagðist og þurfti að rífa
það tveimur vikum eftir brunann.
Austurstræti 22 var eitt elsta
hús borgarinnar, reist árið 1801,
og um tíma var þar landsyfir-
réttur Íslands. Í húsinu bjuggu
einnig frægar persónur úr Íslands-
sögunni eins og Jörundur hunda-
dagakonungur og Trampe greifi.
Í gegnum tíðina hafa verið bæði
verslanir og veitingastaðir í hús-
inu. Eitt sinn var þar verslun-
in Karnabær og síðar skemmti-
staðurinn Astró. Árið 2003 var
skemmtistaðurinn Pravda opnað-
ur í húsinu.
Húsið var endurbyggt í upp-
runalegum stíl og hýsir í dag
veitingahúsið Caruso.
Batteríið
Einn skammlífasti skemmtistaður
Reykjavíkur var Batteríið sem stað-
sett var í Hafnarstræti 1 til 3, við
hliðina á Fálkahúsinu svokallaða.
Vorið 2009 var Batteríið stofnað
og var Eyjólfur Kristjánsson tónlist-
armaður framkvæmdastjóri þess.
Staðurinn var ekki ætlaður fyrir
ungmenni heldur var áherslan sett
á fólk á fertugsaldri og upp úr.
Tæpu ári síðar, þriðjudags-
morguninn 23. mars árið 2010, var
allt tiltækt lið slökkviliðs kallað út
þar sem eldur hafði komið upp í
Batteríinu. Slökkvistarf gekk vel
en nokkur hætta skapaðist vegna
gaskúta sem geymdir voru innan-
dyra en það tókst að koma kútun-
um út og kæla þá.
Bruninn var blóðtaka fyr-
ir rokkhljómsveitina Mínus sem
höfðu haldið tónleika á staðnum
á föstudeginum. Hljóðfærin voru í
geymslu á staðnum þegar bruninn
varð og skemmdist stór hluti þeirra.
Krummi Björgvinsson sagði tjónið
ekki aðeins fjárhagslegt heldur tilf-
inningalegt líka.
Tryggingamál staðarins enduðu
fyrir Hæstarétti og var Verði gert
að greiða eigendum Batterísins 20
milljónir króna en tryggingafélag-
ið hafði gert athugasemdir við um-
fang tjónsins. n
Smygluðu grjóti
með póstinum