Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 56
56 MENNING 22. júní 2018
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.
Ísland í
sjónvarpi
og kvik-
myndum
n Öllu tjaldað til í nafni
leyndar við tökur á síðustu
seríu Game of Thrones
N
ú ríkir heljarinnar leynd
yfir nýjustu og jafnframt
síðustu þáttaröð Game
of Thrones, en heimild-
ir DV herma að tökulið sé statt
á Íslandi um þessar mundir og
hafi lagt undir sig Þingvelli. „Lög-
reglumótorhjól loka stóru svæði
og tökuliðið hefur hent upp stóru,
svörtu tjaldi yfir gjánna við Þing-
vallaveg. Það var rosalega mikið
af krúi þarna og þeir voru að færa
snjó af fjallinu inn í gjána til þess
að skreyta leikmyndina. Þetta lið
mætir hingað árlega og yfirleitt
er ekki eins mikil leynd, en nú er
bókstaflega búið að tjalda öllu til
og enginn fær að vita neitt,“ segir
ónefnd heimildarmanneskja sem
varð vitni að tökunum.
Það hefur ekki leynt sér að stór-
ir kvikmynda- og sjónvarpsfram-
leiðendur eru duglegir að slást um
náttúruumhverfi Íslands og mæt-
ir hingað ár hvert hver risafram-
leiðslan á fætur annarri. Á undan-
förnum árum hefur verið aldeilis
blómstrandi tíð í flakki framleið-
enda og tökuliða til þess að festa
íslenskt landslag á filmu. Þá þýð-
ir ekki annað en að skoða aðeins
hvað annað hefur brugðið fyrir á
klakanum góða síðustu árin. n
Eyðilönd, framandi
plánetur og Afghanistan:
Allt tómt
Kvikmyndin Bokeh frá 2017
er mörgum ókunn, en í þeirri
mynd njóta tvær ungar
stjörnur samverunnar á eyði-
legu Íslandi. Með aðalhlut-
verkin fara Maika Monroe og
Matt O’Leary og segir myndin
frá bandarísku pari sem
ákveður að fara til Íslands
í frí. Skömmu eftir komu
hingað bendir allt til þess að
annað fólk sé horfið af yfir-
borði jarðar. Reykjavíkurborg
fær þarna að njóta sín ásamt
Bláa lóninu og fleiri stöðum,
þó raunsæi virðist ekki alveg
stemma við draumakennda
andrúmsloftið, sérstaklega
þegar engisprettur fara að
láta í sér heyra.
Dystópía og
sambandsslit
Aldeilis fór lítið fyrir stórmyndinni Oblivion
við frumsýningu og má segja að heildarað-
sókn hafi ekki mætt væntingum aðstand-
enda. Fram að þessari framtíðar-dystópíu-
mynd með Tom Cruise hafði engin erlend
kvikmynd nýtt sér landslag Íslands í
jafnstóru burðarhlutverki. Tökur stóðu
yfir í júní 2012 og var mest megnis tekið
upp á tveimur stöðum, annars vegar við
fjallgarðinn Jarlhettur við Eystri Hagafells-
jökul í Langjökli, og hins vegar við gíginn
Hrossaborg á Mývatnsöræfum. Tökurnar
voru þó að öllum líkindum ógleymanlegar
fyrir aðalleikarann sjálfan enda þótti það
vera sögulegt slúður þegar fyrrverandi eig-
inkona hans, Katie Holmes, skildi við hann
á meðan á tökum stóð. Síðasta myndin
sem náðist af fyrrum stjörnuparinu var við
Laugaveginn þetta sumar.
Svartur spegill
og lestarteinar
Hin stórvinsæla sjónvarpsþátta-
sería Black Mirror gaf út heilan
þátt – Crocodile að nafni – sem
var allur tekinn upp á Íslandi.
Umhverfið leyndi sér ekki og fékk
bæði höfuðborgin og lands-
byggðin að njóta sín til fulls. Hins
vegar hefur ímyndaði hliðstæðu-
heimur Black Mirror eitthvað
rænt Íslandi frá rótum sínum og
einkennum, þar sem götuheitin
voru öll erlend og vísuðu öll
merki á að hér væri um spegil-
mynd að ræða, en samkvæmt
þessum þætti eru lestarbrautir
daglegt brauð í umhverfinu.
Umdeilt verk Íslandsvinar
Fjölmargir Íslendingar komu að gerð kvikmyndarinnar
Noah um sumarið 2012. Biblíuepík leikstjórans Darren
Aronofsky var svo sannarlega ekki allra, en í forgrunni
sást hreinræktuð náttúra Íslands í allri sinni dýrð. Tökur
áttu sér stað á Djúpavatnsleið, við Sandvíkurklof, Lamb-
hagatjörn, Sandvík, Raufarhólshelli, Mývatn, Hamra-
garðaheiði, í Svartaskógi og fleiri stöðum. Fer því ekki á
milli mála að Aronofsky er sannur Íslandsvinur í orðsins
fyllstu merkingu. Þess má einnig geta að Russell Crowe
varð háður íslenska skyrinu á meðan á tökum stóð.
Khal Drogo talar
bjagaða íslensku
Hingað til er ofurhetjusamkoman Justice
League dýrasta framleiðsla sem hefur
nokkurn tímann sent tökulið til Íslands.
Hins vegar var þetta ekki í fyrsta skiptið
sem kvikmynd með Leðurblökumann-
inum var tekin upp hér á landi, nema jú,
þetta er fyrsta skiptið sem öllum feluleik
eða blekkingum er sleppt og landið fær
að njóta sín eins og það er. Til að innsigla
heiðurinn sést Bruce Wayne (Ben
Affleck) heilsa upp á Aquaman (Jason
Momoa) á Djúpavík. Ingvar E. Sigurðsson
dúkkar þarna upp sem grafalvarlegur
bæjarstjóri og reynir meira að segja
Vatnsmennið eftir bestu getu að spreyta
sig í íslensku tungunni, með afleitum
árangri. Íslenskum statistum virtist þó
vera skemmt í ljósi hlátursskröltsins
sem heyrðist í framhaldi af háfleygum
íslenskufrasa hetjunnar.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is