Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 30
Hafnarfjörður 29. júní 2018KYNNINGARBLAÐ Hurðir og gluggar í hálfa öld Gluggar og hurðir eru okkar ær og kýr, við erum ekki í inn-réttingum heldur sérhæfum okkur í þessu. Einhvern veginn hefur þetta þróast þannig að við vinnum mest fyrir einstaklinga og algengustu verkefnin eru hurða- og gluggasmíði í einbýlishús eða lítil fjölbýlishús,“ segir Jónas Sigurðsson, eigandi SB Glugga- og hurðasmiðju. Starfsem- in byggir á afar traustum grunni en fyrirtækið stofnaði faðir Jónasar, Sigurður Bjarnason, árið 1974, og starfaði Jónas í fjölskyldufyrirtækinu frá unga aldri en keypti fyrirtækið af föður sínum árið 1991. „Við erum mikið í að smíða mjög vandaðar og dýrar hurðir þar sem fólk vill fá öðruvísi útlit og leggja mikið í anddyri hússins. Fjölbreytnin hefur aukist mikið í þessum efnum,“ segir Jónas en fyrirtæki hans leggur áherslu á sérsmíði og gæði. Gluggar og hurðir láta mikið á sjá með tímanum í íslenskri veðráttu og raunar hvar sem er í heiminum en SB Glugga- og hurðasmiðja legg- ur þunga áherslu á vönduð efni og traust vinnubrögð í þessum efnum. „Regn og vindur slítur gluggum og hurðum en langverst er samt sólin. Með tímanum eyðileggja útfjólubláir geislar timbur, járn og hvað sem er. Það er nefnilega ekki til neitt sem er viðhaldsfrítt og það fer mjög í taugarnar á mér að sjá yfirlýsingar um slíkt í auglýsingum,“ segir Jónas en fyrirtæki hans smíðar glugga og hurðir ávallt með langtímaendingu í huga: „Þetta er allt hágæðavara sem við framleiðum. Við erum ekki að eltast við þetta ódýrasta og sem dæmi erum við eingöngu með ryðfríar lamir á hurðum og svo framvegis. Við keyrum á gæðum en ekki á lægsta verðinu og til lengri tíma er það alltaf hagstæðast fyrir kaupandann.“ Starfsmenn hjá SB Glugga- og hurðasmiðju eru um tíu talsins og það er ávallt nóg að gera. Það gefur hins vegar auga leið að verkefnin stóraukast á vorin og sumrin. Fyrir þá sem þurfa að endurnýja útihurðir eða glugga á næstunni hlýtur SB Glugga- og hurðasmiðja að vera áhuga- verður kostur, eða eins og Jónas segir: „Það hlýtur að segja sitt að maður hafi unnið í sama faginu í yfir 40 ár.“ SB Glugga- og hurðasmiðja er til húsa að Hvaleyrarbraut 39, Hafnarfirði. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 565-4151 og heimasíða er sbgluggar.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.