Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 19
KYNNING
Fyrirtækið Goddi, Auðbrekku 19, Kópavogi, er með afar fjölbreytt vöruúrval og er meðal annars
framarlega í sölu á heitum pottum,
lokum yfir heita potta, infrarauðum
saunaklefum og hitaklefum, auk hefð-
bundinna gufubaða og ýmiss konar
búnaðar þeim tengdum.
Goddi hefur getið sér gott orð fyrir
að selja vandaða heita potta á afar
hagstæðu verði en um er að ræða
heita potta af tegundunum Hydro
og Ocean. Þetta eru afar vandaðir
pottar með loki úr sterku leðurlíki og
hlífin er gerð fyrir íslenskt veðurfar.
Núna hefur verðið lækkað enn meira
því Goddi leggur áherslu á að skila
áhrifum af hagstæðu gengi beint út
í verðlagningu sína. Verð á potti með
loki og tröppu er aðeins 620.000
krónur.
Einnig eru í boði lok á heita potta
í þremur litum og stærðunum
220×220 200×200 cm, 208×208
cm og 213×213 cm á aðeins 58.000
kr. – einnig veruleg verðlækkun – en
þessi lok henta einstaklega vel fyrir
íslenskra veðráttu. Lokin eru sam-
anbrjótanleg í miðju, með góðum
festingum og svuntu, eru létt og
meðfærileg.
Infrarauðir saunaklefar eru áhuga-
verð uppfinning en Goddi býður
þessa klefa á mjög hagstæðu verði,
eða frá aðeins 180 þúsund krón-
um. Hægt er að fá klefa sem eru frá
tveggja manna upp í fjögurra manna.
Infrarauðir geislar, eða IR-greislar,
hafa ýmsa kosti fyrir heilsu manna, til
dæmis örva þeir líkamann sem getur
brennt allt að 600 hitaeiningum á 30
mínútum og fólk svitnar þrefalt meira
en í hefðbundnu saunabaði. IR-geisl-
ar örva æðakerfið og auka blóðflæði,
víkka æðar, lækka blóðþrýsting og fá
hjartað til að slá hraðar, sem styrkir
og eflir hjartavöðvann. IR-geislar eru
mikið notaðir til lækninga, við tognun,
stirðleika í liðum og öðrum vöðva-
verkjum, og þeir fjarlægja mjólkursýru
og koldíoxíð úr vöðvum.
Ítarlegri fróðleik um IR-geisla og
IR-saunabaðklefa má finna á heima-
síðu Godda, goddi.is
Goddi býður líka upp á mikið úrval
af hefðbundnum saunaböðum frá
finnska gæðaframleiðandanum
Harvia. Er þar bæði um að ræða
heilu gufuböðin og einstaka hluta
þeirra og fylgihluti. Gott er að fá
ráðgjöf á staðnum um hvað til þarf
og hvaða kostir eru hagstæðastir fyrir
hvern og einn viðskiptavin.
Goddi
Auðbrekku 19
200 Kópavogur
Símar: 544-5550 / 822-4150
goddi@goddi.is
Goddi á Facebook
Hágæða heitir pottar á enn lægra
verði – infrarauðir saunaklefar