Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 10
10 29. júní 2018FRÉTTIR Neita að svara um traust til lögregluþjóns í starfi Aðalbergur Sveinsson starfar enn sem lögreglumaður þrátt fyrir fangelsisdóm A ðalbergur Sveinsson, lögregluþjónn hjá Lög- reglunni á höfuðborgar- svæðinu, var dæmdur í 32 daga skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti Íslands árið 2005. Sam- kvæmt dómsgögnum og rannsókn innra eftirlits lögreglunnar kom fram að Aðalbergur hafi sagt ósatt við rannsókn málsins ásamt því að aðrir lögregluþjónar, sem voru að bera vitni fyrir dómi, höfðu ekki sagt rétt frá um atburði málsins. Þrátt fyrir þennan dóm í Hæsta- rétti hélt hann starfi sínu hjá lög- reglunni. DV hefur fjallað um mál- efni Aðalbergs undanfarið, meðal annars stigu þrjár stúlkur fram á forsíðu blaðsins, og sögðu frá meintum kynferðisbrotum gegn sér. Allar lögðu þær fram kærur til lögreglunnar, en engin af þessum þremur kærum leiddi til ákæru Ríkissaksóknara. Engin svör fást frá lögreglu Samkvæmt grein 28a í lögreglu- lögum 90/1996 kemur eftirfarandi fram: „Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hef- ur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að al- menningsáliti eða sýnt af sér hátt- semi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða al- mennt að njóta.“ Þessi viðbótar- grein var samþykkt á Alþingi árið 2014. DV óskaði eftir viðtali við sitj- andi lögreglustjóra á höfuðborgar- svæðinu, Huldu Elsu Björgvins- dóttur, til þess að ræða hvernig Aðalbergi væri stætt í starfi í ljósi fangelsisdómsins sem hann hef- ur hlotið. Neitaði Hulda að gefa DV viðtal. Þegar hún var spurð hvort yfirstjórn lögreglu beri fullt traust til Aðalbergs í starfi hjá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu hætti hún að svara tölvupóstum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð- ist ekki frekar í Huldu Elsu vegna málsins. Misvísandi svör frá stofnunum Einnig hafði DV samband við dómsmálaráðuneytið og ríkis- lögreglustjóra vegna máls Aðal- bergs. Svo virðist sem ríkislög- reglustjóri telji sig ekki hafa borið ábyrgð á því að svipta lögreglu- menn embættishlutverki sínu á sínum tíma og segir í svari til DV: „Það er ekki rétt orðnotkun að rík- islögreglustjóri hafi séð um starfs- mannamál lögreglunnar fram að lagabreytingu árið 2014. Það er of víðtæk orðnotkun. Lögreglustjór- inn í Reykjavík, þar sem viðkom- andi lögreglumaður starfaði, fór með starfsmannamál síns emb- ættis.“ Þetta kemur ekki heim og saman við svör frá dómsmálaráðu- neytinu því í svari frá ráðuneytinu er sagt: „Eins og fram hefur kom- ið færðist skipunarvald almennra lögreglumanna frá ríkislögreglu- stjóra til lögreglustjóra viðkom- andi embætta árið 2014. Fyrir þann tíma var skipunarvaldið, þar á meðal ákvarðanir um sviptingu embættis og þess háttar, í hönd- um ríkislögreglustjóra.“ Svo virð- ist sem að misræmi sé á túlkunum ríkislögreglustjóra og dómsmála- ráðuneytisins í þessu máli. Verklagsreglur virðast ekki vera alveg á hreinu DV hafði einnig samband við að- allögfræðing Lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu og spurðist fyrir um hverjar séu starfsreglur Lög- reglunnar á höfuðborgarsvæð- inu að vera með lögreglumenn í vinnu sem hafa gerst brotleg- ir við hegningarlög eða önnur lög og hvort starfsreglur séu í sam- ræmi við áðurnefnda grein 28a í lögreglulögum. „Unnið hefur ver- ið eftir ákveðnu verklagi hjá LRH varðandi þessi mál samkvæmt vinnulýsingum sem hafa verið í vinnslu. Ég get upplýst þig um að vinna hefur staðið yfir hjá emb- ættinu að undanförnu að breyta þessum vinnulýsingum og setja upp skilgreindar verklagsreglur sem tekur mið af skyldum emb- ættisins skv. framangreindum lög- um, því vinnulagi sem viðhaft hef- ur verið og þeim breytingum sem gerðar hafa verið nýlega á lög- reglulögum“, segir í svari frá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Rétt er að taka fram að meira en 3 ár eru liðin frá breytingum á lög- reglulögum. Nú síðast í þessum mánuði var lögreglumanninum Sigurði Árna Reynissyni vísað frá störfum hjá Lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu eftir að hafa fengið 60 daga skilorðsbundinn fangelsis- dóm. Viðurkenndi Sigurður brot sín fyrir dómi. Samkvæmt heim- ildum DV furða margir sig inn- an lögreglunnar á því hvernig það geti verið að Aðalbergur hafi feng- ið að halda starfi sínu innan lög- reglunnar með fangelsisdóm á bakinu. n „Samkvæmt heim­ ildum DV furða margir sig innan lög­ reglunnar á því hvern­ ig það geti verið að Aðal­ bergur hafi fengið að halda starfi sínu innan lögreglunnar með fang­ elsisdóm á bakinu Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is Aðalbergur Sveinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.