Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 42
Suðurfirðir 29. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
Það er eitthvað sérstakt við plokkfiskinn á Hótel Bláfelli og af mörgum vinsælum réttum er
þetta langvinsælasti réttur staðarins
og hefur alltaf verið. „Fastakúnnar
margir – til dæmis atvinnubílstjórar
sem koma hingað á hálfsmánaðar-
fresti – segja að þetta sé besti plokk-
fiskur landsins. Ég fullyrði ekkert um
það, það er víða í boði góður matur,
en þetta er það sem menn segja,“
segir Friðrik Árnason, eigandi Hótel
Bláfells.
Hótel Bláfell er staðsett á Sólvöll-
um 14 á Breiðdalsvík og er klárlega
einn helsti veitinga-
staðurinn á Aust-
urlandi. „Í hádeginu
keyrum við mikið á
gömlum íslensk-
um heimilismat,
íslenskri kjötsúpu
og plokkfiski,“ segir
Friðrik. Í heildina
liggur áherslan
helst á ferskum
fiski og lamba-
kjöti. „Fiskurinn
kemur úr sjónum
hérna í kring og
lambakjötið frá
nærliggjandi
sveitabæjum,“
segir Friðrik og
matargestir
kunna vel að
meta að fá þessar afurðir beint frá
býli. Friðrik segir að erlendir ferða-
menn sæki meira í fiskinn en hjá
Íslendingum séu hamborgarar sívin-
sælir en Bláfell býður upp á rómaða
hamborgara.
Ekki erfitt eða dýrt að fá gistingu
Hótel Bláfell hefur verið í samfelldum
rekstri frá árinu 1983, eða 35 ár, og
er Friðrik fjórði eigandinn. Hann keypti
staðinn fyrir tíu árum. Margt hefur
breyst á þeim tíma, t.d. hefur orðið
mikil fjölgun erlendra ferðamanna.
„Aðallega hefur annatíminn lengst,
hann nær núna yfir 5–6 mánuði í
stað tveggja til þriggja mánaða áður.
Hins vegar er sú breyting að verða í
ár að það er ekki allt lengur uppbók-
að á gististöðum úti á landi á sumrin
og verðið er ekki hátt lengur. Sífelldar
fréttir um okur snúast oft um hátt
verð á vatnsflösku eða kökusneið í
einhverri sjoppu. Veruleikinn núna er
hins vegar sá að það er ekki dýrt að
gista á innlendum hótelum á sumrin
og það eru laus pláss,“ segir Friðrik.
Hótel Bláfell er með um 90 gisti-
rými í 37 herbergjum og leigir því til
viðbótar út tvær íbúðir sem henta
til dæmis vel fyrir fjölskyldur. Það er
óþarfi fyrir þá sem vilja ferðast um
Austurland í sumar að vera með
fellihýsi í eftirdragi því það er víða
laus gisting á viðráðanlegu verði – til
dæmis á Hótel Bláfell.
Veislusalur fyrir 350 manns
Til hliðar við rekstur hótelsins og
veitingastaðarins er Friðrik með
öfluga veisluþjónustu í gamla frysti-
húsinu á staðnum og veislusalurinn
þar rúmar 350 manns. Sjá nánar á
Facebook-síðunni Frystihúsið. – Sjá
nánar um Hótel Bláfell á Facebook-
síðunni Hótel Bláfell. Einnig er hægt
að fá nánari upplýsingar og bóka
gistingu í síma 475 6770.
HÓTEL BLÁFELL:
Besti plokkfiskur á landinu?