Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 25
KYNNING Ég er búinn að skrifa um nokkra veitinga- og gististaði hringinn í kringum landið, marga góða og suma minna góða, en ég hef alltaf jafn gaman af þessu. Nú er það Bragginn í Nauthólsvíkinni sem er spennandi viðbót og væntanlega eini veitingastaður sem er í bragga í dag. Braggastíllinn á sér nokkuð djúpar rætur og alveg aftur í fyrri heims- styrjöldina þegar þessi einfalda og ódýra lausn kom fram á sjónarsviðið í hernaði, en það er önnur og lengri saga. Bragginn „okkar“ er staðsettur á besta stað Nauthólsvíkur og á eflaust eftir að setja stóran svip á allt mannlíf þar enda verulega skemmtileg viðbót við þessa útivistarperlu. Það er frábært framtak Reykjavíkurborgar að hafa varðveitt þennan „síðasta“ bragga flugvallarsvæðisins en hernámssagan öll og braggalíf íslensku þjóðar- innar eftir hernámið er ákaflega merkilegt tímabil. Fyrir þá sem ekki hafa komið inn í bragga þá er hér kjörið tækifæri til að stíga inn í einn slíkan. Bragginn er flott „konsept“ og hér eru menn sem vita hvað þeir eru að gera. Matseðillinn er mjög fjölbreyttur og þar er hægt að finna spennandi rétti við allra hæfi. Það er sama hvort verið sé að rölta í góða veðrinu með barnahópinn eða bara löngun vakni í eitthvað sætt eða gott. Verðlagning tekur einnig mið af fjárhag há- skólanema. Verðlagningin er jafnframt fjöl- skylduvæn og eitthvað sem flestir geta ráðið við enda er þetta hugsað sem vingjarnlegur fjölskyldu/úti- vistarstaður þar sem gaman er að stoppa annaðhvort inni eða í frá- bærri útiaðstöðu. Flottur staður, spennandi matseðill og kærkomin viðbót við svæði sem er að verða verulega skemmtilegt. Það er Daði Agnarsson sem er rekstrar- aðili Braggans, en jafnframt rekstr- araðili veitingastaðarins á BSÍ, Mýrin Mathús (áður Fljótt og gott) frá árinu 2011. Flottur staður í Nauthólsvík BRAGGINN:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.