Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 46
46 29. júní 2018FRÉTTIR S kólphreinsistöðin í Kletta- görðum vinnur úr að með- altali 112 milljón lítrum af skólpi á hverjum sólar- hring Allt þetta magn af skólpi inniheldur ekki bara það sem við erum vön að skila af okkur í kló- settin heldur einnig allt sem fer, viljandi eða óviljandi, niður eld- húsvaskinn þinn eða niðurföllin á götunum. Eitt stærsta vandamálið við skólphreinsun landsins nú um stundir eru svonefndir blautklút- ar sem íbúar landsins sturta nið- ur í tonnatali. Þá hafa sorpkvarnir í eldhúsvöskum verið að ryðja sér til rúms hér á landi á undanförn- um árum og það skapar ný vanda- mál. Kerfið okkar er einfaldlega ekki byggt fyrir mikið magn matar- afganga. Það eykur gífurlega álag á hreinsistöðvar og matarafgangar í lélegum lögnum skapa veislu- borð fyrir frekar óvinsæl nagdýr, rottur. DV leit við á hreinsistöðina í Klettagörðum sem Veitur reka til að sjá hvað er að fara meðal annars niður klósett landsmanna. Um þrjú hundruð tonn af úrgangi sem á alls ekki heima í skólpinu okkar er árlega síað út í þessari hreinsistöð. Það fyrsta sem kemur á óvart er hve snyrtileg hreinsistöðin er. Lyktin er þó alls ekki sú besta og þyrfti ansi mikið af ilmspreyi til að gera lífið bærilegt innandyra. Eft- ir að blaðamaður hafði klætt sig í búning sem er mögulega hann- aður til að lifa af eiturefnaárás eða ragnarök uppvakninga hófst förin um stærstu úrgangsstöð landsins. Það sem kemur fljótt upp í hugann hjá manni er hversu rosalega mik- ið magn af vatni við notum í okk- ar daglega lífi, eða heila 270 lítra af vatni á dag á hvert og eitt okk- ar, og hversu mikið magn af mann- legum úrgangi við erum að dæla í sjóinn. Ferlið byrjar á því að sand- gildrur grípa allan sandinn sem er til dæmis notaður við hálkuvarnir á göngustígum. Fiskurinn Undri Eftir að sandurinn hefur ver- ið síaður út tekur við það allra versta. Gildra sem er hönnuð til að ná öllu sem á ekki heima í skól- plögnum borgarinnar, hvað þá í sjónum okkar. Þessi gildra gríp- ur til dæmis dömubindi, mataraf- ganga, blautþurrkur og aðra hluti. Blautþurrkurnar eru langstærsta vandamálið, þar sem þær geta stíflað og jafnvel látið risastórar dælurnar stöðvast. Ef það er eitt- hvað sem starfsfólki stöðvarinnar finnst leiðinlegt þá er það að þurfa að þrífa að því virðist endalaust magn af þessum vágesti úr píp- um og dælum stöðvarinnar. Margt forvitnilegt hefur fundist í þessum gildrum en þar ber hæst gullfisk- urinn Undri. Hann er nú lukkudýr skólphreinsistöðvarinnar og hefur verið það undanfarin ár. Einstak- lingurinn sem er með samvisku- bit yfir því að hafa sturtað niður gæludýri barnsins síns, mögulega vegna þess að hann nennti ekki að vera stöðugt að þrífa búrið, getur andað léttar. Gullfiskurinn Undri er ekki það eina undarlega sem fundist hefur í þessum gildrum, má þar til dæmis nefna farsíma, kreditkort, ökuskírteini, leikfanga- bíla og jafnvel gervitennur. Eftir að vatnið hefur farið í gegnum gildrurnar tvær er kom- inn tími til að skafa alla fitu af vatninu. Og trú- ið mér, það er mikið af fitu sem þarf að skafa af. Minnir sá tankur helst á ef Hitler hefði byggt inn- anhússundlaug í byrginu sínu í Berlín. Þegar því ferli er loksins lokið er „hreina skólpinu“ dælt fimm og hálf- an kílómetra fyr- ir utan strönd Reykjavíkur. Gæti sú staðsetning mögulega verið einn besti staður landsins til veiða ýsu. En við skul- um ekkert ræða það. n KLÓSETT ERU EKKI RUSLAFÖTUR n DV heimsótti skólphreinsistöðina í Klettagörðum n Líklega er blaðamaður ágætlega geymdur þar„Gullfiskurinn Undri er ekki það eina undarlega sem fundist hefur í þessum gildrum, má þar til dæmis nefna farsíma, kreditkort, öku- skírteini, leikfangabíla og jafnvel gervitennur. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is Gullfiskurinn Undri og vinir hans. Páll og Íris starfsmenn Veitna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.