Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 31
Hafnarfjörður 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Best geymda leyndarmálið í
Hafnarfirði (þó víðar væri leitað)
Einstaklingur eins og ég sem býr, starfar og nýtur sín í póst-númerum 101, 5 og 8, þar sem
veitingastaðir eru á hverju strái og
svo margir að maður nær aldrei að
fara hringinn og prófa þá alla, telur
sig kannski ekki hafa ástæðu til að
leita lengra. En þegar vinkona mín
bauð mér með sér til Hafnarfjarð-
ar að kíkja á veitingastaðinn VON
Mathús og bar þá sló ég að sjálf-
sögðu til, enda matur og góður fé-
lagsskapur alveg frábær samsetning.
Staðurinn lætur ekki mikið yfir sér
utan frá, hvítmálað hús með litlu skilti
við Strandgötuna í Hafnarfirði og
kannski margir bílstjórar sem þjóta
um götuna taka ekki eftir honum.
(Þjónninn okkar sagði okkur hins
vegar að þegar hlýnaði í veðri
sæti fólk úti fram eftir kvöldi
og búið væri að stækka úti-
svæðið til að fleiri gætu setið
úti. Það er einmitt frábært
útsýni út á sjóinn og höfnina
og við ákváðum auðvitað
að heimsækja staðinn aftur
seinna og sitja þá úti.)
Þegar inn er komið tek-
ur við allt önnur stemning,
bjartir og hlýir litir, inn-
réttingar og munir á veggjum
og í hillum í anda sjómennsk-
unnar og opið inn í eldhús
þannig að hluti gesta getur
fylgst með eldamennskunni.
Kósí og afslöppuð stemn-
ing og alls konar hópar að
borða, foreldrar með börn
sín, vinkvennahópar og pör.
Þjónarnir voru tveir á
vakt, tvær dömur sem voru
með allt á hreinu og vissu
hvað þær væru að bjóða
upp á, svöruðu öllum spurningum,
snöggar að afgreiða, glaðværar og
skemmtilegar. Sú sem vísaði okkur til
sætis bauð okkur kokteil fyrir matinn
og benti okkur á að þriðjudagar væru
kokteiladagar, ef við vildum koma
aftur á þeim degi. Við ákváðum að
vera ekkert að flækja kvöldið og leyfa
henni einfaldlega að ráða, bæði drykk
og mat.
Áfengur heilsudrykkur
kemur á óvart
VON á krana var kokteill-
inn sem við fengum; gin,
rauðrófusafi,engifer, kar-
dimommur, sýróp og sítróna.
Hljómar sérkennilega og fyrir
utan ginið óþarflega hollt
fyrir kokteil, en kom á óvart.
Mjög góður fyrir þá sem
drekka sterkt vín og reif alveg
vel í bragðlaukana en ekki of
mikið samt.
Íslensk matargerð
Matseðillinn samanstendur af
íslensku hráefni, sumt, eins og
fiskurinn, sem kemur beint úr
næsta húsi, Hafinu sem er við
höfnina. Þjónninn sagði okkur
líka að matseðillinn tæki breyting-
um eftir árstíðum og því er hægt að
koma aftur og aftur og upplifa og
prófa eitthvað nýtt.
Það skal tekið fram að þegar litið
er yfir matseðilinn þá er margt þar
sem fyrir gikki lítur skringilega út, eins
og til dæmis rauðrófan, sem var einn
af forréttunum og kom fyrst á borðið
ásamt keilu ,ceviche‘. Við vinkonurnar
erum báðar af kynslóð sem var alin
upp á soðinni ýsu með kartöflum og
sósu og höfum hvorugar haft mikla
hæfileika til að elda flóknari fiskrétti
en það. Við ákváðum hins vegar
eftir forréttinn að það yrði að verða
breyting á því.
Rauðrófan var með furuhnetum,
rósmarín, fennikku og toppkáli og
keilan með piparrót, sýrðum rjóma,
agúrkum og sólblómafræjum. Hér
kom líka aðeins mismunandi smekk-
ur í ljós, vinkonan kláraði rauðrófuna
upp til agna og ég keiluna, og ég er
grínlaust búin að hugsa um hana síð-
an. Og er alltaf að bíða eftir að ein-
hver stingi upp á að fara út að borða,
svo ég geti stungið upp á Von.
VON MATHÚS: