Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 56
56 TÍMAVÉLIN 29. júní 2018 geirsgötu 8 / s. 553 1500 Hamingja í hverri skeið Hádegistilboð breytilegt eftir dögum 7 50.000 þúsund manns lét- ust í bandarísku borgara- styrjöldinni á þeim fjórum árum sem hún stóð yfir en það var frá 1861 til 1865. Allt fram á þessa öld var talið að 618.000 manns hefðu fallið í stríðinu en nýjar rannsóknir sýna að fjöldinn var vanmetinn. Allt að 850.000 segja sumir en 750.000 er sú tala sem margir fræðimenn hallast að. Talið var að um 360.000 Norðurríkjamenn hefðu fallið og 258.000 Suðurríkjamenn. Talið er að mannfall Suður- ríkjanna hafi verið stórlega van- metið. Þetta hafði að vonum mikil áhrif á bandarískt samfélag. Flestir hinna föllnu voru karl- menn og eftir stóðu ekkjur og tugir þúsunda munaðarlausra barna. K lukkan 15.23 þann 31. maí 1970 varð gríðar- lega öflugur jarðskjálfti undan ströndum Perú en styrkur hans mældist 7,9. Skjálftinn hefur verið nefndur The 1970 Ancash earthquake (Ancash-jarðskjálftinn 1970). Hann fannst í borginni Chiclayo í norðurhluta Perú og allt til höf- uðborgarinnar Lima í rúmlega 650 km fjarlægð. Gríðarlegt tjón varð í skjálftanum og þá sérstak- lega í strandbæjum nærri upp- takasvæði skjálftans og í Santa River-dalnum. Það jók á eyði- legginguna að byggingatæknin var víða ekki upp á marga fiska og mörg hús höfðu verið reist á óstöðugu undirlagi. Tugir þús- unda manna létust og slösuð- ust þegar hús hrundu. Skjálftinn varði í um 45 sekúndur. Áhrifa- svæði skjálftans var um 83.000 ferkílómetrar en það er stærra en Holland og Belgía til samans. Skjálftinn fannst einnig í mið- og vesturhluta Brasilíu og í Ekvador. Lítils háttar tjón varð þar en ekkert í líkingu við það sem varð í Perú. Gríðarlegt tjón varð á innviðum og efnahagslegt tjón var metið á rúmlega hálf- an milljarð bandaríkjadollara. Borgir, bæir, þorp, heimili fólks, fyrirtæki, opinberar byggingar, skólar, raflagnir, vatnsveitur, fráveitur og ýmislegt annað skemmdist mikið eða eyðilagð- ist í skjálftanum. Í Chimbote, Carhuaz og Recuay eyðilögð- ust allt að 90 prósent bygginga en um þrjár milljónir manna bjuggu þar. Björgunarstarf var erfitt og gekk seinlega þar sem vegir skemmdust víða og voru ófærir. Enn meiri hörmungar Í kjölfar skjálftans féll gríðarlega stórt snjóflóð úr hæsta fjalli Perú, 20.000 manns létust í snjóflóði n Snjóflóðið kom í kjölfar jarðskjálfta sem var 7,9 á Richter-kvarða n Meðal þeirra sem björguðust voru 300 börn á sirkussýningu Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is 750.000 létust DRUKKIÐ ÚR HÖFUÐ- KÚPUM Höfuðkúpur voru notaðar sem drykkjarílát af Bretum til forna. Elstu þekktu höfuðkúpukrús- irnar eru um 14.700 ára gaml- ar. Þær fundust í Gough‘s Cave. Þær eru af tveimur fullorðnum og einu barni. Það hljómar skelfilega að drykkjarílát hafi verið gerð úr höfuðkúpum en þetta er eitthvað sem tíðk- aðist víða um heim fyrr á öldum en var þó sjaldgæft og fáar höfuð- kúpur í gervi drykkjaríláta hafa fundist. Bresku höf- uðkúpurnar eru því ótrú- lega merkilegar út frá sjón- arhóli sögunnar. Þær bera þess merki að hafa verið hreinsaðar af kostgæfni skömmu eftir að fólkið lést. Síðan voru andlits- beinin fjarlægð sem og botn höfuðkúpunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.