Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 33
Hafnarfjörður 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Rótgróin hafnfirsk tækjaleiga TÆKI.IS: Tæki.is er gróið fjölskyldufyr-irtæki sem á rætur sínar að rekja allt til ársins 1982, en þá stofnaði Þorsteinn Auðunn Péturs- son fyrirtækið Körfubílaþjónustuna, körfubílaleigu sem hann átti og rak um árabil eða allt til ársins 2004 þegar ákveðið var að fara meira út í lyftubransann og Tæki.is var stofnað. Tæki.is sérhæfir sig í tækjaleigu til fyrirtækja og einstaklinga. „Við erum mjög stoltir af flotanum okkar sem samanstendur af ýmsum gerðum af vinnulyftum, minni jarðvinnuvélum, lyfturum o.fl. Til okkar leita bæði al- mennir borgarar og fyrirtæki sem við leggjum ríka áherslu á að þjóna vel,“ segir Örvar Þorsteins- son, einn sona Þorsteins. „Hjá okkur starfar þéttur hópur af úrvals góðu starfsfólki sem setur sér það að markmiði að veita flotta og góða þjónustu. Við erum átta manna samhentur hópur sem höldum starfseminni í fullum gangi,“ segir Örvar. „Við eigum mjög stóran hóp af traustum og góðum viðskiptavinum sem okkur er annt um og við kapp- kostum að veita þeim öllum góða þjónustu. Það er afar mikið að gera á þessum tíma árs og síminn stoppar ekki þessa dagana, en við leitumst við að leysa öll stærri sem smærri verk og með nýju og bættu kerfi höfum við náð að nýta tækin mun betur og þar af leiðandi veita enn betri þjónustu.“ JLG vinnulyftur eru á meðal fremstu lyftuframleiðenda í heimi og eru það tæki sem Tæki.is nota helst á sinni leigu. „Einnig erum við með Manitou vinnulyftur og erum nýlega búnir að fá nýja gerð af þeim, Man- itou 280TJ, sem eru spjótlyftur með 28 m vinnuhæð og 350 kg burðagetu í körfu, en þær hafa komið mjög vel út og verið mjög vinsælar,“ segir Örvar. Verkefnin eru mjög fjölbreytt og mismunandi hjá Tæki. is : „Þetta er allt frá því að skipta um ljósaperu í ljósastaur og upp í að mála 15 hæða blokkir en við náum 43 m vinnuhæð með stærstu lyftunum okkar,“ segir Örvar. Tækjafloti fyrirtækisins er stór og fylgir því mikil vinna að viðhalda hon- um. „Við eru með yfir 200 tæki á skrá og rekum eigið verkstæði. Við flytjum flestar okkar vélar og varahluti sjálfir inn, en erum einnig í góðu samstarfi við nokkra innlenda birgja. Flotinn er blanda af notuðu og nýju, við erum búnir að vera að endurnýja töluvert og komu um 40 ný tæki á síðasta ári og hafa þó nokkur verið að bætast við frá áramótum,“ segir Örvar. Upplýsinga- og pöntunarsíminn hjá Tæki.is er 5653344 en fyrirtækið er til húsa að Norðurhellu 5, Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.