Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 14
14 29. júní 2018FRÉTTIR MOUNTAIN EQUIPMENT DÖMU JAKKI 35.995 kr. LOWE ALPINE BAKPOKI 18L 14.995 kr. SALOMON SPEEDCROSS 18.995 kr. SALOMON DERHÚFA 3.995 kr.SALOMON HLAUPAVESTI 19.995 kr. Faxafen 12 108 Reykjavík Sími 534 2727 alparnir.is SALOMON PEYSA 15.995 kr. SALOMON MITTISTASKA 5.995 kr. HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA Erum f utt í Faxafen 12 A lexandra Erla Oddsdótt- ir er sautján ára gömul og hefur glímt við geðræn veikindi síðan hún man eftir sér. Veikindi sem hafa leitt til fíkniefnaneyslu á mjög viðkvæm- um aldri. Eftir að henni var nauðg- að af þrítugum manni í fyrrasumar fór líf hennar á hliðina. Þegar hún leitaði á bráðamóttöku geðdeild- ar og á Barna- og unglingageð- deild þá brást kerfið henni svo illa að litlu mátti muna að ævi hennar yrði öll. Alexandra sagði DV þessa sögu í von um úrbætur. Í síðustu viku fjallaði DV um mál Kristjáns Steinþórssonar, 26 ára manns sem lést 9. júní síð- astliðinn eftir langvinna baráttu við þunglyndi, kvíða og eiturlyf- jafíkn. Mistök og langir biðlist- ar í geðheilbrigðiskerfinu ollu því að hann missti alla von um að ná bata. Alexandra Erla Oddsdótt- ir var frænka Kristjáns og var við- stödd jarðarför hans í Guðríðar- kirkju í Grafarholti miðvikudaginn 20. júní. Það var falleg athöfn en erfiður dagur. Hún hefur barist við þung- lyndi og kvíða síðan hún var barn og eins og hjá Kristjáni voru fíkni- efni hennar leið til að deyfa sárs- aukann en einnig áfengi. Eftir að Alexöndru voru byrluð eiturlyf og henni nauðgað af mun eldri manni sumarið 2017 leitaði hún til kerfisins líkt og Kristján, og líkt og í tilfelli Kristjáns þá brást kerfið. Neydd til að taka eiturlyf og nauðgað „Ég hef verið kvíða- og þung- lyndissjúklingur frá því að ég man eftir mér. Fyrsta ofsakvíðakastið sem ég man eftir var þegar ég var tíu ára og eftir það fór þunglyndið að aukast á ofsahraða. Þegar ég leitaði hjálpar var mér vísað á dyr þar sem ég var talin „of ung“ til að kljást við vanda af þessu tagi. Tólf ára fattaði ég að fíkniefni deyfa sársaukann og fimmtán ára var ég byrjuð í dagneyslu áfengis og eit- urlyfja.“ Sumarið 2017 var afdrifaríkt fyrir Alexöndru Erlu Oddsdóttur, þá sextán ára, en þá bjó hún í stuttan tíma á Akureyri. En í dag er fjölskylda hennar búsett á Fljóts- dalshéraði. Eitt kvöldið hafði hún tekið róandi pillur og hitti síðan fólk sem hún þekkti, þar á meðal frænda sinn sem var þrítugur, og voru þau að skemmta sér í heima- húsi. Maðurinn bauð Alexöndru eiturlyf, í góðu til að byrja með en síðan með slíkum þrýstingi að henni fannst hún ekki hafa stjórn á aðstæðunum lengur. Hann neyddi hana til að taka amfetamín og kókaín. Setti upp stíl og gaf henni drykk með ein- hverjum efnum sem hún veit enn ekkert hver voru. Á meðan þessu stóð nauðgaði hann Alexöndru í marga klukkutíma. Annað fólk var í herberginu á meðan þessu stóð að stunda kynlíf en enginn greip inn í og bjargaði henni úr aðstæð- unum. Áverkarnir voru svo slæm- ir að það blæddi í þrjá daga á eftir. Mætti fyrirlitningu á bráðamóttöku Alexandra tilkynnti ekki atvikið og lagði ekki fram kæru á þessum tímapunkti og sagði engum frá. Þess í stað leitaði hún í eiturlyf, sýndi af sér áhættuhegðun og sökk í djúpt þunglyndi sem fólk í kring- um hana tók eftir, sérstaklega syst- ir hennar sem var þá tvítug. „Það fundu allir lyktina af dauðanum hjá mér,“ segir Alex- andra. „Það var enginn lífsvilji eftir í litlu stelpunni þeirra. Systir mín hafði miklar áhyggjur og það tók hana marga klukkutíma að veiða sannleikann upp úr mér. Ég „ENGINN LÍFSVILJI EFTIR Í LITLU STELPUNNI ÞEIRRA“ n Geðheilbrigðiskerfið brást sextán ára stúlku eftir nauðgun n Blæddi í þrjá daga á eftir Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Það er næstum ár liðið síðan þetta gerðist en ég man hvað hún niðurlægði mig mikið og ég fór grátandi út úr viðtalinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.