Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 26
26 FÓLK - VIÐTAL 29. júní 2018
V
ið hittum Þorstein fyr-
ir í Bataskóla Íslands við
Suðurlandsbraut sem hef-
ur verið starfandi í eitt ár og
útskrift annars bekkjar er nýlokið.
Þorsteinn starfar þar sem verkefn-
isstjóri ásamt Esther Ágústsdóttur
og skipuleggja þau dagskrá skól-
ans. Skólinn er samstarfsverkefni
Geðhjálpar og Reykjavíkurborgar
til þriggja ára og nær námið yfir
eitt skólaár.
„Hingað kemur fólk í sex til sjö
mánuði og velur sér námskeið
sem hentar. Námskeiðin snúast öll
um bata við geðrænum kvillum og
áskorunum og leiðir til betri lífs-
gæða. Til dæmis námskeið um
kvíðastjórnun, þunglyndi, sjálfs-
traust, ADHD, sjálfsumhyggju, nú-
vitund og margt fleira.“
Þorsteinn segir að hér á Íslandi
hafi verið til áhugahópur um að
koma upp slíkum skóla í mörg ár
og að þeir séu til víða erlendis, sér-
staklega í Bretlandi. Hópurinn fór
út til Bretlands til að skoða að-
stæður og ákveðið var að hafa einn
slíkan, Nottingham Recovery Col-
lege, sem fyrirmynd að íslenska
skólanum. Oft eru skólarnir inni
á geðdeildum en í Nottingham er
hann óháðari stofnun.
Á næsta ári verður lögð áhersla
á yngra fólk og boðið upp á bekk
fyrir 18 til 28 ára og Þorsteinn er
mjög spenntur yfir því.
„Það eru nokkrar ástæður fyr-
ir þessu. Við teljum út frá okkar
reynslu að ungt fólk vilji vera út af
fyrir sig. Einnig er þetta sá hópur
sem þeir sem standa að úrræðum
svipuðum og okkar eru að reyna
að ná til. Þetta er fólk sem yfir-
leitt hefur veikst frekar nýlega og
er viðkvæmt. Það er búið að vera
að rannsaka þennan hóp sérstak-
lega undanfarin ár og undarlegar
niðurstöður eru að koma í ljós.
Einmanaleiki drengja er að aukast,
kvíði og þunglyndi hjá unglingum
einnig. Það er erfitt að reiða hend-
ur á hvað er í gangi.“
Útrás í fangelsi og fleiri staði
Þorsteinn leggur áherslu á að
Bataskólinn sé skóli en ekki með-
ferð. Hér eru ekki teknar niður
neinar sjúkrasögur eða slíkt en
reynt er að mæla árangurinn af
starfinu með könnunum og viðtöl-
um, bæði vellíðan og virkni nem-
enda.
„Hérna eru hins vegar engin
próf eða mætingarskylda. Við höf-
um skráð niður mætingar og haft
samband við þau sem að mæta illa
og hvatt þau til að mæta. Sumum
finnst þetta erfitt og námskeiðin
eru krefjandi. Þetta er alvöru skóli
en við leggjum mjög mikið upp
úr léttleika og fjölbreytilegum
kennsluaðferðum og notum aldrei
sömu aðferð nema í tíu mínútur í
senn, fyrirlestur, verkefnavinna,
vídeó og svo framvegis. Ef fólki
finnst erfitt getur það farið fram
og tekið sér pásu, við höfum þetta
manneskjulegt.“
Þorsteinn
Guðmundsson
hefur verið einn
ástsælasti grínisti
landsins síðan hann
sló í gegn í þáttunum
Fóstbræður, sem sýndir
voru á Stöð 2 árin 1997
til 2001. Þorsteinn
hefur komið víða við
í leiklist, uppistandi,
þáttagerð og fleiru. Nú
hefur hann breytt um
stefnu, menntað sig í
sálfræði og starfar við
nýstofnaðan bataskóla,
sem fólk sem glímt
hefur við andleg veikindi
og aðstandendur
þeirra sækja.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Við erum
að hræða
unglingana
okkar“