Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 40
Suðurfirðir 29. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
HAMAR HÓTEL OG KAFFIHÚS:
Ljúffengar veitingar
í töfrandi umhverfi
Í um 700 metra fjarlægð frá Breið-dalsvík stendur gullfallegt bjálka-hús undir fjallshlíðum en þar er
rekið veitingahús og gistiheimili undir
heitinu Hamar Hótel og kaffihús. Þýsk
hjón byggðu húsið fyrir allmörgum
árum og leituðu áður lengi að fal-
legum stað undir það áður en jörðin
Þverhamar varð fyrir valinu. Staður-
inn þykir einstaklega fallegur og út-
sýni frá þessum punkti stórfenglegt.
„Þetta hét áður Kaffi Margrét og
ég ákvað að breyta um nafn þegar
ég tók við rekstrinum síðasta sumar.
Húsið stendur á jörðinni Þverhamri
og afi minn og ég sjálf bjuggum í
húsi í þorpinu sem heitir Hamar. Enn
fremur ólst amma mín upp á Hamri í
Hamarsfirði. Þannig að þegar til átti
að taka þá kom eiginlega ekki annað
nafn til greina,“ segir Auður Her-
mannsdóttir, eigandi staðarins.
Hamar býður upp á afar fjölbreytt-
ar og góðar veitingar og gætir þess
að sinna ekki bara ferðafólki heldur
líka heimamönnum. Er því opið allan
ársins hring og oft eru ýmsar uppá-
komur yfir vetrartímann. Yfir sumartí-
mann er síðan opið alla daga vikunn-
ar frá kl. 11 til 21.
„Þetta er heimilislegur staður í
þægilegu umhverfi en samt kapp-
kostum við að bjóða upp á fjölbreytt-
ar veitingar og hér er matseðill í
gildi allan daginn. Við bjóðum upp á
súpur, fisk og kjöt, auk
vinsælla skyndibita á
borð við hamborgara og
pitsur. Þess utan erum
við með fullan kökukæli
af heimagerðum tert-
um, erum með vöfflur
og ísrétti,“ segir Auður.
Fiskurinn kemur
spriklandi ferskur úr
sjónum í kring. Grillað-
ar lambalærisneiðar
mælast líka vel fyrir og
pitsurnar eru eldbak-
aðar. „Fiskur dags-
ins er mjög vinsæll
hjá okkur, gjarnan
er það þorskur eða
rauðspretta. Erlendu
ferðamennirnir sækja
líka mikið í lambalærisneiðarnar,“
segir Auður.
„Hamborgarinn okkar“ er
einstakur
Pitsur og hamborgarar eru sí-
vinsælir réttir og Hamar er með
fjölbreyttan pitsumatseðil. „Pitsu-
botnarnir okkar eru úr súrdeigi,
deigið er gert ferskt á hverjum degi
á staðnum. Í pitsurnar reynum við
að nota einungis besta hráefni
sem í boði er hverju sinni og er
sósan okkar gerð úr San Marzano
tómötum og örlitlu íslensku sjáv-
arsalti. Þá býður staðurinn upp
á tvær gerðir af hamborgurum,
hefðbundinn ostborgara og svo
„Hamborgarann okkar“ sem er afar
veglegur og girnilegur. „Með honum
er beikonsulta sem við vinnum frá
grunni, með balsamik-ediki og alls
konar gúmmelaði,“ segir Auður.
Hamar er með vínveitingaleyfi og
hægt að fá sér bjór eða léttvín með
matnum. Fullkomin espresso-vél er á
staðnum og aðeins gæðakaffi og te
í boði.
„Á sunnudögum erum við með
bröns-seðil frá klukkan 11–16. Yfir
vetrartímann er kaffihlaðborð fyrsta
laugardag í hverjum mánuði þar
sem við fyllum eitt borð af
heimagerðum kræsingum,
sætum og ósætum, og fólk
getur borðað eins og það vill.
Svo höfum við verið að taka
á móti hópum, stórum og smáum, í
hádegisverð, kaffi og kvöldverð,“ segir
Auður.
Gisting á efri hæðinni
Bjálkahúsið er um 300 fermetrar og
á neðri hæðinni er veitingasalur sem
tekur 50 manns. Á efri hæðinni er
gisting fyrir 10 manns í fimm her-
bergjum. Þrjú þeirra eru með svölum
og þaðan er frábært útsýni, sérstak-
lega í góðu veðri – ekki spillir fyrir
að afar vel hefur viðrað á svæðinu
í sumar og allt stefnir í að framhald
verði þar á.
Gistingu má panta í síma 846
55747. Sjá nánar á Facebook-síðunni
Hamar – Hótel kaffihús.