Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 43
Suðurfirðir 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Dýrlegt útsýni er frá veitinga-staðnum Við Voginn á Djúpa-vogi en þaðan horfir maður
yfir höfnina og út á Berufjörð. Ekki
spillir fyrir að veðrið hefur leikið við
heimamenn undanfarnar vikur og
margir gestir veitingastaðarins nýta
sér því útisvæðið sem staðurinn býð-
ur upp á en þar geta um 20 manns
setið og snætt, á meðan salurinn inni
tekur 80 manns.
Við Voginn er mjög líflegur og
vinsæll veitingastaður sem býður
upp á fjölbreyttan matseðil. Maturinn
er pantaður við afgreiðsluborðið og
starfsfólk kemur síðan með hann á
borðið til gestanna.
„Fiskurinn er langvinsælastur hjá
okkur og „fish and chips“ rennur ljúf-
lega niður í gestina,“ segir Rán Freys-
dóttir, eigandi staðarins. Við Voginn
er opinn frá 9 á morgnana til 9 á
kvöldin og býður upp á morgunverð,
hádegismat og kvöldmat. Ávallt er
mikið að gera í hádeginu og vinnandi
fólk á svæðinu nýtir sér óspart há-
degisverðartilboðið:
„Við erum alltaf með gamlan
klassískan heimilismat í hádeginu,
þennan mat sem þú færð kannski hjá
mömmu en er ekki lengur á mörgum
heimilum. Til dæmis steiktur fiskur
í raspi en við erum með fisk á há-
degismatseðlinum lágmark tvisvar í
viku. Svo eru það réttir eins og bjúgu,
kótelettur, snitsel, mínútusteik, stund-
um jafnvel lifur. Það er alltaf eitthvað
nýtt í hádeginu og fjölbreytnin mikil,“
segir Rán.
Við Voginn er vinsæll meðal ferða-
manna, bæði innlendra og erlendra,
enda kjörinn áningarstaður fyrir þá
sem eiga leið um Austurland. „Við
erum með eitthvað fyrir alla og erum
mikill fjölskyldustaður. Við Voginn er
líka kaffihús og við erum með al-
veg stórglæsilegt kaffiborð hérna
þar sem við bjóðum upp á allt frá
vegan-kökum upp í súkkulaðibomb-
ur. Við erum með einar níu tegundir
af kökum núna og auk þess klassískt
kaffibrauð á borð við ástarpunga,
kleinur og hjónabandssælu.“
Við Voginn er með vínveitingaleyfi
og fyrir marga er kjörið að fá sér bjór
eða hvítvín með matnum. Fjölbreytt-
ar bjórtegundir eru í boði, meðal
annars kraftbjór frá Egilsstöðum og
Breiðdalsvík.
Sjá nánar á Facebook-
síðunni Við Voginn.
VIÐ VOGINN:
Eitthvað fyrir alla