Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 2
2 29. júní 2018FRÉTTIR Á þessum degi, 29. júní 1975 – Steve Wozniak prófar frum- gerðina af Apple I-tölvunni. 1976 – Seychelles-eyjar fá sjálfstæði frá bresku krúnunni. 2003 – Bandaríska kvikmyndastjarn- an Katharine Hepburn deyr, 96 ára að aldri. 2007 – Fyrsti iPhone-inn lítur dagsins ljós. 2014 – Abu Bakr al-Baghdadi tilkynnir um stofnun kalífadæmis í Sýrlandi og Norður-Írak. Fjarlægði frétt um kviðmága í íslenska landsliðinu Eiríkur Jónsson, ritstjóri vef- síðunnar eirikurjonsson.is, neyddist til þess að fjarlægja frétt á vefsíðu sinni í vikunni. Án þess að fara ítarlega í inni- hald fréttarinnar þá fjallaði hún um tvo drengi í íslenska landsliðinu sem eru að sögn Eiríks kviðmágar. Fréttin sem Eiríkur lét standa í nokkrar klukkustundir fékk harkaleg viðbrögð. Í kjölfarið skrifaði Eirík- ur svo aðra frétt þar sem hann tilkynnti að vegna harkalegra viðbragða og tillitssemi við að- dáendur íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefði fréttin verið fjarlægð. „Í samfélagi sem límt er saman á lyginni á sannleik- urinn erfitt uppdráttar,“ bætti Eiríkur við, sem virðist vera að linast með árunum. H ún er náttúrlega bara mjög dettin,“ segir Bragi Andrés- son, en vitni sagðist hafa séð til Braga taka harkalega á mjög andlega veikri konu á sex- tugsaldri og henda henni í gólf- ið. Hann hefði síðan sparkað í bak hennar liggjandi. Bragi var á þess- um tíma starfsmaður á sambýli og þegar samstarfsmaður gekk á hann er Bragi sagður hafa útskýrt framkomu sína á þennan hátt: „Það þarf að venja hana af frekj- unni.“ Bragi starfaði sem stuðnings- fulltrúi á sambýli fyrir fatlaða einstaklinga á Selvogsbraut í Þor- lákshöfn. Var honum vikið úr starfi eftir örlagaríkt kvöld sem átti sér stað þann 9. september 2015. Bragi var upphaflega kærð- ur fyrir líkamsárás, en þegar hann var sýknaður af henni kærði Bragi uppsögnina. Nýverið voru hon- um dæmdar tvær og hálf milljón í bætur fyrir ólöglega uppsögn. Bragi vann málið í héraði og var þá úrskurðað að hann ætti rétt á 800 þúsund í bætur. Sveitarfélag Ölf- uss áfrýjaði dómnum og voru þá bæturnar hækkaðar. Þú stendur yfir henni og öskrar Fyrir dóminn var lögð atvikalýs- ing frá kvöldinu örlagaríka sem undirrituð er af Jóhönnu H. Ósk- arsdóttur og Berglindi Hallmars- dóttur, sem var við störf umrætt kvöld og var lykilvitni í málinu. Í atvikalýsingu úr dómsskjölum segir að Bragi hafi verið vitni að því þegar starfsmaður gerði tilraun til að fá mjög andlega veika konu út úr íbúð á sambýlinu til að fara á sitt heimili. Konan neitaði því og skellti á starfsmann. Í atburðar- skýrslu segir: „Þú (Bragi) ert vitni að þessu og samkvæmt atburðaskýrslu rýk- ur þú til með miklum látum – þú og íbúi öskrið hvort á annað og þú rekur íbúa inn í sína íbúð. Íbúi er hávær, orðljót og reið og fer að tína til dótið sitt. Þú stendur yfir henni og öskrar á hana sem endar á því að þú rífur í íbúa, hendir henni í gólfið og sparkar í bakið á henni að sögn starfsmanns sem varð vitni að atburðinum.“ Bragi hélt því fram að hann hefði ýtt í konuna með fætinum þar sem hún lá í gólfinu. Starfs- maður stoppaði Braga og skipaði honum að fara. Tveir starfsmenn hjálpuðu svo konunni á fætur og var öllum brugðið. Í skýrslunni segir: „Starfsmaður kemur þar til þín og spyr hvað þú hafir verið að gera og af hverju þú hafir spark- að í íbúa og látið svona. Þú segist hafa ýtt til hennar og sagðir: „Það þarf að venja hana af frekjunni.“ Konan, sem er eins og áður seg- ir um sextugt og mikið veik, fékk áverkavottorð. Í vottorðinu kom fram að hún væri marin hér og þar um líkamann. Fyrir dómi sagði fyrrverandi samstarfskona Braga að hann hefði rifið í konuna þar sem hún hefði setið í sófa og þá dottið í gólfið. Borð hafi þeyst til og kanna full af vatni skollið í gólf- ið. Konan hefði legið grátandi og öskrandi í gólfinu og Bragi þá reitt upp hönd gegn henni og sparkað í hana. Kvaðst samstarfskonan þá hafa gengið á milli. Bragi var látinn fara þar sem forstöðukona taldi að ekki væri hægt að hafa mann í vinnu sem vistmenn væru hrædd- ir við. Bragi var kærður en sýknað- ur. Dómurinn taldi að rannsókn á málinu hefði verið ófullnægjandi og brottvikning því ólögmæt. Bragi neitar öllu Í samtali við DV kveðst Bragi ánægður með dóm Hæstaréttar og þær bætur sem honum voru dæmdar. „Ég hefði misst húsið ef ég hefði ekki bjargað mér á þenn- an hátt,“ segir Bragi. Beittir þú konuna ofbeldi? „Nei.“ Ýttir ekkert við henni með fætin- um? „Langt frá því,“ svarar Bragi sem stangast á við þann framburð sem hann hafði áður gefið, en neitar að svara frekar fyrir það. Aðspurður hvort hann hefði sagt að það þyrfti að venja hana af frekjunni sagði Bragi að slíkt myndi enginn segja. Það var vitni að atvikinu. Þú veist ekkert af hverju það var að halda þessu fram? Að þú haf- ir sparkað í hana og hent henni í gólfið? „Það er náttúrlega bara upp- spuni alveg frá rótum.“ Þannig að hún bara hrundi nið- ur án snertingar? „Eða að hún hafi fengið þetta daginn áður þess vegna.“ Og þú veist ekkert hvernig hún fékk þessa áverka? Þú varst nú þarna á staðnum. „Hún er náttúrlega bara mjög dettin,“ svaraði Bragi og vildi ekki tjá sig frekar um málið en er 2,5 milljónum ríkari eftir ólöglega uppsögn. n BRAGI REKINN n Samstarfskona sakaði Braga um að hrinda og sparka í veika konu n Konan kærði en Bragi fær 2,5 milljónir í bætur „Það þarf að venja hana af frekjunni. Þorlákshöfn Sambýlið má sjá neðarlega fyrir miðri mynd. Bragi Andrésson Auður Ösp Guðmundsdóttir Kristinn Haukur Guðnason audur@dv.is / kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.