Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 33
Hafnarfjörður 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Rótgróin
hafnfirsk
tækjaleiga
TÆKI.IS:
Tæki.is er gróið fjölskyldufyr-irtæki sem á rætur sínar að rekja allt til ársins 1982, en þá
stofnaði Þorsteinn Auðunn Péturs-
son fyrirtækið Körfubílaþjónustuna,
körfubílaleigu sem hann átti og rak
um árabil eða allt til ársins 2004
þegar ákveðið var að fara meira út í
lyftubransann og Tæki.is var stofnað.
Tæki.is sérhæfir sig í tækjaleigu til
fyrirtækja og einstaklinga. „Við erum
mjög stoltir af flotanum okkar sem
samanstendur af ýmsum gerðum af
vinnulyftum, minni jarðvinnuvélum,
lyfturum o.fl. Til okkar leita bæði al-
mennir borgarar og fyrirtæki sem við
leggjum ríka áherslu
á að þjóna vel,“ segir
Örvar Þorsteins-
son, einn sona
Þorsteins.
„Hjá okkur
starfar þéttur
hópur af úrvals
góðu starfsfólki sem
setur sér það að
markmiði að veita
flotta og góða þjónustu. Við erum
átta manna samhentur hópur sem
höldum starfseminni í fullum gangi,“
segir Örvar.
„Við eigum mjög stóran hóp af
traustum og góðum viðskiptavinum
sem okkur er annt um og við kapp-
kostum að veita þeim öllum góða
þjónustu. Það er afar mikið að gera á
þessum tíma árs og síminn stoppar
ekki þessa dagana, en við leitumst við
að leysa öll stærri sem smærri verk
og með nýju og bættu kerfi höfum við
náð að nýta tækin mun betur og þar
af leiðandi veita enn betri þjónustu.“
JLG vinnulyftur eru á meðal
fremstu lyftuframleiðenda í heimi og
eru það tæki sem Tæki.is nota helst
á sinni leigu. „Einnig erum við með
Manitou vinnulyftur og erum nýlega
búnir að fá nýja gerð af þeim, Man-
itou 280TJ, sem eru spjótlyftur með
28 m vinnuhæð og 350 kg burðagetu
í körfu, en þær hafa komið mjög vel út
og verið mjög vinsælar,“ segir Örvar.
Verkefnin eru mjög fjölbreytt og
mismunandi hjá Tæki.
is : „Þetta er allt frá
því að skipta um
ljósaperu í ljósastaur og upp í að
mála 15 hæða blokkir en við náum 43
m vinnuhæð með stærstu lyftunum
okkar,“ segir Örvar.
Tækjafloti fyrirtækisins er stór og
fylgir því mikil vinna að viðhalda hon-
um. „Við eru með yfir 200 tæki á skrá
og rekum eigið verkstæði. Við flytjum
flestar okkar vélar og varahluti sjálfir
inn, en erum einnig í góðu samstarfi
við nokkra innlenda birgja. Flotinn er
blanda af notuðu og nýju, við erum
búnir að vera að endurnýja töluvert
og komu um 40 ný tæki á síðasta ári
og hafa þó nokkur verið að bætast
við frá áramótum,“ segir Örvar.
Upplýsinga- og pöntunarsíminn
hjá Tæki.is er 5653344 en
fyrirtækið er til húsa að
Norðurhellu 5, Hafnarfirði.