Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 31
BorgarfjörðurHelgarblað 13. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ Hótel Bifröst er kjörinn án-ingarstaður fyrir þá sem vilja njóta fegurðar landsins enda staðsett við þjóðveginn rétt hjá Borgarnesi og héðan getur leiðin legið upp Borgarfjörðinn, á Snæ- fellsnes eða í Dalina. Á Hótel Bifröst er gistirými fyrir á annað hund- rað manns og stór og mjög góður veitingastaður, Kaffi Bifröst, þar sem tilvalið er að eiga gæðastundir í hádegismat, síðdegiskaffi eða yfir kvöldverði. Að sögn Soffíu Dagmarar Þor- leifsdóttur, aðstoðarhótelstjóra, er meirihluti þeirra sem gista á Hót- el Bifröst erlendir ferðamenn en staðurinn er þó líka vinsæll meðal Íslendinga. „Við höfum verið dugleg að setja tilboð inn á vefinn aha.is og þau eru mjög vinsæl. Núna vorum við að setja inn tilboð fyrir júlí og ágúst sem inniheldur gistingu og 3ja rétta óvissumatseðil,“ segir Soffía. Sem fyrr segir er nokkuð mik- ið gistipláss á Hótel Bifröst: „Við erum með 51 herbergi en þar af eru 6 herbergi 3ja manna. Þetta eru rosalega stór og fín herbergi. Á svona stórum gististað er alltaf möguleiki á lausu plássi en það koma þó dagar þar sem er fullbók- að. Svo koma aðrir dagar þegar rólegt er en þetta helst nokkuð mikið í hendur við flugferðir til og frá landinu.“ Sjávarréttirnir slá í gegn Veitingastaðurinn Kaffi Bifröst er opinn alla daga vikunnar frá 11:30 til 22 en eldhúsinu er lokað kl. 21. Mjög fjölbreyttur matseðill er á staðnum og var honum nýlega breytt: „Núna bjóðum við upp á kræklinga sem mælast mjög vel fyrir. Laxinn okkar er líklega vinsælasti rétturinn og svo hefur sjávarréttahlaðborðið á kvöldin slegið í gegn. Við erum fjöl- breyttur staður og margt fleira en sjávarréttastaður en kokkarnir okkar eru þó einstakir snillingar í sjávar- réttum og fólk sækir í þá rétti aftur og aftur,“ segir Soffía. Pitsur og hamborgarar eru vin- sælir réttir á matseðlinum á Kaffi Bifröst en í eftirmiðdaginn er líka vinsælt að fá sér kaffi og eplaköku. Árshátíðir og ráðstefnur sívinsæl- ar á Bifröst Hótel Bifröst er mjög vinsæll vett- vangur fyrir árshátíðir og ráðstefnur fyrirtækja sem gjarnan eiga sér stað á haustmánuðum. Soffía segir mikilvægt að panta slíkt sem fyrst. „Þetta lendir á fáum helgum og það eru svo mörg fyrirtæki með slíka viðburði á sama tíma.“ Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni hotelbifrost.is og Facebook- síðunni Hótel Bifröst. Símanúmer er 433 3030. HÓTEL BIFRÖST: Gæðastundir við þjóðveginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.