Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 9
13. júlí 2018 FRÉTTIR 9
„Tíðin hefir verið
köld upp á
síðkastið og úrkoma mik-
il. Útjörð mun viðast vel
sprottin. En tún eru stór-
kostlega skemmd af kali
allstaðar á landinu.
fyrsti einn hinn fegursti í manna
minnum. Í frétt frá 2. maí segir:
„Öndvegistíð er á Austfjörðum
og í Fljótsdalshéraði. — Farið að
vinna á túnum. Árgæzka er nú um
land alt. Borgfirðingar eystra hafa
sleppt fé sínu, og er það sjaldgæft
í þeirri snjóasveit, að það sé gert
svo snemma.“
Morgunblaðið sagði þann 8.
maí:
Tún hér í bæ og í grenndinni
eru nú orðin græn og tré í görð-
um sumstaðar tekin að laufgast.
Er það óvenju snemma, enda hef-
ir ekki verið eins gott vor i manna
minni sem nú.
Þann 14. maí sagði í Vestra:
„Tíðarfar hefir verið óminn-
ilega gott síðan um sumarmál,
logn og sólfar daglega; dálítið frost
sumar næturnar. Sauðfé mun al-
staðar sleppt hér í nærsveitunum
og vallarávinnsla víðast að byrja.
Er slíkt óvenju snemmt.“
Í Tímanum sagði:
„Tíðin er ávalt hin ákjósanleg-
asta hér syðra. Kartöflur farnar að
koma upp í görðum. Á Norður- og
Vesturlandi er kvartað um hita og
þurrka.“
En þetta var lognið á und-
an storminum. Júní var kaldur
og byrjaði síðan að snjóa. Fram-
an á Siglufirði sagði um miðjan
mánuð: „Tíðin hefir verið óvið-
felldin þessa viku. Framan af
gengu miklar rigningar og hálf-
gerðir kuldar, hríðaði mikið í fjöll,
en á föstudagsnótt [14.] alsnjó-
aði, og hélt því áfram mest allan
daginn.“
Nokkrum dögum áður, þann
10., birtist þessi frétt í Morgun-
blaðinu:
„Kappleikurinn í gær fór
þannig að Víkingur sigraði Val
með 5:0. Veður var illt, stormur af
suðaustri og úrkoma með köflum.
Var knötturinn illhemjandi innan
svæðisins.“
Fimm dögum síðar var skrifað í
Morgunblaðið:
„Sjö vikur voru af sumri i gær,
en eigi var þó sumarlegt. Frost
var á Grímsstöðum (0,5 stig) og
kuldastormur hér og mátti sjá
éljagang á Esjunni og Skarðsheiði
og hvítnuðu kollar þeirra af snjó.“
Tíminn skrifar:
„Tíðin hefir verið köld upp á
síðkastið og úrkoma mikil. Útjörð
mun viðast vel sprottin. En tún
eru stórkostlega skemmd af kali
allstaðar á landinu. í Borgarfirði
t.d. lætur nærri að helmingur
sumra túna sé skemmdur. Er fyr-
irsjáanlegur töðubrestur um land
allt.“
Rétt eins og nú árið 2018 viðr-
aði illa til heyskapar. Bændur á
Suður- og Vesturlandi muna vart
eftir öðru eins tíðarfari og illa hef-
ur gengið að heyja vegna vætu.
Sumarið 1918 var gróður lítill og
mátti kenna vetrarkulda að mestu
um. Í einu blaðanna sagði:
„Illa gengur slátturinn. Fyr-
ir svo sem viku var byrjað að slá
Landakotstúnið. En svo lélegt var
það, að ekki voru teknir nema
blettir hér og hvar. Annars liggja
flest tún enn óslegin og má slíkt
eins dæmi heita hér, er komið er
fram í miðjan júlímánuð. Oftast
er búið að slá hér tún fyrir júní-
lok.“ Var viðvarandi grasbrestur
allt sumarið.
Sást ekki milli bæja í Reykjavík
Í júlí komu nokkrir sólardagar
en oft var svalt í veðri. Reykvík-
ingar reyndu að halda í jákvæðni
og sögðu að þrátt fyrir kulda væri
nú fallegt að horfa á sólina setj-
ast í höfuðborginni. Fundu Reyk-
víkingar til með dönsku nefndar-
mönnunum sem hér voru þar
sem fullveldissamningar stóðu
yfir. Og áfram hélt ömurlegt veð-
ur að láta til sín taka. Stormur var
í júlí og moldryk með mesta móti í
Reykjavík og vart sást á milli bæja.
Á Rangárvöllum skemmdust jarð-
ir vegna sandfoks. Þá gerðust þau
tíðindi að klukkunni var flýtt og
sumartími tekinn upp líkt og í
Evrópu. Um þessa ákvörðun var
skrifað í einu blaðanna:
„Dimma tekur nóttina smám
saman, enda liðnar 5 vikur frá sól-
stöðum. Þó verða menn þess síð-
ur varir nú en endranær, þar sem
klukkan er einlægt einni stund
á undan tímanum. – Óviðkunn-
anlegt þykir mörgum og óþægi-
legt að hafa þessa fljótu klukku
bjartasta árstímann. En seinni
part sumars og seinni part vetr-
ar er hún góð. Hví ekki að skipta
árinu í fjóra jafna parta eins og
stungið hefur verið upp á og hafa
það fyrir fasta reglu að flýta klukk-
unni um eina stund að kvöldi
5. febrúar og 5. ágúst, en seinka
henni aftur að kvöldi 5. maí og 5.
nóv. hvert ár?“
Þessi frétt birtist í Morgun-
blaðinu 18. ágúst:
„Síminn til Seyðisfjarðar var
bilaður í gærmorgun og olli það,
að ísing hafði sezt svo mikil á sím-
ana yfir Haug (austan Grímstaða
á Fjöllum) að talið er að þeir hafi
orðið eins gildir og mannshand-
leggur og víða slitnar af þungan-
um. Þetta er sumarhitinn á Ís-
landi.“
Kötlugos og spænska veikin
En það var ekki aðeins ömurlegt
tíðarfar sem gerði Íslendingum
lífið leitt. Katla gaus í október og
dreifðist gríðarlegt magn af ösku
yfir helming landsins. Þá barst
spænska veikin hingað til lands
með veikum skipverjum á skipun-
um Botníu frá Kaupmannahöfn
og Willemoes frá Bandaríkjuum.
Allt athafnalíf í Reykjavík lam-
aðist þegar hver höfuðborgarbú-
inn á fætur öðrum lagðist í rúmið.
Alls létust 484 Íslendingar úr veik-
inni. Með ströngum sóttvörnum
og einangrun tókst að koma í veg
fyrir að veikin bærist norður eða
austur á land.
Í þessari umfjöllun var ætlun-
in að beina sjónum helst að tíðar-
fari og bera versta sumar í manna
minnum saman við tíðarfar á einu
ömurlegasta ári Íslandssögunnar.
Það sem er merkilegt við þenn-
an samanburð er að þrátt fyrir að
hér hafi geisað frostavetur, snjó-
að að sumri og grasbrestur orðið,
þá var meðalhitinn í júní 9,2 gráð-
ur í Reykjavík. Það var því hlýrra
sumarið eftir frostaveturinn mikla
í júní heldur en í ár. Meðalhitinn í
Reykjaví í júní var aðeins 8,7 gráð-
ur og fengu Reykvíkingar aðeins
70 sólarstundir sem er langt und-
ir meðaltali á meðan íbúar Akur-
eyrar fengu sól í 191,9 sólarstund-
ir, 15 fleiri en í meðalári. En eftir
stendur að hlýrra var sumarið eft-
ir frostaveturinn mikla í júní en
nú hundrað árum síðar. n
Sumarið 2018 Sumrinu í ár verður minnst sem ein samfelld rigning.
„Dimma tekur
nóttina smám
saman, enda liðnar 5
vikur frá sólstöðum.
Reykjavíkurhöfn í
byrjun árs 1918.
Ný og enn betri
vefverslun
www.gaeludyr.is