Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 10
10 13. júlí 2018FRÉTTIR
K
arl Vignir Þorsteinsson,
sem dæmdur var haustið
2013 í sjö ára fangelsi í
Hæstarétti fyrir gróf kyn-
ferðisbrot gegn drengjum, er nú
laus úr haldi. Karl Vignir losnaði
fyrir skemmstu og leigir litla íbúð
nálægt Hlemmi. Í samtali við DV
kveðst Karl Vignir sjá eftir því sem
hann gerði en segir tímann verða
að leiða í ljós hvort vistin hafi gert
hann að betri manni. Nágrannar
Karls eru slegnir óhug eftir að hafa
fengið hann í hverfið.
DV ræddi við Karl Vigni sem
staðfesti að hann hefði losnað úr
haldi fyrir skemmstu. Hann vildi
lítið tjá sig um vistina í fangels-
inu að öðru leyti. Aðspurður um
hvort vistin hefði gert hann að
betri manni sagði hann það verða
að koma í ljós. „Ég veit ekki hvort
ég er betri, það kemur bara í ljós,“
sagði Karl Vignir.
Karl hefur áður viðurkennt
að hafa misnotað allt að 50 börn,
bæði drengi og stúlkur. Talið er að
þolendur séu miklu fleiri. Þegar
blaðamaður spyr Karl Vigni út í
fórnarlömbin segist hann sjá eft-
ir gjörðum sínum. „Já, já, auðvitað
geri ég það,“ segir Karl. Þegar Karl
Vignir var spurður út í fangelsis-
vistina sjálfa sleit hann símtalinu.
DV hefur rætt við nágranna
Karls Vignis sem á barn á leik-
skólaaldri. Hann er sleginn óhug
og botnar ekki í því að hann megi
vera þarna. „Er maðurinn ekki í
fangelsi? Það er leikvöllur og garð-
ur þarna beint fyrir aftan. Það ætti
að henda þessum manni í sjóinn.“
Áratuga brotaferill
Brotasaga Karls Vignis nær ára-
tugi aftur í tímann en hann hefur
viðurkennt opinberlega að hafa
misnotað allt að 50 börn og brot-
in sem hann var dæmdur fyr-
ir voru framin á árunum 1995 til
2012. Síðustu brotin framdi Karl
Vignir í desember 2012. Lögregla
hóf að rannsaka sögu hans í kjöl-
far umfjöllunar Kastljóss um ára-
mótin 2012 og 2013. Í þættinum
sem vakti töluverða athygli gekkst
Karl við brotum gegn tugum barna
og ungmenna.
Árið 2007 fjallaði DV ítarlega um
sögu Karls Vignis Þorsteinssonar.
Karl Vignir vandi komur sínar um
árabil á Kumbaravog, upptöku-
heimili í eigu ríkisins. Þar gaf hann
drengjum sælgæti áður en hann
misnotaði þá bakvið luktar dyr.
Þá var Karl Vignir lengi vel
starfsmaður á Sólheimum í Gríms-
nesi, en þaðan var honum vikið úr
starfi vegna gruns um kynferðis-
brot. Karl Vignir var einnig safn-
aðarmeðlimur í Kirkju sjöunda
dags aðventista. Starf hans þar fór
á sama veg og í Grímsnesi en árið
1997 var honum vikið úr söfnuðin-
um eftir að stúlka innan kirkjunn-
ar sagði frá því að Karl Vignir hafi
ítrekað misnotað hana kynferðis-
lega. Það mál komst aldrei til kasta
lögreglu.
Karl Vignir aðstoðaði um árabil
við umsjón opinna húsa í Áskirkju.
Þegar mál hans kom til kasta lög-
reglu var honum gert að hætta
starfi í söfnuðinum. Málið mun
hafa komið öllum í söfnuðinum í
opna skjöldu. Séra Sigurður Jóns-
son, sóknarprestur í Áskirkju,
sagði meðal annars: „Það kom
okkur algjörlega í opna skjöldu
þegar við heyrðum af máli hans.
Karl Vignir virkaði á okkur sem
hlýlegur og góður maður.“
DV hafði eins og áður segir fyrst
fjallað um hrottaleg níðingsverk
Karls Vignis árið 2007 og var hann
þá nafngreindur. Þrátt fyrir það
ákvað kirkjan að verðlauna Karl
Vigni fyrir störf í þágu safnaðarins.
Brotasaga Karls er afar löng
n Íbúar óttaslegnir n Misnotaði tugi barna n Fluttur í miðbæinn
ALRÆMDASTI BARNANÍÐ-
INGUR ÍSLANDS LAUS OG
MEÐ ÚTSÝNI YFIR LEIKVÖLL
Óðinn Svan Óðinsson
Hjálmar Friðriksson
odinn@dv.is / hjalmar@dv.is „Ég veit
ekki hvort
ég er betri, það
kemur bara í ljós.
„VEIT EKKI
HVORT ÉG
ER BETRI
MAÐUR“
HÉR BÝR
KARL VIGNIR
M
Y
N
D
H
A
N
N
A
M
Y
N
D
H
A
N
N
A