Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 56
56 13. júlí 2018FRÉTTIR - ERLENT
30
ára fangelsi fyr-
ir spillingu. Það var
dómurinn sem var
nýlega kveðinn upp
í Brasilíu yfir Eike Batista sem
var talinn djarfasti og farsæl-
asti frumkvöðull sinnar kynslóð-
ar. En nú er hann einhverskonar
táknmynd nýrra tíma í landi sem
reynir að koma efnahagsmálun-
um á réttan kjöl um leið og tekið
er á landlægri spillingu. Batista
var eitt sinn talinn vonarljós og
margir bundu miklar vonir við
hann en fótunum var kippt und-
an viðskiptaveldi hans á örskots-
stundu og hann verður ekki þátt-
takandi þar næstu áratugina.
Brasilía glímir við efnahagslega
erfiðleika en fyrir nokkrum árum
var landið rísandi efnahagsveldi
þar sem allt var í blóma og landið
nálgaðist þróaðri lönd óðfluga á
efnahagssviðinu. En síðan hrundi
allt saman. Pólitísk kreppa, spilling,
samdráttur, pólitísk hneykslismál
og mikill niðurskurður; allt gerðist
þetta á nokkrum mánuðum.
Í umfjöllun BBC um Batista
kemur fram að hann hafi verið
kaupsýslumaður sem auðgaðist
á námuvinnslu með því að leggja
hart að sér, hann bjó yfir persónu-
töfrum og þekkti rétta fólkið í við-
skiptaheiminum. Hann stund-
aði háskólanám í Þýskalandi og
vann fyrir sér þar sem trygginga-
sölumaður. Dag einn las hann
um gullæði í miðhluta Brasilíu og
ákvað þá að hætta í skóla og flytja
aftur heim.
Hann fékk lánaða peninga hjá
skartgripasölum í Rio de Janeiro
og Sao Paulo og keypti gullnámu.
Þar með var grunnurinn lagður að
viðskiptaveldi hans enda leið ekki
á löngu þar til hann hafði eign-
ast sína fyrstu milljón dollara. Við-
skiptaveldi hans óx og hann tók
upp samstarf við stór námafyrirtæki
á borð við Rio Tinto.
Hann var einnig í sviðsljósinu á
öðrum sviðum því hann kvæntist
ástsælustu fyrirsætu landsins, Luma
de Oliveira, sem einnig var þekkt
fyrir keppni og sigra í hraðbátasigl-
ingum. Þegar uppgangurinn var
sem mestur í brasilísku efnahagslífi
í byrjun aldarinnar náðu vinsældir
Batista hámarki. Árið 2012 var hann
talinn sjöundi ríkasti maður heims
samkvæmt lista Forbes en eignir
hans voru þá metnar á 35 milljarða
dollara. Hann var fyrirmynd margra
ungra frumkvöðla.
Lengi að ná toppnum –
Hröð niðurleið
Það tók Batista 30 ár að ná
toppnum sem kaupsýslumaður
í Brasilíu en fall hans gekk mun
hraðar fyrir sig. Árið 2013 áttu
fyrirtæki hans í fjárhagslegum
erfiðleikum. Batista hafði með
persónutöfrum sínum fengið
marga fjárfesta til að leggja fjár-
muni í flókin og dýr innviðaver-
kefni, námuvinnslu og verkefni
tengd olíuiðnaðinum. En olíu-
lindirnar sem hann hafði keypt
skiluðu ekki nægri olíu. Innviða-
verkefnum var slegið á frest og
áætlaður hagnaður varð að tapi.
Hann seldi fyrirtæki sín, snekkj-
una og megnið af fasteignum
sínum í Rio de Janeiro og hét því
að bjarga fyrirtækjum sínum frá
gjaldþroti.
En eftir því sem sérfræðingar
segja þá voru fyrirtæki hans
byggð upp á einhverju allt öðru
og ískyggilegra en mikilli vinnu
og hugrekki. Í átaki gegn spill-
ingu 2017, sem leiddi í ljós spill-
ingu innan allra helstu stjórn-
málaflokka landsins, kom í ljós
að Batista hafði notað sambönd
sín við embættismenn í Rio de
Janeiro til að verða sér úti um
opinber verkefni.
Handtökuskipun var gefin út
á hendur honum þegar hann var
staddur í New York. Vangaveltur
voru uppi um að hann myndi
láta sig hverfa en hann bókaði
strax flug heim og gaf sig fram.
Hann var handtekinn um leið
og hann kom til Brasilíu og færð-
ur í fangelsi með „venjulegum“
glæpamönnum. Hann deildi
klefa með fleiri og aðeins eitt
klósett var í klefanum. Þar sem
hann hafði ekki lokið háskóla-
námi átti hann ekki rétt á einka-
klefa.
Reyndi fyrir sér á Youtube
Batista varð þess vafasama
heiðurs aðnjótandi að vera ann-
ar í röð þeirra sem hafa komist á
lista Forbes yfir milljarðamær-
inga til að vera handtekinn. Hinn
var fíkniefnabaróninn Pablo
Escobar.
Batista var látinn laus eft-
ir nokkra mánuði og gert að
sæta stofufangelsi á meðan mál
hans var til meðferðar hjá dóm-
stólum. Nýlega var hann síðan
dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að
hafa greitt Sergio Cabral, fyrrum
ríkisstjóra Rio de Janeiro, 16,5
milljónir dollara í mútur. Cabral
var dæmdur í 93 ára fangelsi fyrir
að hafa þegið mútur.
Ekki eru mörg ár síðan
Dilma Rousseff, þáverandi for-
seti Brasilíu, hrósaði Batista
í hástert og sagði hann vera
„þjóðarstolt“ brasilískra kapita-
lista. „Þjóðarstoltið“ nýtti tím-
ann í stofufangelsinu til að reyna
fyrir sér á YouTube með ráð-
gjöf um fjárfestingar og ýmislegt
annað. En dómurinn yfir honum
bindur líklega enda á þessa nýju
iðju hans enda fær hann líklega
ekki að vera með netaðgang í
fangelsinu, hvað þá að standa
í framleiðslu myndbanda fyrir
YouTube. n
„ Batista
varð þess
vafasama heiðurs
aðnjótandi að
vera annar í röð
þeirra sem hafa
komist á lista
Forbes yfir millj-
arðamæringa
til að vera hand-
tekinn. Hinn var
fíkniefnabarón-
inn Pablo Escobar.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
RIS OG FALL „ÞJÓÐARSTOLTS
BRASILÍSKRA KAPÍTALISTA“
n Ótrúleg auðæfi og fegurðardrottning upp á arminn n Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir spillingu
Luma de Oliveira og Eike Batista.
Gylfaflöt 6 - 8
LOKUM 20. JÚLÍ
HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI
YKKUR 14. ÁGÚST AÐ GYLFAFLÖT 6-8
VEGNA FLUTNINGA