Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 54
54 BLEIKT 13. júlí 2018
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
S
umar stellingar eru
betri en aðrar, sam-
kvæmt vísindafólki
á kynlífssviðinu, eða
í það minnsta ólíklegri til
að drepa þig!
Hér eru fjórar stellingar
sem standa öðrum fram-
ar þegar áhrif á heilsu og
hreysti eru skoðuð. Góða
skemmtun!
Konan ofan á: Þessi er vinsæl og
hressandi. Hér er bæði unnið með
djúpvöðva og þol. „Þú hossar og
heldur þér uppi á sama tíma, og
vinnur með mjög fjölbreytta vöðva
líkamans. Ef þú hreyfir þig hressi-
lega er auðvelt að ná hjartslættin-
um upp.“
Aftan frá: Voða vinsæl líka. Sú eða
sá sem er á fjórum fótum spenn-
ir djúpvöðva sjálfkrafa og hér er
hægt að taka hressilega á því og
svitna duglega.
Lótusstellingin: Náin og falleg
og dregur nafn sitt af blóminu. Í
þessari stellingu þurfa báðir aðilar
að vera líkamlega virkir og reyna á
vöðva sína til að halda jafnvægi og
stöðugleika. Þarna eru djúpvöðva-
rnir mikilvægastir en þolið kem-
ur líka við sögu. Lótusstellingin er
sem sagt heilsusamleg fyrir báða
aðila.
Ruggandi: Þessi stelling getur
reynt heilmikið á báða aðila og er
líklega sú besta fyrir heilsuna. Sú/
sá sem er ofan á er á hnjánum og
getur þess vegna auðveldlega stillt
af hæð mjaðmanna. Sú/sá sem
er undir getur sleppt því að nota
púða við bakið, eða notað lítinn,
og fengið þannig prýðilega æfingu
fyrir kviðvöðva.
Sæl Ragga
Ég er með eftirfarandi spurningu.
Er ég ógeðslega léleg manneskja
að hafa sofið hjá tvítugum syni
vinkonu minnar? Ég er sjálf 36 ára.
Hann fær að búa hjá mér til ára-
móta en hann er hérna í Reykjavík
í skóla. Síðan gerðist það að við
sváfum saman og ég upplifði eitt
besta kynlíf ævi minnar.
Með kveðju, Ósk
Hæ Ósk
Fyrst tók ég andköf. Verandi móð-
ir drengs sem er rétt skriðinn yfir
tvítugt. Ég ímyndaði mér að hann
hefði fengið að búa hjá einhverri
vinkonu minni sem hefði kannski
þekkt hann frá fæðingu – stundum
skipt á honum og passað hann.
Einhverri sem hann lítur upp til og
tekur mark á og hefur verið hluti af
lífi hans um árabil.
Svo hugsaði ég lengur um mál-
ið. Þú segir ekki neitt um það
hvernig sambandi ykkar hefur
verið háttað hingað til. Varstu til
staðar í lífi hans þegar hann var
lítill strákhnokki eða þekkirðu
mömmu hans lítillega frá því að
þið voruð saman í menntaskóla?
Þarna finnst mér mikill munur á.
Ef hið fyrra á við – að þú haf-
ir verið náinn fjölskylduvinur eða
barnfóstran hans – finnst mér þú
á siðferðislega mjög gráu svæði.
Valdastaðan er ójöfn, og auðveld-
lega má færa rök fyrir því að þú
sért að ganga yfir óæskileg mörk.
Það er krípí!
Ef hið síðara á við – að þú hafir
ekki þekkt hann sem barn eða ver-
ið til staðar í lífi hans – er afstaða
mín eitthvað mildari. Hann er full-
orðinn, þú líka – mömmu hans
þekkirðu, en hei, hann á líka að
geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir.
Ef um eitt skipti er að ræða, eða
að þið farið nokkrum sinnum í
rúmið, finnst mér að þið eigið að
halda kjafti. Móðir hans hefur rétt
á að frétta EKKI af þessu. Sumir
hlutir eru bara þess eðlis að það er
miklu betra að þegja yfir þeim. Ef
þið verðið ástfangin og ákveðið að
færa lostann yfir á andlegra plan,
þurfið þið að stíga varlega til jarð-
ar. En hei! Verri hlutir hafa nú gerst
og í raun er aldursmunurinn ekki
það sjokkerandi.
Kveðja, Ragga
Ósk svaf hjá syni vinkonu sinnar
n Siðferðislega grátt svæði n Hann er fullorðinn, þú líka n Móðir hans hefur rétt á að frétta EKKI af þessu„Er ég ógeðslega
léleg manneskja
að hafa sofið hjá tvítug-
um syni vinkonu minnar?
Þessar samfarastellingar
eru bestar fyrir heilsuna!
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is