Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 30
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
ENGLENDINGAVÍK:
Ferskur gæðamatur og
sögufræg hús
Á fallegum stað í gamla bænum í Borgarnesi liggur Englendinga-vík, stundum kölluð Kaupfé-
lagsvíkin. Þar ríkir ró og friður, sem
einungis er rofinn af fuglasöng og
sjávarnið.
Í gömlu kaupfélagshúsunum þar
sem stunduð var verslun til fjölda
ára er nú rekinn veitingastaðurinn
Englendingavík og heimagistingin
Sjávarborg sem er í húsi við hlið
veitingastaðarins. Elsta húsið í víkinni
er frá árinu 1885 en húsin voru gerð
upp um miðjan síðasta áratug af
miklum myndarskap og er mikil prýði
af þeim.
Nafnið er dregið af þeirri staðreynd
að annað húsið sem reis í Borgarnesi
byggðu tveir Englendingar frá Hull, en
það hús stendur ekki lengur.
Einar Sigurjón Valdimarsson er
staðarhaldari í Englendingavík og
rekur veitingastaðinn og gistinguna. „Í
dag erum við með heimagistingu en
við erum að fara að bæta við stórum
rúmgóðum herbergjum með sér bað-
herbergjum, og íbúð, í tvílyfta húsinu.
Frábært útsýni verður úr herbergjun-
um og íbúðinni,“ segir Einar.
„Við leggjum upp með afslappað og
notalegt andurúmsloft í anda gömlu
húsanna í víkinni. Matseðillinn er
fremur einfaldur. Við erum mikið
með ferskan fisk en gúllas-
súpan okkar er líka mjög
vinsæl, sem og fiskisúpan,
að ógleymdu íslenska
lambinu.“ Englendingavík
er um margt fjölskyldu-
vænn staður en þó
er þar ekki sérstakur
barnamatseðill held-
ur býðst foreldrum að
kaupa fullorðinsrétti
handa börnunum í
smærri skömmtum og á
lægra verði. Mælist þetta
mjög vel fyrir.
Annað sem gerir
Englendingavík að fjölskyldu-
vænum stað er hinn sögufrægi
Bjössaróló sem er nágranni
Englendingavíkur. „Björn Guðmunds-
son hugsaði um endurnýtingu og
smíðað þennan leikvöll einungis úr efni
sem hafði verið hent og nýttist ekki
lengur,“ segir Einar.
Englendingavík er niðri við sjó og
þarna er fallegt útsýni út á sjóinn og
nærliggjandi eyjar og sker sem iða
af fuglalífi og gaman er að fylgjast
með flóði og fjöru úr veitingasalnum.
Ekki spillir fyrir að staðurinn er veð-
ursæll. „Í norðan- og norðaustanátt,
sem eru sólaráttirnar, er alltaf logn í
Englendingavík, því vindurinn fer yfir
okkur. Þá er frábært að sitja hérna á
pallinum fyrir utan,“ segir Einar.
Veitingastaðinn Englendingavík
sækja allt í senn innlendir sem erlend-
ir ferðamenn og heimafólk. Að sögn
Einars er fólk sem heldur til í sumar-
bústöðum í Borgarfirði tíðir gestir á
staðnum.
Veitingastaðurinn er opinn fram á
haust og er opið alla daga vikunna frá
kl. 11:30 og þar til síðasti gestur fer á
kvöldin en miðað er við að eldhúsið loki
um 22:00.
Sjá nánar á Facebook-síðunni
Englendingavík.