Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 32
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ Á Hvanneyri stendur kaffihús-ið Skemman í friðsælu og fallegu umhverfi. Þangað laðast margir sem eiga leið hjá á sumrin og standast ekki lokkandi ilminn af vöfflum, súpum og kaffinu með því. Þessi notalega skemma, með sal á efri hæð, sem er í senn safna- heimili og elsta húsið á Hvanneyri, hefur trekkt upp hverja jákvæðu umsögnina á eftir annarri á ferða- mannasíðum á borð við Trip Advisor. Lof hafa sérstaklega fallið vegna andrúmsloftsins, viðkunnanlegrar þjónustu og bragðmikilla kræsinga. Rósa Björk umsjónarmaður og rekstaraðili Skemmunnar, stendur vaktina fjórða sumarið í röð. Hún segir staðinn vinna mjög mikið úr litlu enda gafst lítið pláss fyrir eld- hús þegar kom að standsetningu staðarins. „Hugmyndin var að hafa vöfflur og kaffi en svolítið öðruvísi,“ seg- ir Rósa, „þannig að við erum með stórar belgískar vöfflur og fengum flotta Espresso-vél af eldri gerð, þannig að útkoman verður sveita- andrúmsloft og smá gamaldags stemningu líka.“ Falin perla með öðruvísi vöfflum Að sögn Rósu eru það mestmegnis Íslendingar sem sækja í Skemm- una, enda margir í bústöðum í nágrenninu og fjöldi fólks sem keyrir þarna framhjá. Rósa segir að ferða- menn láti einnig sjá sig öðru hverju og hafa viðtökurnar frá þeim verið þannig að þeim finnist oft eins og þeir hafi uppgötvað falda perlu. „Eldhúsið býður ekki uppá mikla möguleika á matreiðslu vegna smæðar, en okkur langaði líka til að bjóða uppá eitthvað meira matar- kyns og erum með vöfflur sem eru í raun eins og opin samloka, eða „matarvöfflur“ eins og við köllum þær,“ segir Rósa. „Þá eru þær sem sagt með áleggi, því vöfflurnar sjálf- ar eru ekki sætar. Þær hafa verið rosalega vinsælar hjá okkur.“ Þá rekur Rósa söguna hússins sjálfs. Skemman var reist árið 1896 fyrir Búnaðarskólann. Haustið 1903 brann skólinn og flutti flest heim- ilisfólkið í Skemmuna og bjó þar um eins árs skeið á meðan nýtt skólahús var í smíðum. Bjargaði því Skemman starfi Búnaðarskólans. „Að mér skilst þá voru staðar- menn að geyma hveiti og mjöl í kirkjunni á sínum tíma. Þá var biskup sem ætlaðist til þess að reist yrði skemma. Í gegnum tíðina hefur skemman verið notuð sem geymsla, en þegar ég var að alast upp á Hvanneyri þá var þetta yfirleitt bara kallað draugahúsið, en það var orðið heldur hrörlegt áður en skólin og safnaðarnefndin létu gera það upp með hjálp húsafriðunarnefnd- ar. Húsið er gert upp í upprunalegri mynd og það þarf því að bæta litlu við til að fá góða stemmningu í hús- ið. Bara góða kaffivél og vöfflujárn,“ segir hún á léttum nótum. Ilmandi kaffi og vöfflur í elsta húsi Hvanneyrar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.