Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 46
46 13. júlí 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 17. apríl 1946
Í
febrúarmánuði árið 1959 bjarg-
aðist áhöfnin á togaranum Þor-
keli Mána eftir að hafa lent í
ofsaveðri á miðunum við Ný-
fundnaland. Í þrjá sólarhringa
börðu skipverjar ísingu af skip-
inu án þess að una sér hvíldar og
minnstu munaði að skipið hvolfdist
í hafið. Á undraverðan hátt lifðu
þeir allir af en annar togari, Júlí,
fórst með allri áhöfn.
Heyrðu neyðarkall frá dönsku skipi
Togarinn Þorkell Máni RE-205 var
keyptur af Bæjarútgerð Reykja-
víkur árið 1952 frá bænum Gool í
Englandi. Þetta var dýrasti togar-
inn af átta sem keyptir voru, kostaði
rúmar tólf milljónir króna og var
nefndur í höfuðið á Þorkeli Mána
lögsögumanni, sonarsyni Ingólfs
Arnarssonar landnámsmanns.
Flestir togarar voru knúnir með
gufu á þessum tíma en Þorkell Máni
var díseltogari og því öflugri.
Á Þorkeli Mána var 32 manna
áhöfn og frá árinu 1956 var Mart-
einn Jónasson skipstjóri. Þetta var
fengsælt skip sem veitt hafði vel
þau ár sem Marteinn stýrði því. Í lok
janúar árið 1959 hélt skipið á mið-
in við Nýfundnaland í Kanada til
veiða og 4. febrúar var skipið kom-
ið á veiðisvæðið en þar voru einsta-
kelga gjöful karfamið.
Ferðin hófst á nöturlegan hátt
því á leiðinni út heyrðu skipverjar
neyðarkall frá dönsku Grænlands-
skipi, MS Hans Hedtoft. Það hafði
rekist á borgarísjaka í jómfrúarferð
sinni og var á leiðinni niður. Of
langt var fyrir Þorkel Mána og önn-
ur skip að koma til aðstoðar og því
sökk Hans Hedtoft með 95 manns,
þar af fimm börnum, á milli Græn-
lands og Danmerkur. Eitt versta sjó-
slys í sögu Danmerkur og Græn-
lands.
Ofsaveður skellur á
Þorkell Máni var í þrjá daga við Ný-
fundnaland, veðrið var sæmilegt og
veiðar voru góðar. Skipverjar voru
kátir og glaðir þó að vinnan væri
mikil. Föstudaginn 7. febrúar var
skipið orðið drekkhlaðið, ofhlaðið
í raun. Tonnin voru orðin 350 tals-
ins og því mikill fengur fyrir bæði
útgerðina og sjómennina sjálfa en
þetta skapaði hættu sem þeir sáu
ekki fyrir. Fleiri togarar voru á veið-
um á svæðinu, þar með taldir ís-
lensku togararnir Pétur Halldórs-
son, Bjarni riddari, Marz og Júlí.
Íslensku skipin veiddu öll í hnapp á
litlu svæði.
Um leið og Þorkell Máni var full-
ur skall á óveður. Skipið var gert sjó-
klárt á laugardeginum og siglt upp
Ríó tríó spiluðu
í kjólum
S
umarið 1977 kom þjóð-
lagahljómsveitin Ríó tríó
fram í kjólum á tónleikum
í Austurbæjarbíói og vakti
það heilmikla kátínu.
Ríó tríó skipuðu þeir Ólaf-
ur Þórðarson, Helgi Pétursson
og Ágúst Atlason. Þeir voru um
tíma ein vinsælasta hljómsveit
landsins og ásamt Þremur á palli
og Savanna tríóinu með stærstu
þjóðlagahljómsveitum Íslands-
sögunnar.
Ríó-menn klæddust oft bún-
ingum, sér í lagi þegar þeir
komu fram í sjónvarpi. Í eitt
skiptið klæddust þeir kjólum og
voru með farða en það var á tón-
leikum í Austurbæjarbíói og þá
kölluðu þeir sig Mánasystur.
Þeir sungu aðeins eitt lag,
Ástin mín eina Steini, og þá í
mikilli falsettu. Meirihlutinn af
sýningunni fór í að segja skrýtl-
ur og sögur. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kraftaverkið á Þorkeli Mána
Skipverjar börðu ísinn. Norðurslóð
18. desember 2002.
Helgi lengdur
um 31 senti-
meter í Síberíu
Á
rin 1982 og 1984 fór ís-
lenskur drengur, Helgi
Óskarsson, í lengingar-
aðgerðir til Síberíu.
Lengdist hann þá alls um 31
sentimetra, og var orðinn 148
sentimetrar að hæð að þeim
loknum.
„Ég var yfir mig ánægð að sjá
Helga. Þetta gengur allt svo vel,“
sagði Ingveldur Höskuldsdóttir,
móðir Helga í viðtali við DV 10.
ágúst árið 1984.
Það var prófessor Ilizarov sem
hafði umsjón með aðgerðum
Helga í borginni Kurgan í Síber-
íu í þáverandi Sovétríkjunum. Í
fyrra skiptið var hann lengdur
um 18 sentimetra og 13 í seinna.
Aðgerðirnar voru mjög sárs-
aukafullar og var Helgi til dæm-
is hengdur upp á nóttunni, of
sársaukafullt var að liggja alla
nóttina. Spítalinn í Kurgan sér-
hæfði sig í þessum aðgerðum
og voru fjöldi barna frá ýmsum
Evrópuríkjum þar, þar á meðal
19 ára íslensk stúlka, Valgerður
Hansdóttir. n