Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 14
14 13. júlí 2018FRÉTTIR
„Hún gerði
alltaf allt
sjálf og lét ekkert
aftra sér. Þannig
var Hulda.
Þ
ann 4. júní 2015 lagð-
ist Hulda Hreiðarsdóttir til
svefns, hún vaknaði aldrei
aftur. Hulda var aðeins 32
ára, fædd 16. júlí 1982 og skildi hún
eftir sig þrjú börn á aldrinum 9-15
ára og eiginmann. Útför Huldu
fór fram á Kvennadaginn, 19. júní
2015. Hulda var eldhugi og frum-
kvöðull, sem hafði ríka þörf fyr-
ir að skapa og heimur barna flétt-
aðist inn í allt hennar líf og starf.
Vinir og ættingjar Huldu ákváðu
að halda minningu hennar á lofti í
þeim anda og núna þremur árum
eftir andlát hennar hafa þeir stofn-
að frumleikafélagið Huldu og fyrsti
viðburður félagsins er barnahátíð
sem haldin verður í næstu viku í
Grundargerðisgarði.
„Hulda var lífið, hlátur, sköp-
unarkraftur, frásagnagleði og fram-
kvæmdahugur,“ segir Bryndís,
systir Huldu, sú yngsta af fjórum
systkinum.
„Með Frumleikafélaginu viljum
við minnast hennar fyrir allt það
góða og uppbyggilega sem hún
var og gefa okkur leyfi til að
rækta þessa eiginleika í okk-
ur sjálfum, börnum okkar
og okkar nánustu. Okk-
ur langar að skapa tæki-
færi til þess með stórum
sem smáum hitting-
um og viðburðum sem
skora á okkur að fara
út fyrir kassann, leika
okkur í lífinu og njóta
þess saman,“ segir Helga
systir Huldu.
Verkefnið hlaut styrk
frá hverfisjóði Háleit-
is og Bústaða og Frístunda-
miðstöð Kringlumýri hefur
einnig stutt Frumleikana. Í um-
sókn um styrk til hverfissjóðsins
segir: „Frumleikafélagið Hulda er
óformlegt félag vina og ættingja
Huldu, eldhuga og frumkvöðuls,
fyrir bættum aðstæðum barna
til leiks og þroska. Fráfall henn-
ar var mikið áfall fyrir stóran hóp
fólks sem teygði sig víða um heim.
Fólk sem allmargt vinnur að bætt-
um aðstæðum barna. Hulda setti
mark sitt hvar sem hún kom við og
má þar nefna frumkvöðlasamfé-
lagið hér heima og skólaumhverfi
barna sinna. Hún áorkaði miklu
og er missir af þessari kröftugu
ungu konu fyrir samfélagið allt.“
Fyrsti viðburður félagsins er
barnahátíð
Þann 16. júlí 2018 hefði Hulda orðið
36 ára. Í tilefni dagsins stefnum við á
að halda fyrstu Frumleika félagsins
í þessu fallega hverfi, þar sem börn-
in hennar búa. Hægt er að finna
upplýsingar um viðburðinn á sér-
stakri Facebook-síðu.
Frumleikarnir verða
barnamiðaður viðburð-
ur fyrir fjölskylduna alla
sem miðar að því að taka þátt
í leikjum og leysa óvenjulegar og
furðulegar þrautir af ýmsum gerð-
um. Áhersla verður á að styrkja já-
kvæða sjálfsmynd, æfa hugrekkið
og æfa sig í að það er allt í góðu lagi
að gera mistök. En umfram allt er
áherslan á að hafa gaman.
Í hverju horni garðsins verður
eitthvað skrítið og skemmtilegt til
þess að skapa, prófa eða bara njóta.
Til að mynda mun Gunnar Aðal-
steinn, átta ára snillingur, kenna
hátíðargestum að gera blöðrudýr
og sirkusungmenni bjóða upp á æf-
ingarsvæði. Veitingar verða í anda
slow food og allt vegan. Það verð-
ur boðið upp á drykki, grænmeti og
ávexti og kveiktur varðeldur til þess
að baka sér snúrubrauð á grein.
Þeir sem vilja getað laumað sér inn
á milli trjánna og dillað sér í takt við
tónlist. Jafnvel hitað þar upp fyrir
boðhlaup eða reipitog.
„Von okkar í Frumleikafélaginu
er að sem flestir komi, slaki á og
skemmti sér vel. Allir eru hjartan-
lega velkomnir,“ segja þær systur.
Hulda hafði ríka þörf fyrir sköpun
bæði í leik og starfi
Hulda ólst upp ásamt systkinum
sínum í Reykjabyggð í Mosfellssveit
og í næsta húsi bjó fjölskylda föð-
urbróður þeirra og var mikill sam-
gangur á milli heimilanna. Mæður
þeirra voru með saumastofu í bíl-
skúrnum um tíma og feður þeirra
voru iðnaðarmenn. „Öll eru þau
með ríkt „do it yourself“-viðhorf
til allra verka. Þetta hafði mótandi
áhrif á Huldu og okkur öll. Hulda
var ekki aðeins listræn, hún var
einnig framkvæmdakona. Á meðan
við strákarnir í götunni spiluðum
fótbolta við strákana í næstu götu,
skipulagði hún heila Ólympíuleika
fyrir alla krakkana í hverfinu með
verðlaunapeningum og alles,“ segir
Arnar Ingi, bróðir Huldu.
Hulda hafði ríka þörf fyrir að
standa á eigin fótum og henni lá á
að komast út í lífið. 18 ára gömul
var hún búin að stofna fjölskyldu
og 26 ára var hún búin að klára há-
skólanám, eignast þrjú börn og
leggja drögin að fyrirtækinu sínu,
FAFU. Fyrirtækið, sem var stofn-
að árið 2009, var hennar hugmynd
og draumur sem varð að veruleika,
vegna vinnusemi hennar, metnað
og hæfileika. Árið 2012 var FAFU
keypt af Tom Shea sem hafði vit á
að fá Huldu til áframhaldandi starfa
og starfaði hún innan nýja fyrirtæk-
isins, FAFUNIA, sem „imaginator“
til síðasta dags. Þeirra samstarf var
mjög farsælt og hefur FAFU stækk-
að, þróast og dafnað með árunum.
Hulda var því með annan fótinn í
Bretlandi og breiddi út hugmynda-
fræði sína.
Hulda varðveitti alla tíð barnið
í sér, leikgleðina, sköpunarkraft-
inn og lífsgleðina. Í minningargrein
um systur sína, segir Arnar Ingi svo
frá: „Eitt sinn er hana langaði í sól-
pall í garðinn, þá smíðaði hún hann
sjálf án þess að hika. Hún hafði
með dyggri aðstoð föður okkar gert
upp bílskúrinn og breytt honum í
vinnustofu og var nýbúin að kaupa
sér fullt af verkfærum. Þar smíðaði
hún prótótýpur af hönnun sinni.
Hún gerði alltaf allt sjálf og lét ekk-
ert aftra sér. Þannig var Hulda.“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is Hulda varð bráðkvödd aðeins 32 ára gömul
Ástvinir blása til
barnahátíðar í
minningu hennar
n „Hulda var lífið, hlátur og sköpunarkraftur“
n Lét eftir sig eiginmann og þrjú börn
Gefur þetta
EXTRA
Frábært á kjötið, í
sósuna og ídýfuna