Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 33
BorgarfjörðurHelgarblað 13. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Geirabakarí í Borgarnesi hefur um árabil verið nauðsynlegur viðkomustaður alls ferðafólks
á leið um landið, en bakaríið er það
fyrsta sem blasir við þegar ekið er yfir
Borgarfjarðarbrúna inn í Borgarnes.
Þegar gengið er inn í Geirabak-
arí má finna ilm af nýbökuðu brauði,
angan af nýmöluðum kaffibaunum
sem stelpurnar í afgreiðslunni fram-
reiða af stökustu snilld og angan af
kökum sem framleiddar eru með ekta
gamaldags handverki. Bakaríið dregur
nafn sitt af stofnanda og núverandi
eiganda þess, Sigurgeiri Óskari Er-
lendssyni.
Á góðviðrisdögum er hægt að
setjast með kaffi og meðlæti við bekki
og borð úti á stétt og virða fyrir sér
taumlausa náttúrufegurðina norður
yfir endilangan Borgarfjörðinn og eins í
vestur út á hafið. Á staðnum má einnig
finna mjölkurvörur, álegg, viðbit, súpu
dagsins, brauðasalöt, smurbrauðs-
samlokur og ýmslegt fleira.
Hröð afgreiðsla og starfsmenn með
fagmennskuna að vopni
„Á venjulegum degi erum við að smyrja
allt frá 18 upp í 24 tegundir af smur-
brauði í borðið, þannig að úrvalið er
gríðarlegt, annað eins er bakað af
sætabrauði, sem nær vel á annan
tuginn,“ segir Jóhanna Erla Jónsdóttir
mannauðsstjóri Geirabakarís.
Starfsmenn Geirabakarís eru 25
talsins og getur veitingasalurinn tekið
á móti um 70 manns.
Erla segir staðinn
afar heppinn með
starfsfólk þar sem
starfsmanna-
velta er ekki mikil,
starfsfólkið skilar
starfi sínu vel og
gott betur þegar
mikið er að gera.
Góður starfsandi
er það sem öllu máli
skiptir fyrir bæði þjón-
ustu og anda.
Segir Erla að eina lykilstefna
staðarinns sé hröð afgreiðsla með
fagmennskuna til fyrirmyndar, en
bætir hún kát við að það geti oft
reynst erfitt að afgreiða viðskiptavini
hratt og vel þegar úrvalið er svo mikið
að valkvíðinn sækir að fólk
Unnið frá grunni
„Fólkið er okkar besta auglýsing,“ segir
Erla og fullyrðir að góðar viðtökur fólks
sé staðnum mikils virði og hvernig
þjónustan spyrst út.
„Ég er ekki búin að ákveða daginn
áður hvernig súpa verður í pottinum
á morgun, það fer allt eftir hvorum
megin ég fer framúr,“ segir Erla
kímin. „Nei, það fereftir veðrinu og
stemningunni í bakaríinu. Þetta
eru allt súpur sem gerðar eru frá
grunni, en ekki pakkasúpur.“
Plastpokalaust bakarí
Í bakarínu er einnig veglegt úrval af
veislutertum fyrir ýmis tilefni, til að
mynda marsípantertur, brauðtertur
og gamaldags rjómatertur svo eitt-
hvað sé nefnt. „Einnig erum við með
brauðtertur og snittur. Það nýjasta
hjá okkur eru svokallaðir brauða-
bakkar sem við útbúum oft fyrir
hópa í nesti, þá erum við kannski
með þrjár tegundir af litlum brauð-
bitum með allskonar áleggi, ostum
og sósum. Þetta er afar vinsælt hjá
okkur fyrir hin ýmsu tilefni. Svo við
tölum ekki um brauðasalötin sem
við gerum að sjálfsögðu hérna í
bakaríinu sem og hráfæðikökurn-
ar, pestóið og booztin,“ segir hún.
„Svo eru strákarnir af og til að prófa
og þróa nýja hluti sem fá svo einn
daginn að líta dagsins ljós í borðinu
frammi, en allt tekur sinn tíma í
vöruþróun svo spennandi tímar eru
framundan.“
Að sögn Erlu stendur til
á næstunni að verða
eins plastpokalaust
bakarí og kostur
er en sú vinna er
hafin og þegar
höfum við tekið
út burðarpokana
úr plasti og kom-
in með bréfpoka
í staðinn, stefnan er
svo á að öll dagvara
sem seld er yfir borðið verði
afgreidd í bréfpokum eða öðrum
umhverfisvænni umbúðum. „Það
er í vinnslu hjá okkur að koma með
aðrar umbúðir en plast. Fólk hefur
tekið mjög vel í það,“ segir hún.
„Borgarbyggð fór í herferð um
plastpokalaust samfélag og var
með saumaða poka sem Fjöliðan
gerði. Út frá því tókum við þátt í
þessu og stefnum að því áfram að
plastpokaafvæða Borgarnes.“ Verið
velkomin í Geirabakarí segir Erla að
lokum
Miklu meira en bara
brauð og bakkelsi