Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 33
BorgarfjörðurHelgarblað 13. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ Geirabakarí í Borgarnesi hefur um árabil verið nauðsynlegur viðkomustaður alls ferðafólks á leið um landið, en bakaríið er það fyrsta sem blasir við þegar ekið er yfir Borgarfjarðarbrúna inn í Borgarnes. Þegar gengið er inn í Geirabak- arí má finna ilm af nýbökuðu brauði, angan af nýmöluðum kaffibaunum sem stelpurnar í afgreiðslunni fram- reiða af stökustu snilld og angan af kökum sem framleiddar eru með ekta gamaldags handverki. Bakaríið dregur nafn sitt af stofnanda og núverandi eiganda þess, Sigurgeiri Óskari Er- lendssyni. Á góðviðrisdögum er hægt að setjast með kaffi og meðlæti við bekki og borð úti á stétt og virða fyrir sér taumlausa náttúrufegurðina norður yfir endilangan Borgarfjörðinn og eins í vestur út á hafið. Á staðnum má einnig finna mjölkurvörur, álegg, viðbit, súpu dagsins, brauðasalöt, smurbrauðs- samlokur og ýmslegt fleira. Hröð afgreiðsla og starfsmenn með fagmennskuna að vopni „Á venjulegum degi erum við að smyrja allt frá 18 upp í 24 tegundir af smur- brauði í borðið, þannig að úrvalið er gríðarlegt, annað eins er bakað af sætabrauði, sem nær vel á annan tuginn,“ segir Jóhanna Erla Jónsdóttir mannauðsstjóri Geirabakarís. Starfsmenn Geirabakarís eru 25 talsins og getur veitingasalurinn tekið á móti um 70 manns. Erla segir staðinn afar heppinn með starfsfólk þar sem starfsmanna- velta er ekki mikil, starfsfólkið skilar starfi sínu vel og gott betur þegar mikið er að gera. Góður starfsandi er það sem öllu máli skiptir fyrir bæði þjón- ustu og anda. Segir Erla að eina lykilstefna staðarinns sé hröð afgreiðsla með fagmennskuna til fyrirmyndar, en bætir hún kát við að það geti oft reynst erfitt að afgreiða viðskiptavini hratt og vel þegar úrvalið er svo mikið að valkvíðinn sækir að fólk Unnið frá grunni „Fólkið er okkar besta auglýsing,“ segir Erla og fullyrðir að góðar viðtökur fólks sé staðnum mikils virði og hvernig þjónustan spyrst út. „Ég er ekki búin að ákveða daginn áður hvernig súpa verður í pottinum á morgun, það fer allt eftir hvorum megin ég fer framúr,“ segir Erla kímin. „Nei, það fereftir veðrinu og stemningunni í bakaríinu. Þetta eru allt súpur sem gerðar eru frá grunni, en ekki pakkasúpur.“ Plastpokalaust bakarí Í bakarínu er einnig veglegt úrval af veislutertum fyrir ýmis tilefni, til að mynda marsípantertur, brauðtertur og gamaldags rjómatertur svo eitt- hvað sé nefnt. „Einnig erum við með brauðtertur og snittur. Það nýjasta hjá okkur eru svokallaðir brauða- bakkar sem við útbúum oft fyrir hópa í nesti, þá erum við kannski með þrjár tegundir af litlum brauð- bitum með allskonar áleggi, ostum og sósum. Þetta er afar vinsælt hjá okkur fyrir hin ýmsu tilefni. Svo við tölum ekki um brauðasalötin sem við gerum að sjálfsögðu hérna í bakaríinu sem og hráfæðikökurn- ar, pestóið og booztin,“ segir hún. „Svo eru strákarnir af og til að prófa og þróa nýja hluti sem fá svo einn daginn að líta dagsins ljós í borðinu frammi, en allt tekur sinn tíma í vöruþróun svo spennandi tímar eru framundan.“ Að sögn Erlu stendur til á næstunni að verða eins plastpokalaust bakarí og kostur er en sú vinna er hafin og þegar höfum við tekið út burðarpokana úr plasti og kom- in með bréfpoka í staðinn, stefnan er svo á að öll dagvara sem seld er yfir borðið verði afgreidd í bréfpokum eða öðrum umhverfisvænni umbúðum. „Það er í vinnslu hjá okkur að koma með aðrar umbúðir en plast. Fólk hefur tekið mjög vel í það,“ segir hún. „Borgarbyggð fór í herferð um plastpokalaust samfélag og var með saumaða poka sem Fjöliðan gerði. Út frá því tókum við þátt í þessu og stefnum að því áfram að plastpokaafvæða Borgarnes.“ Verið velkomin í Geirabakarí segir Erla að lokum Miklu meira en bara brauð og bakkelsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.