Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 36
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ Sveitamarkaðurinn Ljómalind hefur verið starfandi í rúm fimm ár eða allt frá því 17. maí árið 2013. Hefur starfsemin dafn- að og vaxið jafnt og þétt síðan þá. Markaðurinn er til húsa að Brúar- torgi 4 í Borgarnesi og er opinn alla daga vikunnar allt árið um kring. „Þessar afurðir eiga það allar sameiginlegt að vera frá Vestur- landi. Mest úr Borgarnesi og nær- sveitum en líka úr Dölunum, Akranesi og Snæfellsnesi,“ segir Sigurbjörg Kristmundsdóttir en hún stendur vaktina alla virka daga í Ljómalind ásamt annarri konu en auk þeirra tveggja er helgarstarfsfólk á vökt- um. Markaðurinn er opinn í sumar frá 10 til 18 alla daga vikunnar. Hann nýtur vinsælda meðal heimafólks, erlendra ferðamanna og innlendra ferðamanna. „Þetta er alltaf að vaxa og fólk er að uppgötva okkur í meira mæli. Sífellt fleiri sækjast eftir því að selja varning sinn hjá okkur og þeim fjölgar líka mikið sem vilja koma hingað og kaupa afurðir úr hér- aðinu,“ segir Sigurbjörg. Afar fjölbreyttur varningur er í boði í Ljómalind frá um 70 aðilum: „Hér er matur beint frá býli, kjöt, sultur, tómatar, gúrkur og melón- ur, svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru hér peysur og aðrar flíkur, alls konar listaverk, skartgripir og handverk. Hins vegar seljum við ekki hvað sem er, leggjum mikið upp úr gæðum og að varningurinn sé gerður úr náttúrulegum efnum. Og við erum umhverfisvæn eftir fremsta megni,“ segir Sigurbjörg. Vöruþróun á staðnum Nýtt og spennandi verkefni, mat- arsmiðja undir heitinu Matarlind, hefur verið komið á fót af Ljómalind í samstarfi við SSV. Frumkvöðlar í matargerð geta nú fengið aðstöðu á staðnum til að þróa vöru sína áfram í vel útbúnu, vottuðu eldhúsi. Þegar varan er fullgerð og fengist hefur söluleyfi kemst hún í sölu í Ljómalind. „Það sem helst hefur staðið frum- kvöðlum fyrir þrifum er að koma vör- unni á markað en hér bíður mark- aður hennar svo framarlega sem öll leyfi eru fyrir hendi,“ segir Sigurbjörg. Það er full ástæða til að hvetja þá sem leggja land undir fót á næstunni til að koma við í Ljómalind í Borgarnesi og eiga góða stund á þessum líflega og áhugaverða markaði þar sem hægt er að kaupa hágæðavörur úr héraði. Sjá nánar á vefsíðunni ljomalind.is. LJÓMALIND: Sveitamarkaður með hágæða afurðir af Vesturlandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.