Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Blaðsíða 37
KYNNING
Bestu fagmennirnir eru þeir sem hafa ástríðu fyrir sínu fagi. Parket-
slípun Meistarans er fyrirtæki
sem rekið er af ástríðu fyrir
því að skila framúrskarandi
vinnu á sínu sviði og standa
undir tilkomumiklu nafni
fyrirtækisins. Parketslípun
Meistarans sérhæfir sig í
parketslípun, parketlögn-
um, sólpallasmíði og ýmsum
öðrum skyldum verkefnum,
fyrir einstaklinga jafnt sem
fyrirtæki.
Fáir, ef nokkrir, hafa lagt
og slípað parket jafn víða og
Parketslípun Meistarans en
parketlögn og parketslípun er
handverk sem krefst mikillar
og stöðugrar þjálfunar. Legg-
ur fyrirtækið sig fram um að
þjálfa og mennta sitt starfs-
fólk vel til þessara vanda-
sömu verka.
Fyrirtækið tekur einnig að
sér alla almenna smíðavinnu,
þar á meðal smíði sólpalla,
uppsetningu hurða, upp-
setningu á eldhúsinnrétting-
um, sem og alla sérsmíði.
Gott lakk er afar mikilvægt
og Parketslípun Meistarans
notast aðeins við það besta
á markaðnum, einnig hvað
varðar parketefnið sjálft
en fyrirtækið er með fram-
úrskarandi parketvörur frá
Bona og Junckers. Einnig
býður fyrirtækið þetta góða
parketefni til sölu á hag-
stæðu verði.
Parketslípun Meistarans
hefur yfir að ráða fyrsta
flokks tækjabúnaði, meðal
annars beltavél, kantslípivél,
hornavél, juðara, bónvél og
öfluga sérhæfða ryksugu.
Þessi tæki eru einnig boðin til
útleigu á hagstæðu verði.
Parketslípun Meistarans
ábyrgist vandaða vinnu
við öll sín verkefni en veitir
viðskiptavinum jafnframt
gjaldfrjálsa ráðgjöf um val á
parketi og frágang.
Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni https://parketslip-
unmeistarans.is/ og á Face-
book-síðunni Parketslípun
Meistarans. Einnig er gott
að hafa samband við Adam
í síma 7625668 eða senda
fyrirspurn á netfangið park-
etslipun@parketslipunmeistar-
ans.is hvort sem þú óskar eftir
þjónustu, ráðgjöf, tækjaleigu
eða kaupum á parketvörum.
PARKETSLÍPUN MEISTARANS:
Ástríða, þekking og reynsla