Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 32
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
Á Hvanneyri stendur kaffihús-ið Skemman í friðsælu og fallegu umhverfi. Þangað
laðast margir sem eiga leið hjá á
sumrin og standast ekki lokkandi
ilminn af vöfflum, súpum og kaffinu
með því.
Þessi notalega skemma, með sal
á efri hæð, sem er í senn safna-
heimili og elsta húsið á Hvanneyri,
hefur trekkt upp hverja jákvæðu
umsögnina á eftir annarri á ferða-
mannasíðum á borð við Trip Advisor.
Lof hafa sérstaklega fallið vegna
andrúmsloftsins, viðkunnanlegrar
þjónustu og bragðmikilla kræsinga.
Rósa Björk umsjónarmaður og
rekstaraðili Skemmunnar, stendur
vaktina fjórða sumarið í röð. Hún
segir staðinn vinna mjög mikið úr
litlu enda gafst lítið pláss fyrir eld-
hús þegar kom að standsetningu
staðarins.
„Hugmyndin var að hafa vöfflur
og kaffi en svolítið öðruvísi,“ seg-
ir Rósa, „þannig að við erum með
stórar belgískar vöfflur og fengum
flotta Espresso-vél af eldri gerð,
þannig að útkoman verður sveita-
andrúmsloft og smá gamaldags
stemningu líka.“
Falin perla með öðruvísi vöfflum
Að sögn Rósu eru það mestmegnis
Íslendingar sem sækja í Skemm-
una, enda margir í bústöðum í
nágrenninu og fjöldi fólks sem keyrir
þarna framhjá. Rósa segir að ferða-
menn láti einnig sjá sig öðru hverju
og hafa viðtökurnar frá þeim verið
þannig að þeim finnist oft eins og
þeir hafi uppgötvað falda perlu.
„Eldhúsið býður ekki uppá mikla
möguleika á matreiðslu vegna
smæðar, en okkur langaði líka til að
bjóða uppá eitthvað meira matar-
kyns og erum með vöfflur sem eru
í raun eins og opin samloka, eða
„matarvöfflur“ eins og við köllum
þær,“ segir Rósa. „Þá eru þær sem
sagt með áleggi, því vöfflurnar sjálf-
ar eru ekki sætar. Þær hafa verið
rosalega vinsælar hjá okkur.“
Þá rekur Rósa söguna hússins
sjálfs. Skemman var reist árið 1896
fyrir Búnaðarskólann. Haustið 1903
brann skólinn og flutti flest heim-
ilisfólkið í Skemmuna og bjó þar
um eins árs skeið á meðan nýtt
skólahús var í smíðum. Bjargaði því
Skemman starfi Búnaðarskólans.
„Að mér skilst þá voru staðar-
menn að geyma hveiti og mjöl í
kirkjunni á sínum tíma. Þá var biskup
sem ætlaðist til þess að reist yrði
skemma. Í gegnum tíðina hefur
skemman verið notuð sem geymsla,
en þegar ég var að alast upp á
Hvanneyri þá var þetta yfirleitt
bara kallað draugahúsið, en það var
orðið heldur hrörlegt áður en skólin
og safnaðarnefndin létu gera það
upp með hjálp húsafriðunarnefnd-
ar. Húsið er gert upp í upprunalegri
mynd og það þarf því að bæta litlu
við til að fá góða stemmningu í hús-
ið. Bara góða kaffivél og vöfflujárn,“
segir hún á léttum nótum.
Ilmandi kaffi og vöfflur í elsta
húsi Hvanneyrar