Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Page 56
56 13. júlí 2018FRÉTTIR - ERLENT 30 ára fangelsi fyr- ir spillingu. Það var dómurinn sem var nýlega kveðinn upp í Brasilíu yfir Eike Batista sem var talinn djarfasti og farsæl- asti frumkvöðull sinnar kynslóð- ar. En nú er hann einhverskonar táknmynd nýrra tíma í landi sem reynir að koma efnahagsmálun- um á réttan kjöl um leið og tekið er á landlægri spillingu. Batista var eitt sinn talinn vonarljós og margir bundu miklar vonir við hann en fótunum var kippt und- an viðskiptaveldi hans á örskots- stundu og hann verður ekki þátt- takandi þar næstu áratugina. Brasilía glímir við efnahagslega erfiðleika en fyrir nokkrum árum var landið rísandi efnahagsveldi þar sem allt var í blóma og landið nálgaðist þróaðri lönd óðfluga á efnahagssviðinu. En síðan hrundi allt saman. Pólitísk kreppa, spilling, samdráttur, pólitísk hneykslismál og mikill niðurskurður; allt gerðist þetta á nokkrum mánuðum. Í umfjöllun BBC um Batista kemur fram að hann hafi verið kaupsýslumaður sem auðgaðist á námuvinnslu með því að leggja hart að sér, hann bjó yfir persónu- töfrum og þekkti rétta fólkið í við- skiptaheiminum. Hann stund- aði háskólanám í Þýskalandi og vann fyrir sér þar sem trygginga- sölumaður. Dag einn las hann um gullæði í miðhluta Brasilíu og ákvað þá að hætta í skóla og flytja aftur heim. Hann fékk lánaða peninga hjá skartgripasölum í Rio de Janeiro og Sao Paulo og keypti gullnámu. Þar með var grunnurinn lagður að viðskiptaveldi hans enda leið ekki á löngu þar til hann hafði eign- ast sína fyrstu milljón dollara. Við- skiptaveldi hans óx og hann tók upp samstarf við stór námafyrirtæki á borð við Rio Tinto. Hann var einnig í sviðsljósinu á öðrum sviðum því hann kvæntist ástsælustu fyrirsætu landsins, Luma de Oliveira, sem einnig var þekkt fyrir keppni og sigra í hraðbátasigl- ingum. Þegar uppgangurinn var sem mestur í brasilísku efnahagslífi í byrjun aldarinnar náðu vinsældir Batista hámarki. Árið 2012 var hann talinn sjöundi ríkasti maður heims samkvæmt lista Forbes en eignir hans voru þá metnar á 35 milljarða dollara. Hann var fyrirmynd margra ungra frumkvöðla. Lengi að ná toppnum – Hröð niðurleið Það tók Batista 30 ár að ná toppnum sem kaupsýslumaður í Brasilíu en fall hans gekk mun hraðar fyrir sig. Árið 2013 áttu fyrirtæki hans í fjárhagslegum erfiðleikum. Batista hafði með persónutöfrum sínum fengið marga fjárfesta til að leggja fjár- muni í flókin og dýr innviðaver- kefni, námuvinnslu og verkefni tengd olíuiðnaðinum. En olíu- lindirnar sem hann hafði keypt skiluðu ekki nægri olíu. Innviða- verkefnum var slegið á frest og áætlaður hagnaður varð að tapi. Hann seldi fyrirtæki sín, snekkj- una og megnið af fasteignum sínum í Rio de Janeiro og hét því að bjarga fyrirtækjum sínum frá gjaldþroti. En eftir því sem sérfræðingar segja þá voru fyrirtæki hans byggð upp á einhverju allt öðru og ískyggilegra en mikilli vinnu og hugrekki. Í átaki gegn spill- ingu 2017, sem leiddi í ljós spill- ingu innan allra helstu stjórn- málaflokka landsins, kom í ljós að Batista hafði notað sambönd sín við embættismenn í Rio de Janeiro til að verða sér úti um opinber verkefni. Handtökuskipun var gefin út á hendur honum þegar hann var staddur í New York. Vangaveltur voru uppi um að hann myndi láta sig hverfa en hann bókaði strax flug heim og gaf sig fram. Hann var handtekinn um leið og hann kom til Brasilíu og færð- ur í fangelsi með „venjulegum“ glæpamönnum. Hann deildi klefa með fleiri og aðeins eitt klósett var í klefanum. Þar sem hann hafði ekki lokið háskóla- námi átti hann ekki rétt á einka- klefa. Reyndi fyrir sér á Youtube Batista varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera ann- ar í röð þeirra sem hafa komist á lista Forbes yfir milljarðamær- inga til að vera handtekinn. Hinn var fíkniefnabaróninn Pablo Escobar. Batista var látinn laus eft- ir nokkra mánuði og gert að sæta stofufangelsi á meðan mál hans var til meðferðar hjá dóm- stólum. Nýlega var hann síðan dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa greitt Sergio Cabral, fyrrum ríkisstjóra Rio de Janeiro, 16,5 milljónir dollara í mútur. Cabral var dæmdur í 93 ára fangelsi fyrir að hafa þegið mútur. Ekki eru mörg ár síðan Dilma Rousseff, þáverandi for- seti Brasilíu, hrósaði Batista í hástert og sagði hann vera „þjóðarstolt“ brasilískra kapita- lista. „Þjóðarstoltið“ nýtti tím- ann í stofufangelsinu til að reyna fyrir sér á YouTube með ráð- gjöf um fjárfestingar og ýmislegt annað. En dómurinn yfir honum bindur líklega enda á þessa nýju iðju hans enda fær hann líklega ekki að vera með netaðgang í fangelsinu, hvað þá að standa í framleiðslu myndbanda fyrir YouTube. n „ Batista varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera annar í röð þeirra sem hafa komist á lista Forbes yfir millj- arðamæringa til að vera hand- tekinn. Hinn var fíkniefnabarón- inn Pablo Escobar. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is RIS OG FALL „ÞJÓÐARSTOLTS BRASILÍSKRA KAPÍTALISTA“ n Ótrúleg auðæfi og fegurðardrottning upp á arminn n Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir spillingu Luma de Oliveira og Eike Batista. Gylfaflöt 6 - 8 LOKUM 20. JÚLÍ HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI YKKUR 14. ÁGÚST AÐ GYLFAFLÖT 6-8 VEGNA FLUTNINGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.