Jökull


Jökull - 31.12.2001, Page 81

Jökull - 31.12.2001, Page 81
Jöklabreytingar 1930-1960, 1960-1990 og 1999-2000 Oddur Sigurðsson Orkustofnun, Grensásvegi 9,108 Reykjavík; osig@os.is YFIRLIT — Nú er 20.öldin liðin og því ástæða til að líta aðeins yfir farinn veg. Mœlingamenn gengu nú til jökia í 71 .sinn og hafa sumir þeirra sýnt fádœma úthald í því verki sem Jón Eyþórsson byrjaði árið 1930 af mikilli framsýni og góðu heilli. Þar með höfum við upplýsingar um hreyfingar margra jökla í sjö áratugi og á þeim tíma hafa miklar sveiflur orðið í veðurfari. Sporðamœlingar eru það einfaldasta sem völ er á í jöklamœlingum en jafnframt sennilega það mikilvœgasta því að margt er á huldu ef viðbrögð jökulsins sjálfs eru ekki mœld og skjalfest. Afýmsum gögnum má sjá að í lok tuttugustu aldar eru jöklar almennt minni en þeir voru á sautjándu öld. Hvað mestir voru þeir undir lok 19. aldar en minnkuðu örast á öðrum þriðjungi nýliðinnar aldar. Þar getur ekki verið neinu öðru um að kenna en hlýindaskeiði, sem hófst á þriðja áratugnum. Ekki var öll öldin samfelld hlýindi og má segja að tímabilið frá 1965 til 1985 hafi líkst litlu ísöld hvað hitafar varðar. Jöklarnir létu þá ekki á sér standa og gengu flestir fram í aldarfjórðung en mismikið. Síðustu 5 ár aldarinnar reyndust jöklunum þung í skauti og hopa þeir nú nánast allir. Veturinn 1999-2000 var snjóléttur um norðanvert landið en mun meira snjóaði á sunnanverðu hálendinu en var árið á undan. Sumarið 2000 var fremur hlýtt og sólríkt að því er kemurfram á vefVeðurstofunnar. Jöklamœlingamenn vitjuðu jökulsporða á 47 stöðum haustið 2000. Afþeim hopuðu 40, einn gekk fram enfjórir stóðu í stað. Grímslandsjökull og Virkisjökull vörðust frétta sem og oft að undanförnu. Leirufjarðarjökull var sá eini, sem fœrðist fram á síðast liðnu ári eins og hann hefur gert nú í 6 ár samfellt, samtals 1150m síðan 1995. Kaldalónsjökull mœldist á sama stað og í fyrra en sýnilegt er að hann hefur gengið nokkrum metrum framar þegar fremst stóð. Tveir afþeim jöklum, sem mœlast kyrrstæðir (Kvíár- og Hrútárjökull) eru undir aurkápu í sporðinn og ná því ekki að bráðna eins og eðlilegt vœri. Það sama á við um Virkisjökul. Þeir eru hins vegar að lækka mikið innar og eru því í reynd að minnka. Hannes Jónsson reyndist sannspár 1998 um að Skeiðarárjökull myndi hopa ört að vestanverðu því að hann hefur styst um fjórðung úr kílómetra á tveim árum. Þótt Dyngjujökull sé ekki skipulega mœldur af félagsmönnum sakar ekki að geta þess hér að hann hljópfram veturinn 1999-2000 um 1200-1300 m samkvœmt mœlingum á loftmyndum. AFKOMUMÆLINGAR Hér fylgja í töflu 1 tölur um afkomu Hofsjökuls sam- kvæmt mælingum Orkustofnunar (Oddur Sigurðsson, 1989, 1991, 1993; Oddur Sigurðsson og Ólafur Jens Sigurðsson 1998). Til samanburðar eru einnig í töfl- unni samsvarandi tölur fyrri ára. ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR Snæfellsjökull Hyrningsjökull mælist kyrrstæður því snjó frá síðasta vetri hefur ekki tekið alveg upp við sporðinn. Hall- steini Haraldssyni virðist hann samt þynnast verulega. Drangajökull Kaldalónsjökull - Jökulsporðurinn mælist á sama stað og í fyrrahaust en hefur þó mjakast ögn framar á árinu. Indriði á Skjaldfönn lýsir árferði og verkum manna svo: „Síðasti vetur var mjög mildur, snjólétt- ur, veðurvægur og voraði snemma og vel. Sumarið framanaf of þurrt fyrir túnsprettu, hlýindi óvenjuleg í júlí og ágúst og fór mesti dagshiti nánast alltaf í 18°C eða meira þá mánuði. Haustið milt og næturfrost til skaða ekki fyrr en eftir miðjan september. Spretta í túnum og úthaga að lokum ágæt, heyfengur mikill og góður og berjaspretta með ólíkindum og víða sást ekki í krækiberjalyngið fyrir lambasparðastórum hnullung- um. Sem dæmi um magnið, fyllti ég 10 lítra fötu af krækiberjum á 40 mínútum. JÖKULLNo. 51 79
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.