Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 85
Jöklabreytingar 1999-2000
Örlítið nýsnævi lá á jöklinum og því var Heklu-
askan sem litað hefur jökulinn síðan um mitt sum-
ar ekki áberandi. Jökulsporðurinn er þakinn mikilli
urð vestan til, en alls staðar stendur jökulís framund-
an urðinni og í henni glittir víða á ísinn. Ekki fór ég
mikið upp á jökulinn, en hvar sem ég skoðaði var yf-
irborð hans glerharður ís en ekki hjarn.
Að þessu sinni mældi ég fyrst við vestasta merk-
ið. Línan þar hittir núna á allstórt vik í jökulsporðinn,
eina staðinn á löngum kafla sem ekki er þakinn urð.
Þetta er þó vel marktækur staður og sporðurinn mjög
greinilegur. Þarna gaf mæling 116m sem er hop um
41 m á 4 árum.
Línan við miðmerkið kemur að greinilegum jök-
uljaðri framan undir mikilli urð. Mælingin gaf 80 m,
sem er hop um 30 m á 4 árum. Mjög marktæk mæling.
Við austasta merkið hafði jökullinn greinilega
hopað gríðarlega. Virðist sem þunn jökultunga sem
ég skoðaði fyrir 4 árum sé nú alveg bráðnuð og lendir
línan nú að greinilegum, allbröttum stað á sporðinum.
Mælingin gaf 221 m eða hop um 154 m á 4 árum. Eg
tek þessa tölu varlega, en tel að framvegis verði meira
að marka þennan stað.
Að lokum gaf ég mér góðan tíma við að mæla
gömlu línuna. Hún er greinileg, en ég fæ tölurnar
ekki til þess að passa við eldri upplýsingar. Frá gamla
jöklamerkinu að vörðu með bambusstöng 175 m (ekki
75 m eins og misritaðist í síðustu skýrslu). Frá henni
að annarri vörðu eru 135 m. I þá vörðu setti ég
sópskaft sem ég fann á staðnum. Frá efri vörðunni að
jöklinum eru 30 m. Samtals frá merki að jökli 340 m
sem er framskrið um 3 m á fjórum árum ef rétt hefur
verið mælt. Rétt er væntanlega að taka tillit til þess að
síðast hitti mælilínan á 20-30 m vik í jaðarinn, en nú
er hann alveg beinn. Eg tek því tölunni fyrir fjórum
árum fremur varlega, en þessi tala er alveg klár.
Um klukkan 14 hélt ég heim á leið og gekk und-
an vaxandi sunnanátt og rigningu niður í dalinn. Var
kominn að Bægisá kl. 17:00.“
Grímslandsjökull - Karl Halldórsson og Sigurður
Bjarklind fóru 2. september til mælinga í góðu veðri
(2. mynd). Gífurlega mikið hafði þiðnað frá í fyrra en
þó var 10-15 m breið hjarnrönd yfir sporðinum sem
sést af meðfylgjandi mynd. Hann hefur því nokkurn
veginn staðið í stað. Leið þeirra lá þaðan upp á Kota-
hnjúk og norður á Skálavíkurhnjúk en nú var jökullinn
þar norðvestanundir gersamlega ófær vegna sprungna
enda mikil leysing í sumar.
Langjökull
Hagafellsjökull eystri - Theodór Theodórsson tekur
fram að stór eyri hefur myndast út í lónið austanvert
og gengur inn undir jökulinn með vatn á báða bóga.
Jökuljaðarinn liggur úti í lóninu í mælilínunni.
Hagafellsjökull vestri - Enn engin merki um fram-
hlaup hér.
Kirkjujökull -1 athugasemdum Einars Hrafnkels kem-
ur fram að flati stórdílótti steinninn (KIR 1997-3),
sem var um 1 m upp úr urðinni er nú sléttur við yf-
irborð. Um 2 vikum eftir vitjun í fyrra sáust ummerki
eftir krapaflóð sem hefur að sögn Guðmundar Inga
Haraldssonar flutt fram grjót upp að steininum. Hann
hefur þó ekki færst. Sett upp nýtt merki KIR 2000-1.
/ Jökulkróki - er skeifulaga geil í miðjan jökuljaðarinn
en jökullinn sléttur og hreyfingarlaus segir Kristjana
G. Eyþórsdóttir. Gönguferðin að mælingastað tók sex
og hálfan tíma.
Kerlingarfjöll
Loðmundarjökull eystri - ísboginn í ár er þunnur og
nær 20-30 m upp í jökulinn.
Hofsjökull
Blágnípujökull - Einar Hrafnkell lýsir íshraukum og
virðist jaðarinn, sem var 5-6 m hátt stál í fyrra, hafa
hrunið fram.
Nauthagajökull - Leifur Jónsson getur þess að jökull-
inn lækki nú sem óðast. Malaröxl vestur úr Hjartafelli
er að koma í ljós.
EYJAFJALLAJÖKULL
Gígjökull - Eyri hefur myndast við sporðinn þvert yf-
ir lónið og dauðísstykki standa vestan og austan jök-
ultungunnar (3. mynd).
MÝRDALSJÖKULL
Sólheimajökull - Jökulsporðurinn hefur þynnst til
rnuna og er nú sléttur og flatur miðað við fyrri ár segir
í skýrslu Einars. Hlaupið í fyrra skildi eftir sig 5 m há
björg sem eru 15-20 m í ummál við sandinn. Þar er að
finna gabbró sem ekki er þekkt í föstu bergi á þessum
slóðum.
JÖKULL No. 51 83