Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 107
Vorferð Jöklarannsóknafélags íslands, 2001
Magnús Tumi Guðmundsson
Raunvísindastofnun Háskólans, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík; mtg@raunvis.hi.is
INNGANGUR
Ferðin var farin dagana 1 .—10. júní. Lagt var af stað
úr Reykjavík um kvöldmatarleytið á föstudag 1. júní
og gist í Jökulheimum um nóttina. Daginn eftir hélt
hópurinn upp Tungnaárjökul áleiðis í Grímsvötn og
Gjálp. Farartækin voru snjóbíll Landsvirkjunar, jepp-
ar og vélsleðar. Gekk ferðin uppeftir með afbrigð-
um vel enda var færið gott. Sleðahýsi Landsvirkj-
unar var flutt beint í Gjálp ásamt heitavatnsbor. Þar
urðu fjórir eftir til að vinna við boranir. Hinir héldu
beint á Grímsfjall. Þar var búist um og verkefni vik-
unnar undirbúin. Fararstjóri í ferðinni var Magnús
Tumi Guðmundsson en matarbirgðastjóri var Sjöfn
Sigsteinsdóttir.
Allvel gekk að vinna verkefni ferðarinnar. Veður
var gott að öðru leyti en því að inniseta var þriðjudag-
inn 5. júní þegar hvassviðri af norðri gekk yfir með
skafrenningi og ofankomu. Veðrinu slotaði á mið-
vikudag og þrátt fyrir tafirnar náðist að vinna öll áætl-
uð verk. Selstaða var í Gjálp fram á föstudag 8. júní
og dvöldu þar að jafnaði fjórir úr hópnum. Fjögurra
manna hópur fór til Kverkfjalla fimmtudaginn 7. júní
og gisti þar um nóttina. Daginn eftir vann þessi hóp-
ur að endurbótum á húsinu. A föstudeginum 8. júní
var farin hópferð í Kverkfjöll í fyrirtaksveðri með við-
komu í Gjálp á heimleið. Laugardaginn 9. júní var
síðan haldið niður Tungnaárjökul til Jökulheima. Færi
var nú þyngra en helgina áður. Krapi var víða og sein-
farið neðantil. Einn bíll festist kyrfilega í krapanum
og náðist ekki upp fyrr daginn eftir. Ekki aftraði það
því að haldin var grillveisla í Jökulheimum á laugar-
dagskvöldið. Oftast hefur veisla þessi verið haldin á
Grímsfjalli en í þetta sinn þótti reynandi að breyta til.
Þótti það takast með ágætum. Síðdegis sunnudaginn
10. júní var haldið úr Jökulheimum til Reykjavíkur.
Gekk sú ferð stóráfallalaust. Þó fór það svo að einn
bíllinn bilaði á Ölfusárbrú, og var það einmitt sá sem
dró sleðahýsið. Þurftu þeir Þorsteinn og Hannes að
láta bíl og æki renna til baka austur af brúnni á móti
umferðinni. Mátti þar engu skeika því ef húsið færi
þversum hefði brúin lokast en slíkt er aldrei vinsælt.
En allt tókst þetta giftusamlega, annar stýrði en hinn
ýtti og síðan var driflokan sem brotnað hafði soðin
saman. Til Reykjavíkur var komið á nokkuð hefð-
bundnum jöklaferðatíma nokkru eftir miðnætti.
RANNSÓKNIR
Unnið var að allmörgum rannsóknarverkefnum í ferð-
inni eins og endranær. Fyrirferðarmestar voru mæl-
ingar tengdar umbrotum síðustu ára í Gjálp og Gríms-
vötnum. Verkefnin voru:
1. Vetrarafkoma í Grímsvötnum var mæld þann 3.
júní á venjubundnum borstað í miðjum vötnunum
(64°24.95'N, 17°20.20’V). Snjólagið mældist 3.8 m
á þykkt og vatngildi þess 2.1 m. Afkoma var einnig
mæld á Bárðarbungu, Háubungu og tveimur stöðum
norðan Grímsvatna. A öllum þessum stöðum var vetr-
arafkoman undir meðallagi.
2. Vatnshæð Grímsvatna mældist I370m y.s. Vatns-
hæðin hefur verið lág (lengst af 1350-1390 m) allt
frá því eftir Gjálpargos. Leki og tíð smáhlaup hafa
einkennt Grímsvötn þessi ár.
3. Yfirborð Grímsvatna var kortlagt með DGPS mæl-
ingum. Er þannig fylgst með breytingum á ísbræðslu
vegna jarðhita. Einnig var gígurinn frá 1998 kannað-
ur, einkum þróun jarðhita í honum og í næsta nágrenni
hans. Enn er mikill hiti í gígnum.
4. Unnið var að viðhaldi og endurbótum á gufuraf-
stöðvum á Grímsfjalli. Einnig var komið fyrir lokuðu
keri með loftlögnum fyrir rafstöð sem þjóna mun sem
JÖKULLNo. 51 105