Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 82
Oddur Sigurðsson
Dilkar afar vænir og flokkuðust vel, því grös trén-
uðu seint og því var um vöðva en ekki fitusöfnun að
ræða hjá lömbum fram undir veturnætur. Haustið til
þessa gott og snjólaust á láglendi þegar þetta er skrifað
viku af desember.
Þó snjó tæki mjög úr fjöllum hélt Skjaldfönnin
velli og er það mér undrunarefni. í heild minnir þetta
sumar á 1939, en veðurgæði þess og hitar voru mjög á
orði höfð á mínum uppvaxtarárum, sérstaklega mistrið
sem þá var nefnt hitamóða, en „mengun“erlendis frá,
sem nú er nefnt sem ástæða slíkra skilyrða er dregur
úr skyggni, var ekki komin í málið.
I Kaldalóni er nú í bili komin kyrrð og jafnvægi
á náttúruöflin. Mikil umferð gangandi fólks er inn að
jökulsporðinum og hafa landeigendur á Armúla feng-
ið Vegagerðina í lið með sér í að byggja upp veg-
arspotta vestan Hólanna svo hægt sé að krækja fyrir
skafl sem þar er á vegi á vorin og allt fram í júlíbyrj-
un, svo akandi gestir freistist ekki til að skera sund-
ur graslendið með farartækjum sínum til að spara sér
sporin. Einnig hafa verið afmörkuð bílastæði við
Hólaendann til að reyna að stemma stigu við óæski-
legum torfæruakstri í Innra-Lóni. Erlendir vísinda-
menn voru þaulsætnir í Kaldalóni í sumar og mældu
m.a. rennslisbreytingar í Mórillu yfir sólarhringinn
svo og efnainnihald vatnsins.“
Leirufjarðarjökull - Asgeir Sólbergsson tekur undir
með Indriða á Skjaldfönn: „Síðasti vetur var mjög
góður bæði til lands og sjávar hér fyrir vestan. Snjór
með minnsta móti í byggð en meiri til fjalla. Mjög litl-
ar snjófannir voru í Leirufirði s.l. haust, trúlega með
minnsta móti í mörg herrans ár.“
Reykjarfjarðarjökull - I bréfi með veglega mynd-
skreyttri skýrslu skrifar Þröstur Jóhannesson: „Lítill
snjór er nú í fjöllum og gróður allur með líflegasta
móti. Ber eru stór og í miklu magni, enda hefur
sumarið verið með endemum gott og í allt sumar gerði
aldrei „garð“ að kalla mætti, þ.e. norð-austan veður
með kuldaþoku og sudda sem algengt er á þessum
slóðum. Nokkuð mikið var í Osnum og er við komum
að ármótum Brúnár mátti aðeins merkja litarmun er
Osinn virtist dekkri á lit, þó ekki sem áður vegna þess
hve mikið var í ánum.
Tafla 1. AFKOMA NOKKURRA JÖKLA 1987-2000
- MASS BALANCE MEASUREMENTS 1987-2000
Ár Year Vetur Winter m Sumar Summer m Árið Annual m Jafnvægislína Equilibr. line (m y.s.)
Sátujökull
1987-1988 1,31 -2,27 -0,96 1330
1988-1989 1,74 -1,24 0,50 1190
1989-1990 1,45 -2,05 -0,60 1340
1990-1991 1,94 -3,35 -1,41 1490
1991-1992 1,87 -0,81 1,06 1160
1992-1993 1,69 -0,94 0,75 1165
1993-1994 1,56 -1,49 0,07 1250
1994-1995 1,72 -2,30 -0,58 1315
1995-1996 1,60 -2,37 -0,78 1340
1996-1997 1,13 -2,18 -1,05 1410
1997-1998 1,17 -1,73 -0,56 1360
1998-1999 1,44 -1,70 -0,25 1250
1999-2000 1,02 -2,36 -1,34 1410
samt. ’87/88-’98/00 -4,59
Þjórsárjökull
1988-1989 2,22 -1,22 1,00 1010
1989-1990 1.75 -1,64 0,11 1160
1990-1991 2,09 -3,08 -0,99 1230
1991-1992 2,59 -0,98 1,61 1000
1992-1993 2,21 -1,44 0,77 1070
1993-1994 1,63 -1,83 -0,20 1155
1994-1995 1,74 -2,54 -0,80 1280
1995-1996 1,53 -2,70 -U7 1360
1996-1997 1,45 -2,60 -1,15 1380
1997-1998 1,32 -2,40 -1,08 1225
1998-1999 1,61 -2,12 -0,51 1190
1999-2000 1,50 -2,47 -0,97 1280
samt. '88/89-’99/00 -3,38
Blágnípujökull
1988-1989 1,73 -1,28 0,45 1160
1989-1990 1,35 -2,02 -0,68 1300
1990-1991 1,73 -3,21 -1,49 1340
1991-1992 1,96 -1,28 0,68 1180
1992-1993 1,80 -1,73 0,07 1230
1993-1994 1,26 -2,14 -0,87 1310
1994-1995 1,33 -2,49 -1,17 1350
1995-1996 1,57 -2,80 -1,23 1370
1996-1997 1,50 -2,91 -1,42 1410
1997-1998 0,76 -2,35 -1,59 1440
1998-1999 1,10 -2,18 -1,09 1310
1999-2000 1,08 -2,82 -1,75 1390
samt. ’88/89-’99/00 -10,09
Þrándarjökull
1990-1991 2,25 -3,24 -0,99 >1240
1991-1992 2,27 -1,88 0,39 950
1992-1993 2,14 -1,43 0,72 985
1993-1994 2,24 -1,84 0,40 1020
1994-1995 1,41 -2,41 -0,99 >1240
1995-1996 2,35 -2,81 -0,45 1130
samt. '90/91-'95/96 -0,92
Eyjabakkajökull
1990-1991 2,28 -3,19 -0,90 -1150
1991-1992 2,11 -2,07 0,04 1070
1992-1993 2,07 -1,33 0,74 1010
1993-1994 2,30 -1,83 0,46 1045
1994-1995 1,76 -2,18 -0,42 1190
80 JÖKULLNo. 51