Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 86
Oddur Sigwðsson
3. mynd. Gígjökull 19. ág-
úst 2000. Þvert yfir lón-
ið hefur myndast jökulgarð-
ur og sléttir aurar þar á
bak við. - The outlet
glacier Gígjökull, southern
Iceland, is now retreating
after 25 years’ advance,
forming a new terminal
moraine. Ljósmynd/Photo.
Oddur Sigurðsson.
VATNAJÖKULL
Sylgjujökull - Dr. Ian Ashwell sendi bréf og tilkynnti
að ieiðangur Englendinga hefði sett upp mælinga-
vörðu lOOm frá jökuljaðri og gaf upp UTM hnit
42 744 austur og 48 160 norður.
SkeiðarárjökuII - Hannes Jónsson segir að suðvestur-
tunga jökulsins í átt að Eystrafjalli (Súlujökull) hljóti
að minnka hratt á næstu árum og þá velti á undirlag-
inu hvoru megin hryggjar Súla lendir, í Núpsvötn eða
Gígjukvísl. Hann telur einnig að úr þessu fari landi
við miðbik jökulsins að halla niður til norðurs og þá
fari að myndast aftur lón við jökuljaðarinn.
Guðlaugur segir jöklana kring um Svínafell ekki
hafa minnkað svona mikið í mörg ár.
Helgi á Kvískerjum skrifar að mælingastaðurinn
við Kvíárjökul gefi ekki rétta mynd af breytingum jök-
ulsins, því að þegar kemur spölkorn upp fyrir sporð-
inn, sem er hulinn þykku lagi af grjóti og möl, er nú
komin á allstóru svæði svo mikil lægð að ætla má að
þessi fremsti hluti jökulsins sé slitinn úr tengslum við
aðaljökulinn. Jökullinn heldur áfram að minnka til
dæmis sunnan við mælingalínuna þar sem hann hef-
ur lækkað til muna og sömuleiðis við norðaustur jað-
arinn meðfram Kambinum. Nýr mælingastaður hefur
ekki fundist ennþá.
Sömuleiðis sýnist sporður Hrútárjökuls vera
óbreyttur, enda falinn undir þykku grjótlagi. Þegar of-
ar kemur þar sem ísinn er hreinn sést að hann hefur
minnkað og er það til dæmis áberandi að mikið hef-
ur bráðnað frá klettinum milli Sauðafells í Ærfjalli og
Múla.
Mælingar á hinum jöklunum telur Helgi sýna
raunverulegar breytingar á þeim.
Breiðamerkurjökul - er að síga fram í Jökulsárlón og
ýtir á undan sér hrönnum af lagnaðarís segir Steinn
Þórhallsson. Hann er þunnur og brattur og hefur sigið
mikið frá Fellsfjalli.
Fláajökull - Að sögn Eyjólfs er komið 40-50 m breitt
lón við jökulsporðinn hjá merki nr. 148. I mælingunni
er það áætlað 45 m.
Kverkjökull - Helgi Torfason segir jöklamerkin í
nyrðri línunni horfin. Mælingin á því við línuna með
gamla þríhyrnings merki Jöklarannsóknafélagsins.
SUMMARY
Glacier variations 1930-1960, 1960-1990 and
1999-2000
In the year 2000, glacier variations were recorded
at 47 locations, 1 terminus (a surge-type glacier)
advanced, 4 were stationary and 40 retreated. Mea-
surements could not be made at two locations.
84 JÖKULLNo. 51