Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 97
Þjórsárver
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Líjfrœðistofnun Háskólans, Grensásvegi 12, 108 Reykjavík; theth@hi.is
Þjórsárver eru stærsta einangraða gróðurvinin á mið-
hálendi íslands, alls um 120 km2 með samfellt grónu
landi. Norðan þeirra rís Hofsjökull en annars liggja
að Þjórsárverum víðáttumiklar auðnir. Verin eiga til-
veru sína að þakka vatninu sem um þau streymir bæði,
ofanjarðar og skammt undir yfirborði. Þjórsá renn-
ur gegnum verin endilöng og skilur Þúfuver, Eyvind-
arver og nokkur minni ver frá meginverunum vestan
árinnar. Nokkrar stórar jökulkvíslar eiga upptök sín
sunnanverðum Hofsjökli og á leið sinni frá jökli og
í Þjórsá, skipta þær landinu upp í einstök nafngreind
ver: Tjarnaver, Oddkelsver, Illaver, Múlaver og Arnar-
fellsver. Ur austri rann áður talsvert bergvatn í Þjórsá
en með Kvíslaveitu var því að mestu verið veitt frá
verunum og í Þórisvatn. Mikið vatn streymir einnig
um verin neðanjarðar, bæði frá Hofsjökli og úr norð-
austri og austri, og kemur sumt fram sem lindir, t.d.
í Hnífárbotnum og Þúfuveri. Víðast hvar í Þjórsár-
verum stendur grunnvatn hátt og litlar tjarnir og pollar
eru eitt af séreinkennum veranna. Vatn og sífrerarústir
mynda víða smágert mynstur þar sem tiltölulega lítill
hæðarmunur endurspeglast í breytilegri tegundasam-
setningu gróðurs.
Lífríki Þjórsárvera er um margt sérstætt. Þau eru
langmesta varpsvæði heiðagæsar í heiminum og á
skrá yfir alþjóðlega mikilvæg votlendi. I Þjórsárver-
um er dreifður sífreri og þar eru víðáttumestu freð-
mýrar landsins. Þar er mesta og fjölbreyttasta vot-
lendi utan láglendis, m.a. flæðiengi sem annars eru
sjaldgæf á hálendi. Líklega eru Þjórsárver tegunda-
auðugasta svæði hálendisins: þar virðast lifa flestar
tegundir blómplantna, mosa, fléttna, sveppa og fugla.
Þetta er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að Þjórsárver
eru mjög einangruð gróðurvin á annars afar gróður-
snauðu landi. Gróðurfarslega má telja Þjórsárver fjöl-
breyttustu hálendisvin landsins og þótt þau séu þekkt-
ust fyrir votlendi eru þar einnig talsverðar lyng- og
víðiheiðar. Verin eru síðustu leifar þess gróðurs sem
áður þakti auðnir Sprengisands og einu víðáttumiklu
þurrlendisgróðurlendin sem varðveist hafa í þessum
landshluta. Síðast en ekki síst má nefna að Þjórsárver
eru nánast eina víðáttumikla gróðurlendi miðhálend-
isins sem ber lítil merki langvarandi búfjárbeitar. Að
öllu samanlögðu má því telja Þjórsárver líffræðilega
verðmætasta hálendissvæði Iandsins.
Lorsíðumyndin sýnir hvernig Þjórsá rennur á
breiðum aurum gegnum verin. Aurarnir eru allt að
2 km breiðir en mun minna rennur um farveginn en
fyrir daga Kvíslaveitu (um 60% vatnsmagns við Sól-
eyjarhöfða). Þúfuver er neðst t.h. á myndinni. í dökka
farveginum rennur Þúfuverskvísl og sést hvar hún tek-
ur skarpa beygju við Biskupsþúfu þar sem í hana bæt-
ist einn af mörgum lindalækjum Þúfuvers. Biskups-
þúfa er að mestu blásin en á myndinni má greina langt,
víðvaxið rofabarð syðst á austurhlíð hennar sem sýnir
að hún muni áður hafa verið gróin.
Gegnt Þúfuveri, vestan Þjórsár er Oddkelsver. Þar
ber mest á Oddkelsöldu, allbreiðri öldu með rofnum
torfum sem allar liggja NA-SV og endurspeglar það
meginrofátt í Þjórsárverum (NA). Óljós munnmæla-
saga er til um Oddkel eða Otkel sem á að hafa lagst
út í Þjórsárverum ásamt systur sinni en ekki er annars
vitað frekar hvaðan aldan dregur nafn sitt. Ofan við
Oddkelsöldu er samnefnt ver. Norðan þess sést Mikla-
kvísl sem skilur Oddkelsver frá Illaveri. Ofan við
ósa Miklukvíslar klofnar Þjórsá um stóra og að mestu
ógróna öldu, Þjórsáröldu. Ofan hennar sést jökullitað
stöðuvatn og Arnarfellsalda austan þess. í vesturhlíð-
um öldunnar sjást reiðgötur sem hljóta að vera mörg
hundruð ára gamlar. Kvíslin vestan vatnsins er Innri-
Múlakvísl og sameinast hún Lremri-Múlakvísl rétt við
vatnið. Múlakvíslarnar og Múlaver sem innri kvíslin
rennur um draga nöfn sín af Múlunum eða Arnarfells-
múlum. Þeir eru fremsti jökulgarður Múlajökuls og
þegarþeir mynduðust hefur jökullinn gengið yfir land
sem a.m.k. að hluta var gróið og vöðlað upp háum og
bröttum görðum sem mynda langan boga framan við
Múlajökul (ofarlega á miðri mynd). Þeir eru rómað-
JÖKULLNo. 51 95