Jökull


Jökull - 31.12.2001, Síða 99

Jökull - 31.12.2001, Síða 99
Jarðfræðafélag íslands Skýrsla stjórnar á aðalfundi aðalfundi 8. maí 2001 STJÓRNARSTARF Stjórn Jarðfræðafélagsins hélt 9 stjórnarfundi á starfs- árinu, og gaf út 3 fréttabréf. Mestur hluti tilkynn- inga og auglýsinga um mál félagsins er nú sendur út á tölvunetinu. Þeir sem ekki hafa netfang fá fréttabréf í pósti, en missa þó sennilega af hluta tilkynninga fé- lagsins. Tvær ráðstefnur voru haldnar, haustráðstefna og vorráðstefna og gefin út hefti með ágripum erinda og veggspjalda. FRÆÐSLUFUNDIR Alls voru 6 fræðslufundirá starfstímabilinu. Voru þeir vel sóttir og efni fjölbreytt. 1. Dr. R. Annells, frá Eurogeosurveys í Bussel. hélt erindi 4. desember 2000 um starfsemi og tilgang Eurogeosurveys, sem eru samtök landa sem eru í Evr- ópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu. 2. Jólafundur félagsins var haldinn hjá Landmæling- um Islands á Akranesi 12.janúar 2001. Þar kynnti Magnús Guðmundsson forstjóri og starfsmenn LMI stofnunina og framtíð hennar. Var ferðin vel sótt og voru fjörugar umræður í lok framsöguerindanna. 3. Ragnheiður Ólafsdóttir hélt erindi 30. janúar 2001 sem hún nefndi; Mat á umhverfisáhrifum. 4. Prófessor William H. Menke, Columbíuháskóla, hélt erindi 13.febrúar 2001 sem hann nefndi; The magmatic structure of axial volcano, a mini-Iceland on the Juan de Fuca Ridge. 5. Björn Harðarson hélt erindi 13. mars 2001 um sam- spil rekbeltaflutinga og möttulstróks á N-Atlantshafi. 6. Prófessor Arthur Sylvester hélt erindi 18. apríl 2001 um byggingu og misgengi í Californíu og hvernig sennileg þróun þeirra yrði næstu árþúsundin. 7. Aðalfundur félagsins haldinn í Eldborgu, ráðstefnu- húsi Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi 8.maí 2001. I lok fundarins var orkuverið skoðað og einnig jarð- fræðisýning í kjallara hússins. Fræðslufundirnir voru haldnir í Lögbergi, fundar- sal Orkustofnunar eða Odda. Jólafundurinn 9. desem- ber var haldinn hjá Landmælingum Islands á Akra- nesi. Haustferð hefur tekið sæti erindis í október og haustráðstefna í nóvember. HAUSTFERÐ Haustferð félagsins var farin laugardaginn 7. október 2000 og tókst mjög vel, þátttaka góð (31) enda var veður hið blíðasta. Farið var að skoða ummerki jarð- skjálftanna á Suðurlandi 17. og 21. júní 2000 og var Páll Einarsson leiðsögumaður. RÁÐSTEFNUR Tvær ráðstefnur voru haldnar á starfsárinu: Haustráðstefna félagsins var haldin 23.nóvember 2000 á Hótel Loftleiðum og var efni hennar jarð- skjálftarnir á Suðurlandi 17. og 21. júnf, stærð þeirra, lega og önnur atriði tengd slíkum hamförum. Skjálft- arnir voru taldir hafa verið að stærðinni 6,5 og 6,6. Haustráðstefna er nýmæli og kemur í stað þemabund- innar ráðstefnu sem áður var haldin í febrúar. Þar sem vorráðstefna er venjulega haldin í apríl þótti fullstutt milli þeirra og því var þessi nýbreytni tekin upp og mæltist vel fyrir, en 80 manns sóttu hana. Haustráð- stefnan var hálfsdags ráðstefna og voru haldin 7 erindi og eitt veggspjald. Vörráðstefna félagsins var haldin þriðjudaginn 24. apríl 2001 og sóttu hana um 103 manns. Þar var að venju fjölbreytt efni og mjög skemmtilegt. Flutt voru 28 erindi og þurfit nú að skipta ráðstefnunni eftir hádegi í tvær setur til að koma erindunum fyrir. Auk þess voru sýnd 28 veggspjöld. Efni ráðstefnunnar var þannig mjög yfirgripsmikið. Báðar ráðstefnurnar voru haldnar á Hótel Loft- leiðum og var aðstaða og aðbúnaður góður. Ágrip JÖKULLNo. 51 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.