Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 31.12.2001, Qupperneq 106

Jökull - 31.12.2001, Qupperneq 106
Magnús T. Guðmundsson Flutti formaður félagsins erindi um þjóðgarð og vís- indarannsóknir. I tengslum við þessa umræðu gekkst stjórnin fyrir því að skrifuð yrði skýrsla um málið frá sjónarhóli félagsins. Var henni dreift á ráðstefnunni en skýrslan nefnist Vatnajökull. Rannsóknir, ferðalög og skipulag. Þar er greint frá mikilvægi Vatnajökuls vegna vísindarannsókna, sagt frá aðstöðu félagins á jöklinum og gerð úttekt á ferðamennsku þar á grund- velli upplýsinga í gestabókum frá Grímsfjalli. Þær upplýsingar hafa ekki áður kornið fram og eru hvergi til annarstaðar. A árinu var Halldór Gíslason yngri, ritari félagsins í sambandi við skipulagsyfirvöld og þjóðgarðsvörð- inn í Skaftafelli vegna deiliskipulags Skaftafellsþjóð- garðs. Mun hann áfram fylgjast með þessum mál- um af hálfu félagsins. Einnig hefur starfshópur, svo- nefnd hreppsnefnd, unnið að úttekt á framtíðarskipu- lagi mannvirkja og annars búnaðar á Grímstjalli, með það að leiðarljósi að aðstaðan nýtist sem best til rann- sókna og ferðalaga á komandi árum. Ekki tókst að ljúka starfinu á árinu en það er nijög langt komið. RÁÐSTEFNUR Á árinu voru haldnar í Reykjavík þrjár alþjóðleg- ar ráðstefnur sem snertu starfsvið Jöklarannsóknafé- lagsins. Sú fyrsta var haldin á Grand Hótel í júlí og höfðu Vatnamælingar Orkustofnunar forgöngu um hana. Fjallaði hún um stærstu gerðirfióða, m.a. jökul- hlaup. Ráðstefnuna sóttu unr 120 manns, mest erlend- is frá. Önnur ráðstefnan var haldin í Háskóla Islands í ágúst en fundarefnið þar var eldgos í jökli, bæði á jörðinni og Mars. Var þetta fyrsta alþjóðlega ráðstefna sinnar tegundar í heiminum. Hana sóttu 75 vísinda- menn víðsvegar að. Síðasta ráðstefnan, um könnun pólsvæða Mars, var haldin í Háskólabíói viku á eftir gosráðstefnunni. Á öllum ráðstefnunum kom glöggt fram að erlendir vísindamenn horfa mjög til íslands um fyrirmyndir að jökulhlaupum og eldgosum, bæði hér á jörðu og á öðrum hnöttum sólkerfins. Jöklarann- sóknafélagið studdi ráðstefnurnar með því að leggja fram til kynningar, nýlegt eintak af Jökli fyrir hvern erlendan þátttakanda. Var þetta gert til að kynna Jök- ul meðal þessa hóps, og safna í framhaldi áskrifendum erlendis. Hefur þetta borið dálítinn árangur því nokkr- ir nýir erlendir áskrifendur bættust við í kjölfarið. SAMÚT Jöklarannsóknafélagið hefur á árinu starfað innan SAMUT, samtaka útivistarfélaga. Samtökin eiga m.a. fulltrúa í nefnd stjómsýslunnar um skipulagsmál á há- lendinu. Fulltrúi JÖRFÍ í stjórn SAMÚT var Magnús Tumi Guðmundsson og Garðar Briem til vara. LOKAORÐ Nú er 50 ára afmæli félagsins að baki og framundan er ný öld. Enginn veit hvað hún ber í skauti sér en spár gera ráð fyrir rýmun jökla vegna hlýnandi veðurfars. Horfurnar á stórfelldum breytingum gera starf Jökla- rannsóknafélagsins ennþá mikilvægara en ella. Halda þarf í horfinu með sporðamælingarnar svo sem full- komnust mynd fáist af jöklabreytingum sem kunna að fylgja loftslagsbreytingum. Á nýrri öld munu rann- sóknir hvers konar gegna æ mikilvægara hlutverki. Það liggur í eðli málsins, því krafa samtímans um upplýsingar verður æ sterkari. Nú hyggja menn á stórfellda nýtingu vatns sem frá jöklunum rennur með byggingu stærri virkjana en áður. Á hinn bóginn eru uppi merkileg áform um vemdun náttúrunnar með stofnun þjóðgarðs á Vatnajökli. Jöklarannsóknafélag- ið á að vera þátttakandi í umræðu um þessi mál, leggja til ráð og skoðanir um þá hluti sem þekking er á innan félagsins. Á sama tíma þurfum við að hyggja vel að innra starfi félagsins. í félaginu starfa saman áhuga- fólk og fagfólk, að sameiginlegum markmiðum. Þetta er sérstaða Jöklarannsóknafélagsins. Hana þurfum við að varðveita. Sú ánægja sem fylgir því að vinna gott verk í góðum félagsskap hefur hingað til dugað til að skapa góðan anda í starfi félagsins. Við skulum vona að svo verði áfram á þeirri öld sem nú er nýhafin. Magnús Tumi Guðmundsson, mtg@raunvis.hi.is 104 JÖKULL No. 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.