Jökull


Jökull - 31.12.2001, Page 112

Jökull - 31.12.2001, Page 112
Haustferð JORFI á Vatnajökul 2001 Finnur Pálsson Raunvísindastofnun Háskólans, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík; fp@raimvis.hi.is Þetta reyndist vera þannig ferð, en það vissum við ekki þegar lagt var af stað úr Reykjavík, síðdegis þann 14. september 2001. Níu manns lögðu af stað á þrem bflum og með 4 vélsleða. Fyrsta bilun varð strax á þjóðvegi 1 milli Fíveragerðis og Selfoss, þeg- ar lega „bráðnaði“ í sleðakerru. Ný lega barst fljót- lega með hópi JÖRFI félaga sem voru á leið í Jök- ulheima í vinnuferð. Undir miðnætti var stöðvað og gist í húsi LV við Kvíslaveitur. Snemma morguns þann 15. var ekið af stað og í fyrstu beygju á leiðinni eftir um 5 mínútna akstur varð önnur bilun. Vökvi fór að leka af stýrisvél Dodda. Eftir mikið mas með gúmmíhringjaefni, undralím og fasta lykla var hald- ið áfram. Enn lak þó úr stýrinu. Ekið var milli Há- gangna, yfir affall „Fagralóns“, í gegnum hraunið, yfir Sveðju. með Köldukvíslarjökli og loks upp á sporð hans nærri hefðbundum stað. Veður var gott. Sleðar voru teknir af og sleðamenn ruku af stað til að lesa af afkomustikum og mæla inn hraðastikur. Bflarnir héldu hefðbundna leið upp jökul. í um 1300m hæð á jöklinum brotnaði armur útúr liðhúsi framhjóls á bfl LV, þegar hann stakkst í vatnsrás sem hulin var snjó. Eftir miklar tilraunir til viðgerðar með því efni sem fannst í bílunum, var séð að ekki varð frekar að gert. Eftir tveggja tíma þóf í talstöðvum tókst loks að kalla sleðamenn til baka. Nú var öllum troðið í tvo bíla og snúið aftur í Kvíslaveituhús LV. Fengnir voru menn til að koma með varahluti úr Reykjavflc. A leiðinni brotnaði vinstri framfjöður Dodda í tvennt, og enn lak stýrið. Snemma næsta dag var farið aftur á Köldu- kvíslarjökul, gert við bfl LV og þaðan á Grímsfjall. Enn lak stýrið. A leiðinni var tekin niður veðurstöð, lesið af nokkrum afkomustikum og skriðhraðastikur mældar inn. Nýsnjór var talvert þykkur (ca. 40 cm) ofan 1600m. Hann huldi 1998 gosöskuna á Gríms- fjalli og lokaði sprungunum síðasta spölinn upp fjall- ið, þannig að tiltölulega greiðfært var þangað bæði fyrir bíla og sleða, ólíkt því sem verið hafði haustin 1999 og 2000. Eftir góða nótt á Grímsfjalli var liðinu skipt, 2 bílar og tveir sleðar (hvert farartæki mannað) fóru austur jökul í afkomustikur og veðurstöðvar. A tveim sleðum var unnið að hraðastiku og sniðmæling- um með DGPS tækjum, og athugun á gosstöðvunum í Grímsvötnum. Þrír störfuðu á Grímsfjalli, einkum við hitarafstöðvar RH og Veðurstofu og frágangi kars fyr- ir vararafstöð. Austurförum gekk ágætlega, farið var á sleðunum niður á sporð Brúarjökuls, en bflar héldu áfram ofan jafnvægislínu (á snjó). Sleðamenn fóru um afkomumælipunkta á austurhluta Brúarjökuls, þá var dimmt orðið og stöðugur úði í lofti. Þessi leið er af- ar torsótt vegna djúpra vatnsrása, sem sneiða þarf fyrir (stundum marga km). Allt gekk þetta þó með hæfilegu basli og mættust bílar og sleðar á miðnætti í Djöfla- skarði neðan Goðahnúka, en þar var borðað og gist. A bakaleiðinni var farið um mælipunkta á Breiðu- bungu. Frá rótum Breiðubungu og nærri að söðlinum milli Skeiðarárjökuls og Brúarjökuls, var yfirborðið afar sérkennilegt, mjög misbráðið (leysing hafði verið venju fremur lítil austantil) og allt í skvompum (1- 2 m djúpum) og samhangandi hryggir á milli. Svona var þetta bæði til norðurs og suðurs u.þ.b. 10 km til hvorrar áttar. Seinni part dagsins (18. sept) var öllum verkefnum leiðangursins lokið með góðum árangri, en þau voru þessi helst: Að taka niður og lesa af 3 veðurstöðum á Tungnaár- jökli og Brúarjökli. Ganga frá neðstu veðurstöð á Brú- arjökli fyrir veturinn, hún var látin mæla yfir veturinn. Taka niður regnmæli á Grímsfjalli og ganga frá veð- urstöð þar fyrir veturinn. Mæla inn og lesa af um 40 afkomumælingastikum. Mæla inn nokkra tugi skrið- 110 JÖKULLNo. 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.