Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Page 14
14 12. október 2018 U ndanfarið hefur örfoka og torfært eyðimerkursvæði á landamærum Sýrlands og Íraks dregið að sér mikla athygli ýmissa ríkja. Svæðið er um 20 kílómetrar að lengd. Þar hafa hersveitir, sem Íranar styðja, kom- ið sér fyrir og hafa nú yfirráð yfir landamærunum. Hætt er við að þetta svæði verði nú miðpunktur mikils uppgjörs Bandaríkjanna og Írans um völd og áhrif í Mið-Aust- urlöndum. Samkvæmt upplýsingum bandarískra og ísraelskra leyni- þjónustustofnana er búið að koma upp einhvers konar herstöð fyr- ir allt að 8.000 stríðsmenn sjíta- múslima á svæðinu. Þeir berj- ast við hlið hersveita Bashar al-Assad, einræðisherra í Sýrlandi, í borgarastyrjöldinni þar í landi og njóta stuðnings Írana í þeim átökum. Íranar hafa því tryggt sér stjórn beggja vegna landamær- anna. Áhrifasvæði þeirra nær því nú í nokkurs konar hálfmána yfir Írak, Sýrland og Líbanon til Mið- jarðarhafsins. Á þessu svæði gætir og mun áhrifa Írana gæta enn frekar í framtíðinni. Með þessu hafa Íran- ar styrkt stöðu sína og tök sín á svæðum sjíta-múslima í Mið- Austurlöndum en um leið auka þeir áhrif sín í öllum heimshlut- anum. Þessi hálfmáni Írana nær í raun allt að landamærum erki- fjendanna í Ísrael sem eru allt annað en sáttir við þessa stöðu og fylgjast grannt með þróun mála. Lengi hefur verið vitað að Íranar vilja auka áhrif sín í Mið- Austurlöndum og nú hafa þeir tryggt landfræðilega stöðu sína enn frekar sem auðveldar þeim að auka pólitísk áhrif sín. Á öllu hálf- mánasvæðinu hafa Íranar styrkt stöðu sína og hafa þeir til dæmis sent liðsmenn byltingarvarðarins og vígamenn til ýmissa svæða inn- an hálfmánans til að tryggja stöðu sína. Einnig eru íranskir herfor- ingjar staðsettir víða. Opinbera skýringin á þessum hernaðarumsvifum er að her- mennirnir séu að aðstoða við vernd helgistaða sjíta-múslima. En hinn raunverulegi tilgangur dylst ekki, hann er að styrkja völd Írans á svæðinu. Allt frá byltingunni 1979, þegar klerkastjórnin komst til valda, hefur það verið draum- ur ráðamanna í Íran að komast til svo mikilla áhrifa og valda á svæð- inu að Íranar hefðu beint aðgengi að Miðjarðarhafi. Þessir draum- ar færðust í aukana þegar stríð- ið í Írak hófst 2003 og efldust enn frekar þegar ljóst var að Íslamska ríkið færi halloka í Írak og Sýr- landi. Byltingarverðirnir koma víða við sögu Í kjölfar hruns og mikilla ósigra hryðjuverkasamtakanna, sem kenna sig við Íslamska ríkið, í Írak og Sýrlandi hafa sjíta-múslim- ar aftur komist til áhrifa og valda í Írak en liðsmenn Íslamska ríkis- ins eru súnní-múslimar. Í Sýrlandi eru hersveitir Bashar al-Assad og hersveitir hliðhollar honum við að sigra í borgarastríðinu en þessar hersveitir njóta stuðnings Írana og vígamanna á þeirra vegum. Í Líbanon standa Hizbollah- -samtökin sterk að vígi en þau njóta stuðnings Írana og eru raun- ar alveg undir stjórn þeirra. Óhætt er að segja að Íranar hnykli nú vöðvana í miklu pólitísku upp- gjöri við hina erkifjendur sína, súnní-múslimana í Sádi-Arabíu, og ekki er annað að sjá en þeir hafi yfirhöndina, eins og er. Borgara- stríðið í Jemen er einmitt vígvöll- ur þessara tveggja fjandríkja sem eru stórveldin í Mið-Austurlönd- um. Þar beita þau fyrir sig ýmsum vígahópum sem þau styðja dyggi- lega við bakið á. Það er Íranski byltingarvörður- inn, hersveitir klerkastjórnarinnar, sem sér um að tryggja hernaðarleg áhrif Írana í nágrannaríkjunum. Í Sýrlandi hafa allt að 100.000 liðs- menn hersveita, sem eru hliðholl- ar Bashar al-Assad, fengið þjálfun hjá Írönum. Það sama á við um liðsmenn erlendra vígasveita í Sýr- landi, sem eru hliðhollar einræðis- herranum, þær hafa verið þjálfað- ar af Írönum. Byltingarvörðurinn hefur komið upp stjórnstöðvum bæði í Írak og Sýrlandi. Dregur Trump kosningaloforð sitt til baka? Eitt af kosningaloforðum Donalds Trump í forsetakosningunum 2016 var að kalla alla bandaríska hermenn heim frá Írak þegar búið væri að ráða niðurlögum Ís- lamska ríkisins. Nú eru um 1.000 erlendir hermenn staðsettir á landamærum Sýrlands, Jórdaníu og Írak. Svo gæti farið að Trump hætti við að kalla bandarísku her- mennina heim vegna síaukinna áhrifa Írana á svæðinu. Nú þegar hefur verið fallið frá hugmyndum um að kalla bandaríska hermenn heim frá norðurhluta Írak en þar eru nokkur þúsund bandarískir sérsveitarmenn á yfirráðasvæð- um Kúrda. Eins og kunnugt er hef- ur Trump sagt upp samningi við Íran um kjarnorkumál og má segja að klerkastjórnin sé einn af höf- uðandstæðingum hans. Hann vill því ógjarnan sjá klerkastjórnina komast til enn meiri áhrifa í Mið- Austurlöndum. Því neyðist hann hugsanlega til að hafa bandaríska hermenn áfram á svæðinu til að reyna að takmarka áhrif Írana. Ísrael og Sádi-Arabía eru banda- lagsþjóðir Bandaríkjanna og því fara hagsmunir þeirra saman að mörgu leyti og allar vilja þessar þjóðir hindra að Íranar komist til valda og meiri áhrifa í heimshlut- anum. n FRÉTTIR - ERLENT Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is ÍRANAR HAFA STYRKT STÖÐU SÍNA Í VALDATAFLINU Í MIÐ-AUSTURLÖNDUM n Verður bandaríski herinn áfram á svæðinu? Bashar Al Assad Hefur staðið af sér áralangt stríð. Íranski byltingarherinn Hnyklar vöðvana gagnvart ríkjum súnní-múslima.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.