Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 27
12. október 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Jólagjafir og gjafabréf
Gjafakörfur Osta-búðarinnar eru mjög mismunandi, af
öllum stærðum og gerðum
og innihalda þær ýmislegt
góðgæti. Grunnurinn í öllum
okkar körfum er ostar, kex,
súkkulaði og sultur en í stærri
körfurnar fara líka sérvald-
ar vörur, eins og franskar
gæðaólífuolíur, grafið og
reykt kjöt og margt fleira sem
gleður sanna sælkera,“ segir
Thelma Kristín hjá Ostabúð-
inni, Skólavörðustíg 8.
„Við erum að flytja inn
gæðakonfekt og kex frá
belgíska merkinu Noble og
vörur frá franska merkinu
Olivers & Co., en frá þeim
bjóðum við upp á breitt
vöruúrval og má þar helst
nefna hinar ýmsu ólífuolíur,
balsamik, ólífukex, chutney,
sultur, pestó og trufflur,“ segir
Thelma.
Sem fyrr segir eru gjafa-
körfurnar af öllum stærðum
og gerðum. Þær henta í gjafir
handa vinum og ættingjum
en líka er algengt að fyrirtæki
gefi starfsfólki sínu eða öðr-
um fyrirtækjum slíkar körfur í
jólagjöf.
„Hægt er að senda okk-
ur tölvupóst á ostabudin@
ostabudin.is og fá tillögu að
ljúffengri gjöf fyrir sælker-
ann. Svo geta allir komið með
sínar hugmyndir og óskir að
samsetningu til að gera gjöf-
ina enn persónulegri. Einnig
er hægt að panta í síma
562-2772.“
Rómaður veitingastaður
Ostabúðin rekur einnig
notalegan veitingastað sem
er opinn í hádeginu og fram
á kvöld. Staðurinn býður upp
á fagmannlega þjónustu,
einstakan og fjölbreyttan
gæðamat sem
er að mestu
unninn úr íslensku
hráefni og eðalvín á
sanngjörnu verði.
Í hádeginu er boðið
upp á fisk dagsins, súpur,
bruschettu og salöt. Á kvöldin
er síðan flottur matseðill sem
samanstendur af ljúffengum
forréttum, aðalréttum og
eftirréttum og að sjálfsögðu
er líka vegan-kostur fyrir þá
sem það kjósa á matseðlin-
um.
Gjafabréf er góður kostur
Gjafabréfin eru ekki síður
vinsæll kostur en gjafakörfur
hjá viðskiptavinum Osta-
búðarinnar enda fela þau í
sér mikinn sveigjanleika og
má nýta sér þau í gjafakörfur,
sælkeravörurnar í hillunum, á
veitingastaðinn eða í veislu-
þjónustu Ostabúðarinnar.
„Gjafabréf á veitingastað-
inn getur verið fyrir þriggja
rétta kvöldverð ásamt
léttvínsflösku fyrir tvo eða
ákveðna upphæð sem gildir
fyrir allt sem við bjóðum upp
á hér,“ segir Thelma.
Sjá nánar á ostabudin.is
og í síma 562-2772.
OSTABÚÐIN:
Sælkeraheimur í jólagjöf