Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 29
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ MYNDUN Á SAUÐÁRKRÓKI: Ástsælar strigamyndir og prentun á blindraletri Myndun er lítið þjónustufyr-irtæki á Sauðárkróki sem bæði þjónustar fyrirtæki og selur einstaklingum vinsælar vörur. Myndun er framarlega í skiltagerð, merkingum á fyrirtækisbílum og ýmsu fleiru því skylt. Undanfarin ár hafa strigamyndir frá Myndun sleg- ið í gegn en nú er orðið vinsælt að stækka fjölskyldumyndir og strekkja þær á striga. „Við bjóðum upp á þá nýjung að prenta blindraletur og erum kom- inn með prentara af fremstu gerð í slík verkefni. Þetta er þjónusta sem mjög fá fyrirtæki bjóða upp á. Sami prentari getur líka prentað á alls konar auglýsingavarning, penna, brúsa og margt fleira,“ segir Þröstur Magnússon, eigandi Myndunar. Um strigamyndirnar vinsælu segir Þröstur: „Aðallega eru það einstaklingar sem kaupa þessar strigamyndir í jólagjöf og tækifær- isgjafir, gjarnan myndir af fjöl- skyldu og þess háttar. Fólk sendir okkur ljósmyndir og við stækkum, prentum, lökkum og strekkjum á blindramma úr timbri. Þetta kemur mjög skemmtilega út og það verð- ur dálítill grófleiki í þessu sem er heillandi. Algeng stærð á þessum myndum er 40×60 en þær eru niður í 20×20 og alveg upp í 1,45×2,00 metra fleka.“ Strigamyndirnar eru ekki dýr jólagjöf en mynd í meðalstærð kostar um 12.000 krónur. En nú um þessar mundir er einmitt 20% afsláttur af strigamyndum til 15. desember. Myndun leggur áherslu á að veita öllu landinu svona þjónustu og eru myndirnar sendar hvert á land sem er og sendingarkostnaður er inni- falinn í öllum pöntunum yfir 10.000 kr. „Við reynum að nýta okkur mark- aðinn um allt land og það skiptir engu máli þó að við séum staðsettir á Sauðárkróki,“ segir Þröstur. Gjafabréf og strigamyndir er hægt að panta með því að senda tölvupóst á myndun@myndun. is, hringja í síma 867-5007 eða hafa samband á Facebook-síðunni https://www.facebook.com/mynd- un/. Að sögn Þrastar nota við- skiptavinir Myndunar mjög gjarnan Facebook-síðu fyrirtækisins enda svarar hann þar öllum fyrirspurnum greitt og vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.