Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 35
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Húðin Skin Clinic er húðmeð-ferðarstöð að Hátúni 6b í Reykjavík þar sem veittar eru
fjölbreyttar húðmeðferðir og afar
fagleg þjónusta. Þar starfa Lára G.
Sigurðardóttir, sem er læknir og doktor
í lýðheilsuvísindum, Sigríður Arna
Sigurðardóttir, hjúkrunar- og förðunar-
fræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Esther Helga
Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrti-
fræðingur.
Viðskiptavinir Húðarinnar Skin
Clinic geta verið vissir um að fá góða
þjónustu sem veitt er af menntuðu og
þrautþjálfuðu fagfólki. Áhersla er lögð
á að halda náttúrulegu útliti og húðinni
heilbrigðri og fallegri. Auk fjölda húð-
meðferða er boðið upp á einstaklings-
miðaða ráðgjöf.
Sársaukalaus háreyðing með laser
Háreyðing með laser er ein vinsælasta
meðferðin hjá Húðinni bæði hjá körl-
um og konum. Rakstur og vax valda
oft inngrónum hárum og hverfur það
vandamál gjarnan eftir lasermeðferð.
Lasermeðferðin eyðir hvimleiðum hár-
um varanlega eða í langan tíma.
Lára G. Sigurðardóttir hjá Húðinni
bendir á að margir óttist lasermeðferðir
þar sem þær hafa haft orð á sér fyrir
að vera sársaukafullar. „Við notum hins
vegar lasertæki sem byggir á annarri
tækni en þeirri hefðbundnu og hjá okk-
ur er meðferðin ekki sársaukafull heldur
beinlínis notaleg. Vissulega eru sum
svæði viðkvæmari, eins og þar sem eru
margir taugaendar.“
Frábært tilboð á andlitslyftingu með
laser
Önnur vinsæl meðferð er andlits-
lyfting með laser, sem gengur oftast
undir nafninu laserlyfting. „Þetta er
andlitslyfting án skurðaðgerðar þar
sem laser er notaður til að byggja
upp húðina innan frá. Línur minnka
og húðin verður þéttari, slétt-
ari, hraustlegri og unglegri. Okkur
langar að gera vel við viðskiptavini
okkar og bjóðum því þessa eftirsóttu
meðferð með 30% afslætti í október
og því ættu vonandi fleiri að geta
nýtt sér hana.
Fyllt upp í djúpar línur með áhrifa-
ríkum hætti
Notkun á Restylane fylliefni til að
fylla í djúpar línur í húðinni er önn-
ur vinsæl og áhrifarík meðferð hjá
Húðinni. Restylane, sem er gert úr
náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er
sett rétt undir húðina og henni lyft.
Þannig hverfa línurnar eða verða
minna sýnilegar. Varir minnka oft
með aldrinum og einnig er hægt
að nota Restylane til að gefa meiri
fyllingu í þær. Eftir meðferð með
fylliefnum er ekki óalgengt að heyra
hve úthvíldur maður er eða líti vel út.
Húðslípun til að fríska upp á húðina
Húðslípun (microdermabrasion)
er vinsæl meðferð hjá ungu fólki
enda vinnur hún gegn bólum og
fílapenslum. Notað er demantshúð-
slípunartæki sem fjarlægir dauðar
húðfrumur og örvar endurnýjun ysta
lags húðarinnar. Meðferðin gerir
húðina sléttari og jafnar litaáferð
auk þess sem hún virkar á þurra
húð og gefur aukinn ljóma. Við erum
með 20% afslátt af húðslípun um
þessar mundir.
Lára segir jafnframt að auk
meðferðanna leggi stofan áherslu
á hvað fólk geti gert sjálft til að hlúa
vel að húðinni enda hefur lífsstíll
mikið að segja um hvernig húðin
stenst tímans rás.
Gjafabréf að eigin vali
Gjafabréf í húðmeðferð er frábær
hugmynd að jólagjöf á þeim tím-
um þegar fólk hefur sankað að sér
mörgum hlutum og vill kannski frekar
fá upplifun eða vellíðan í jólagjöf.
Á vandaðri heimasíðu Húðarinnar,
hudin.is, eru ítarlegar upplýsingar
um allar meðferðir. Einnig eru veittar
upplýsingar í síma 783-2233.
HÚÐIN SKIN CLINIC:
Heilbrigðari húð og aukin
vellíðan í jólagjöf
Andlitslyfting án skurðaðgerðar